Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

"Úrval Gunni"

28. ágúst 2006 klukkan 13:11

Ákvað að taka daginn sérstaklega snemma þennan daginn, og baka brauð og búa til jafnvel örfáar kleinur svona í morgunsárið. Hlusta á Rás2 og leggja kapal á meðan deigið er að hefa sig. Svo klukkan 09:15 ætla ég að rölta niður í olis og ná mér í fréttablaðið og spyrjast frétta hjá fólki sem verður á vegi mínum. Jafnvel að ræða þetta þokusuddaveður sem hreiðrað hefur um sig hérna á víkinni við sömu aðila.

Nei..hugsa ekki, en gaman væri samt ef maður hefði þetta í sér, þ.e. þið skiljið allt svona græ e-ð. Baka vöfflur, kleinur, snúða. Maður færi og týndi nokkur ber í dall og byggi til svona berjasultu og léti hana í svona litlar glerdollur og merkti þær "27.ágúst 2006" og færi með þær inn í geymslu/búr. Rabbabarinn fengi líka sultumeðferðina og merkti maður hann e-ð svipað. Svo færi maður í fiskbúðina og fjárfesti sér í ferksum fisk til þess að sjóða seinna um kvöldið og hefði vel af hamsatólg með og smjör og skolaði því niður með mjólk o.s.frv.

Flokksþing framsóknarmanna var um daginn, Djonn Sigurrrdson kosinn formaður flokksins og einkar leiðinlegt að hlusta á ræður nýkjörins formanns flokksins. Vala Sverris að laumupúkast e-ð með skjal Grímsa kallsins Bjöss, og Össi og co í "the generalagainstposition" að missa sig í ruglinu yfir þessu. Jóhannes í bónus hótar að snúa menn úr hálsliðnum dag hvern, svolítið gaman af Jóa, þekki hann aðeins síðan hérna um árið þegar hann kom og verslaði af mér 66 gráðu norður lopahúfu, hann klæðir sig upp svona eins og bara venjulegt fólk og setur litlu krúttlegu bónus-derhúfuna á kollinn sinn, og hefur hana svona skakkt á hausnum á sér. Þetta er svo garanterað sálfræði hjá honum Jóa vini mínum, svo í viðtalinu var svona ljúft undirspil og Jói í sjónvarpinu að raða lauknum í bónus og var svona ægilega alvarlegur við þær framkvæmdir allar. Sennilega...og þá meina ég mjög sennilega þegar Jói félagi litla mannsins, er svona staddur heima hjá sér að ræða við þessa kalla um tugmilljarða samninga o.s.frv. að hann svona ákveði að bara svona "Jæja Gunna mín (Guðrún er sko konan hans), ætli ég fari ekki aðeins niður í búð elskan mín og athugi hvort bökuðu baunirnar séu komnar og komi þeim fyrir í búðinni" Neineinei, hugsa nefninlega að Jói félagi hafi ekki þennan dag þegar þetta viðtal var tekið, ákveðið það þegar hann vaknaði að hann þyrfti aðeins að kíkja í búðina sína til þess að taka á móti lauknum sínum !

Svo í viðtalinu lýsti hann því þegar Djonn Osgeir sonur hans hringdi í hann þegar Jón H B BH Snorrason og hans lið þarna í löggunni óð inn í baug og tók 10-12 möppur til þess að rannsaka, þá átti sonurinn að hafa sagt "pabbi pabbi..hvað er eiginlega í gangi hérna á íslandi"....! er miklu meira á því að samtalið hafi byrjað svona frekar "blessssaður kjellinn...ka segja kallar, hei pabbi, ertu í korni...hei gamli, fokkings löggan er komin og tók möppurnar mínar" En Jói félagi lýsti þessu á mjög svo dramatískan hátt, en gaman að segja frá því að hluti af viðtalinu við djódjó fór einmitt fram við Þverá, nú kunna sum ykkar han Þverá...var kallinn í laxi eða ! Neibb, Þverá er golfvöllur sem ég þekki eins og hægri lófann á mér. Greinilegt að við Jói erum bara býsna líkir karakterar...meina, veljum allavega sömu golfvellina til þess að spila. Annars er þetta eflaust vænsti kall, man einmitt eftir því þegar hann kom á sínum tíma til þess að kaupa sér húfuna hjá mér, og ég svona uppi með mér e-ð, samt svalur sko....geng nefninlega alltaf út frá því, þegar ég sé frægt fólk að glápa ekki á það því það má alls ekki sjá að ég sé að "horfa" á það. Þetta er svona svipað og þegar fólk er á svölum bílum, þið vitið með spoilerkíttum allan hringinn, topplúgan á sínum stað, 26" felgur og nýbónaður með filmum og bara öllum pakkanum, þá er svo mikilvægt að horfa sem minnst. En já, aftur að Jóa, þegar hann kom þennan sunnudagsmorgun, ég svona svalur með "mannlíf" að lesa, og segi ég "daaaginn" og hann bara svona alveg bara fuðraði e-ð upp "Já góðan og blessaðan daginn, hvað segið þið hérna á húsavík"....bíddu bíddu bíddu....þekkti ég þennan mann e-ð, nei hélt ekki. En þegar fólk reynir að vingast við mig, útiloka ég ekki neinn, og var Djóheines engin undantekning frá reglunni og spjölluðum við saman þarna þennan sunnudagsmorgun í, tjaaa...á að giska 3-4 mínútur áður en hann var rokinn út aftur.

En jæja...akureyrin í dag, ætla að versla mér skot í maðörfökking byssuna mína, stefnan tekin núbblega á gæs í kvöld og þá er það frekar mikilvægt að eiga hjá sér slatta af skotfærum.

Ætli ég láti þetta ekki nægja í bili og munið að elska friðinn og fara með borðbænirnar ykkar.

það er Anton Úlfarson sem kveður héðan úr miðbæ Belfast

p.s Halim Al bað að heilsa

fín sending Stefán

 
Jói Brill
letrið of smátt og bloggið of langt...hvernig er með "Gleðikonurnar"...bið að heilsa feðgum
#1
30. ágúst 2006 klukkan 05:25
 
Veiðimaður
Hvernig gekk í gæsinni hjá ykkur ?
#2
30. ágúst 2006 klukkan 05:41
 
Ævar Þ.
Blessaður Jói, heyrðu hitti 3 gleðikonur inn á eyri nú um daginn og báðu þær fyrir kveðju til Djóa bræl, fannst þær vera þá að meina þig :)

Veiðimaður - Svalur að kalla þig Veiðimaður...töff :) en gekki ósköp lítið, fengum ekkert...lágu 24 gæsir þegar við töldum í lokin.... :) Neinei, fengum enga gæs en fengum þó að kynnast náttúru íslands eins og best verður á kosið...31 metri á sekúndu, rigning (eins og þær gerast hvað verstar í ameríkunni, sem og 2ja stiga hiti þegar best var !
#3
31. ágúst 2006 klukkan 05:14
 
Jói Brill
Djói Bræl..þad er Madurinn...bið að heilsa "FlækjuKóngnum"..
#4
31. ágúst 2006 klukkan 06:16

Skrifa athugasemd