Sammála síðasta ræðumanni...þetta er bæði satt og ógeðslega fyndið. Sérstaklega í ljósi þess að sá sem skrifa þetta langaði einu sinni að verða "trukkabílstjóri"!!!! Reyndar er alls ekki langt síðan það var!
Það er aðeins formsatriði að klára þennan leik á brúnni..ætla að vera hógvær og spá 1-3 sigri!
Ţessar helvítis loftbresmur virka ekki rassgat
15. september 2006 klukkan 04:56
Var að spá í að velta fyrir mér hinum ýmsu störfum í næstu pistlum, er búinn að vera að spá í hvað sé skemmtilegast en jafnframt áhugaverðast af öllum djobbunum. Fyrsta sem ég ætla að spá í, er dagur í lífi trukkabílstjóra með 27 ára reynslu af trukkaakstri.
Dagurinn byrjar auðvitað á því að maður vaknar með slefið á olíubornum koddanum sínum, og ennþá í hlýrabolnum sem maður er enn í, eftir 11 daga notkun. Skríður fram og tekur brókina niður úr görninni, (ath-ekki boxerbrók) og labbar af stað í eldhúsið og lagar sér rótsterkt kaffi og tekur sér í hönd fréttablaðið sem þá er nýkomið inn um bréfalúguna, og flettir bara strax í smáauglýsingarnar, og fer í dálkinn "varahlutir" og vekur strax áhuga hjá manni lyfta ein sem verið er að auglýsa en hún er reyndar biluð en "andskotinn hafi það" segir maður og bjallar maður í félagann "blessaður laxi, ert þú að selja þessa lyftu" Jújú, þeir komast að einhverri niðurstöðu og ég rölti út, glaður með afrakstur morgunsins. Svo set ég Scaniuna af stað svo allir krakkar sem leið eiga í skólann líta í átt að "stóra bílnum" og horfa aðdáunaraugum á bílinn og til mín. Ég er 100% meðvitaður um það að ég verð að halda ´kúlinu´þegar krakkarnir stara á mig keyra stóra bílnum, og einbeiti ég mér að því að brosa ekki neitt til þeirra. Kem við á kaffistofunni, þar sem 3 aðrir bílstjórar eru mættir, á þeim tímapunkti er ákaflega mikilvægt að bjóða ekki, endurtek, bjóða ekki góðan daginn heldur rölta bara svalur að kaffivélinni og hreyta því út úr sér að þessi helvítis Michelin-dekk virka ekkert betur en bridgestone dekkin gömlu ! Umræðan er semsagt komin strax út í vörubíladekkin mín, sem er hið besta mál, sötra af kaffibollanum (sem ekki hefur verið þveginn í einhverja 2-3 mánuði) og hristi hausinn yfir þessu nokkrum sinnum áður en ég stend upp og arka út í bíl. Ræsi bílinn aftur og fer að keyra möl, svo bara keyri ég möl og keyri möl og keyri möl allan daginn, heilsa samt öllum öðrum bílstjórum sem aka á ´stórum bílum´. Það er mjög mikilvægt, og helst að horfa með lítillækkandi augum á fólksbíla, jeppar sleppa, og meira að segja heilsa ég líka fólki sem aka um á breyttum ´44 tommu jeppum. Að endingu kem ég við á bensínstöð og fylli helvítið af olíu, fæ mér kaffibolla á stöðinni og stend með kaffibollann upp að vörunum og stari á ´stóra bílinn´minn, svo geng ég út og sparka nett í dekkin á bílnum og upp í hann og áður en ég fer af planinu þen ég flautuna svo allir sjái að ég er að fara.
En já, þetta er dagur í lífi meðal-trukkabílstjóra.
Liverpool tapar fyrir Chelsea á sunnudaginn.
Ætla að taka gæsarúnt í fyrramálið og ef guð lofar, kem ég kannski með 1-2 gæsir heim úr þeim rúnti...ætlum nefninlega að liggja fyrir þeim á lau.morgunin.
Hugsið um smáfuglana
Fín sending Stefán

Ćvar Ţ.
Það yrði ákveðið áfall ef ´Fowlerinn´ setti færri en 15 mörk í vetur.....bara í deildinni !
#3
16. september 2006 klukkan 19:48
Já ég sé þig alveg fyrir mér í þess, þú ættir kannski bara að íhuga alvarlega að gera þetta að markmiði í þínu lífi;)
Góður leikur í dag, bara formstariði var það ekki?

#4
18. september 2006 klukkan 02:55
yndislegur lestur, nákvæmlega eins og ég hefði hugsað það!!
#5
19. september 2006 klukkan 03:29
hehe....trukkabílstjórasaga var nokkuð fyndin....!
#6
19. september 2006 klukkan 18:44
ha ha ha
Ég sá þetta svo vel fyrir mér.
Er líka alveg viss um að þetta er akkúrat sú mynd sem þú hefur haft á þessu starfi lengi, starfinu sem þú sóttist svo eftir og fórst á skólabekk til að geta stundað það:)

#7
22. september 2006 klukkan 03:00
ps. er Fowler sprunginn?
Hilsen