Þú ert númer 11 í röðinni
9/11 er sennilega ein af frægari dagsetningum sögunnar. Ég man þetta eins og þetta hafi gerst í gær. Var staddur í bakaríi að kaupa þar brauð og fer heim og ætla á textavarpið og kveiki þ.a.l. á sjónvarpinu en sé bara snjókomu, þ.e. hélt að rúv væri dottið út en svo fer einhver að tala um þetta og þetta var bara orðin staðreynd, búið að fljúga á tvíburaturnanna tvo og eyðileggja þá og u.þ.b. 3000 manns láta lífið. Á meðan er Bin Laden á einhverju kameldýri með lak yfir sér að hampa þeim aðilum sem flugu á turnanna. Til að gera langa sögu stutta í kringum þetta, þar sem ég veit að lesendahópur þessarar heimasíðu eru krakkar m.a. á bilinu 9-13 ára sem engan veginn gera sér grein fyrir þessum hörmungum sem áttu sér stað fyrir já 5 árum síðan er sú að:
9/11 ´01 flugu vondir kallar á World Trade Center.
- Bush var staddur í kennslustofu í 750 manna þorpi í USA að hlusta á krakka lesa upp úr teiknimyndasögum.
- Þessum fréttum var hvíslað í eyra Bush, sem ákvað þó að klára að hlusta á söguna sem einn strákurinn var að lesa upp, enda bókin komin á þann stað sem ekki er hægt að hætta að hlusta, en það var þegar stóri grimmi úlfurinn var við það að fara að borða gríslinganna þrjá.
- Bush hélt blaðamannafund þar sem hann hét því að finna þessa krimma.
-Bush sagði að þetta væri írökum að kenna.
-Bin Laden hló að þessu öllu saman og sagði þetta vera sér að kenna.
-Kofi (þó ekki hænsnakofi) Annan (þó ekki í jólum) sagði bush að leyfa sér fyrst að leita af ástæðum til að fara með byssurnar inn í írak.
-Bush hló bara af Annan og sparkaði í rassinn honum og sagði honum ekki að vera fyrir sér.
-Bush sendi nokkra hermenn til afganistan til að finna bin laden og jafna við jörðu, Bin Laden ekki enn fundist.
-Bush fór þá bara líka, svona í leiðinni, til íraks og ætlaði að finna vonda kallinn hann Saddam
-Saddam átti þá heima í holu og fannst hann þar.
-Saddam neitar ennþá að segja hvað hann heitir í réttinum.
-Einnig segir Saddam að hann sé ennþá forseti íraks.
-Dóri fann sinnepsgas í írak
-Sem kom svo seinna í ljós að þetta var bara venjulegt gasgrillagas sem Ali Kaira Ifzez notaðist við þegar hann grillaði.
-Dóri fór í fýlu og hætti sem utanríkisráðherra.
-Davíð segir að hann og Bush séu bestu vinir, og það sé allt saman skjalfest.
-Í dag er búið að finna Saddam, en Bin Laden spásserar enn á kameldýrinu sínu um lönd afganistan.
-Allir í USA eru hættir að halda upp á Bush.
Spái því samt að Bush nái upp ágætu fylgi aftur, enda frábær stjórnmálamaður.
Hringdi í þjónustusíma Símans ehf. í dag og ætlaði að ná mér í stærri pakka, þ.e. stærri pakka en bara enska boltann, ýtti mjög samviskusamlega á 1 og hlustaði í ca 100sek á leiðinlega tónlist, svo kom einhver elskuleg kona og sagði mér að ég væri nr.11 í röðinni. Ég varð frekar trekktur en skildi það vel, að hagnaður símans væri nú svo lítill hvort eð er að ég gæti bara ekki farið fram á betri þjónustu. Svo leið tíminn og ég var farinn að ókyrrast, var nubblega lengi vel nr.6 í röðinni og var svona við það farinn að ýta á rauða takkann, þegar vinkona mín kom og sagði mér að ég væri nr.4 í röðinni, og ég bara beið og beið og beið, þangað til mér var svarað og þetta ætti að vera komið inn eftir u.þ.b. 10mín sem er magnað auðvitað.
En jæja, læt þetta gott heita í bili og ekki úr vegi að minnast þeirra þrjú þúsund manna sem fórust 9/11 fyrir 5 árum síðan í árásum Bin Ladens á WTC
fín sending Stefán
Sammála þér Höddi, þetta er eflaust vænsti kall ef maður kynnist honum e-ð, auk þess lítur hann bara krúttlega út