Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Verðum við ekki bara að fara á næstu bílar&sport sýninguna

08. september 2006 klukkan 07:17
Já, þessa setningu heyrði ég nú fyrir skömmu. Hvað er það samt eiginlega ? Veit ósköp vel að smekkur manna á áhugamálum er misjafn en kommon samt ! Sumsagt, þá er þessi sýning haldin held ég 1x á ári og þar koma saman þeir aðilar sem virðast, af einhverjum óútskýranlegum ástæðum, hafa brennandi áhuga á bílum. Þegar ég heyrði þetta hljóma frá einum af "ég elska að hafa glussaolíu á höndunum á mér" strák hér í bæ, hljómaði þetta eins og fyrir mig væri þetta ef fréttatilkynning bærist um það að Liverpool hyggðist halda hérna 1 æfingu á húsavíkurvelli.

En nóg um þetta, skrapp ásamt gudjohni (útlenska þýðingin) í gæs í kvöld og voru nokkrar gæsir sem vöknuðu upp í morgun með sól í hjarta og voru þær sannfærðar um það spái ég að þetta yrði ekki síðasti dagur þeirra í lífinu, en svona er þetta bara. Keypti mér einmitt fokdýra þartilgerða gore-tex hanska í gær, og viti menn, annar hanskinn týndist og ég grét voða voða mikið yfir því en gudjohn tók þá bara utan um mig og sagðist skilja mig og svo sagði hann við mig að hann ætlaði bara að gefa mér ís og þá varð ég bara ofsa ofsa glaður.

Davíð Oddsson hefur aldrei sett sig almennilega inn í þetta Baugsmál að eigin sögn........og ég held að það sé vel hægt, ef maður blakar bara höndunum nógu mikið, að þá komist maður á loft.

Sá Rúnar Ara á röltinu áðan, hann virkaði bara frekar stressaður.

Jæja, er búinn að vera að velta einni spurningu mjög alvarlega fyrir mér, s.l. klukkutíma, hvort ekki væri hreinlega mögnuð hugmynd að fara bara að sofa. En fyrst að klukkan er orðin svona margt, þá skiptir það litlu máli hálftími mínus plús eftir þetta.

Gísli á uppsölum er maður mér að skapi, hvet alla sem vettling geta valdið, að skella viðtalinu sem Ómar Ragnarsson átti við Gísla í vídjóið sitt og horfa og heillast af þessum merkilega einbúa.

Stórleikur um helgina, þegar Liverpool mætir á Goodison Park og mætir þar erkifjendum sínum Everton. Spái Liverpool sigri í þessum leik 0-2 með með 2 mörkum frá Robbie Fowler. (Peter Crouch brennir af a.m.k. þremur dauða dauðafærum, en Benitez hælir samt framlagi Crouch eftir leik).

Er búin að gera svona tjekk-lista, þ.e. yfir þá hluti sem ég þyrfti nauðsynlega að fjárfesta mér í, og eru það eftirfarandi hlutir... 1. Benelli Crio Sport - 2. Sófasett (er að ákveða hvort það verður 3+2 eða þá 3+1+1) 3. Playstation 3 - 4. Tannkrem (hef ekki notað tannkrem eða tannþráð í á þriðja mánuð núna) 5. Vantar tilfinnalega ljósaperu í gestaherbergið/þvottaherbergið en sökum þess hve ég er ofboðslega minnugur hef ég alltaf gleymt því - 6. Eðlu, alltaf verið draumur að ala upp og fæða eðlu, og hefur hún fengið nafnið Gylfi.

Þetta eru svona þeir hlutir sem ég þarf verulega að skoða næstu daga og vikur en ljóst er að e-ð af þessu mun ég fjárfesta mér í fljótlega.

Læt þetta duga í bili og bíð ykkur þeim sem ramba hingað inn þangað til í fyrramálið góða nótt og munið að þegar þið eruð búinn að fara með Faðir Vorið, þá þýðir ekkert að opna augun aftur, því þá er ekkert að marka bænina. (Mamma sagði mér þetta nefninlega þegar ég var 5 ára og hef ég notast við þetta hjá mömmunni minni)

samt djók með tannkremið sko

fín sending stefán

Skrifa athugasemd