Loksins er komiš gott vešur !
01. september 2006 klukkan 13:54
Já, undanfarna daga hafa veðurfréttamenn keppst við það, hvor við annan, að hampa veðrinu og tala um að loksins sé sumarið komið og allt svo frábært og allt svo æðislegt og allt svo yndislegt við þetta veður ! Svo kemur smá klausa í lok fréttatímans, þar sem minnst er á það að það sé hellidemba nánast allsstaðar annarsstaðar en í 101 reykjavík ! Þetta hefur nú oft verið rætt, en nú upp á síðkastið eru þessir tilteknu fréttamenn algjörlega að gleyma sér í ruglinu varðandi þessar fréttalýsingar af veðrinu á landinu !
West Ham United komu og tóku lið á borð við Real Madrid, Arsenal, Man.Utd og fleiri stórlið í skraufaþurran afturendan með kaupunum á tveimur leikmönnum argentíska landsliðsins, þeim Tevez og Mascherano (held þetta sé skrifað svona) ! Wenger, Ferguson, Mourinho, Capello og gott ef Magath er ekki búinn að ræða hann einnig, en allir þessir aðilar eru búnir að vera að hugsa sér gott til glóðarinnar varðandi sérstaklega Tevez. Svo birtis Alan Pardew, stjóri hamranna og nær bara í þá báða ! Er nú búinn að vera að rýna aðeins í þetta dularfulla mál, og sé ég ekki annað en að Roman nokkur Abramovich sé með sínar haugskítugu krumlur í þessu máli. Ef að Tevez stendur sig vel hjá West Ham, þá spái ég því að það séu jafn miklar líkur á því að hann fari til Chelsea næsta sumar, eins og að Hafliði Jósteins verði í framsóknarfélagi húsavíkur það sem hann á eftir ólifað ! Semsagt, skítalykt af þessu máli.
Fórum í fyrstu gæsaferðina um daginn, og brunuðum við bara stutt að þessu sinni og lágum við fyrir þeim við á eina hér í nágrenninu. Mjög hvasst var, mikil rigning og mikill kuldi einkenndi þessa veiðiferð, við sáum 2 fugla og héldum við fyrst að um endur væri að ræða, en komumst svo að því að þetta voru pínulitlir, obboðslega krúttlegir gæsaungar !! Tókum við saman draslið okkar, og héldum heim á leið.
Liverpool seldi til PSV stórstjörnuna Jan Kromkamp (Unnstein), manninn sem himmi segir að sé alltaf, án undantekninga málaður í framan og er ég sammála honum í því, einnig er hann svo garanterað með permanett í hausnum sínum. Mikil eftirsjá er varðandi brotthvarf Kromkamp´s og eru hundruð þúsunda stuðningsmanna Liverpool Football Club búnir að skrifa undir áskorendalista til stjórnar Liverpool þess efnis að Rafael Benitez kveðji Anfield vegna brotthvarfs Kromkamp´s ! Spái því að Jan Kromkamp eigi ekki eftir að geta blautan hjá PSV.
Benni, nýji páfinn okkar, ætlar ekki að halda jólatónleika en jólatónleikar þessir hafa verið undanfarin 12 ár. Ástæðan, er ekki að fíla poppið ! Hann er meira fyrir Bach og Mozart, og því engin ástæða til þess að halda þessum tónleikum e-ð áfram. Tek undir þetta með Benna XVI, ánægður með þetta "múv" hjá honum.
Magni komin áfram í þessum supernova þáttum. Viðurkenni það að ég hef voða voða voða lítið fylgst með þessum þáttum, hef aðra og þarfari hluti að gera en að fylgjast með þessu. En samt ágætis árangur hjá magna og þeir húmoristar sem ég hef hitt undanfarna daga segja sem svo, að þetta sé magnaður árangur hjá magna og hlægja þeir mikið af þessum bröndurum sínum og berst maður við það að kreista fram a.m.k. bros af sama tilefni.
En jæja, ætli ég kalli þetta ekki tíma, best að halla sér fyrir jafnvel golfið í dag. Munið bara að það kostar 0.- að vera kurteis og um leið og þú brosir framan í heiminn, þá mun sólin láta sjá sig, allavega í 101 rvk !
fín sending Stefán

Ęvar Ž.
Eins og ég kom inn á inn á "gifsveggjum" þá er ég enn að þurrka tárin eftir þann fallega lestur og er ég sammála þér a.m.k. varðandi Tevez !
#2
05. september 2006 klukkan 05:40
Annars eru gifsveggir vaknaðir eftir sumarsólstinginn, eigandi ævar.bloggar.is er í guðatölu í fyrsta alvöru blogginu;)