Úrval Gunni
23. september 2006 klukkan 06:05
Verð bara að titla þessar færslur hérna hjá mér með þessum orðum, því ástæðan er svo óeðlilega fyndin !
En já, mikið af fólki dáið, en hellingur af fólki fæðst síðan síðast og ætla ég svona að stikla (þó ekki stiklur með ómari ragnars) á stóru
Arkaði inn á eyri um daginn og varð Geddarinn þess heiður aðnjótandi að fá að bruna með mér inneftir. Tilgangurinn var að bæta í búið. Fékk þá frábæru hugmynd að kaupa mér sófasett eða svona tungusófa einn daginn í vinnunni, varð svo geðveikur að ég hrifsaði til mín næsta bækling sem ég sá og hringdi og ætlaði að panta mér sófasett. 3+2 varð það heillin, og ítrekað hringdi út í þessum svokallaða "póstkröfusíma" ! Fullt af fólki varaði mig við þessum viðskiptaháttum, og sagði mér að ég myndi sjá eftir því að panta mér sófasett án þess að prufa það...ég issssaði það bara og hélt áfram að hringja til þess að panta mér sófasettið en enginn svaraði. Svo dofnaði þessi löngun aðeins, eða ekki beint löngun, heldur dofnaði meira löngunin í að fá sófasettið strax ! Það varð svo úr að í næsta fríi vaknaði ég, eiturhress að vanda og skellti þvottapokanum framan í mig og gróf stýrurnar upp úr augunum á mér og pissaði og svoleiðis áður en ég hélt út á vit ævintýranna, þ.e. náði í Geddarann og við svo keyrðum á 90 km hraða inneftir (ég er nubblega búinn að segja STOPP við þessu aksturslagi sem virðist einkenna landann) og gekk það ferðalag einkar vel. Ég fór í þá verslun þar sem þessi frægi 3+2 sófi var, og prufaði hann, og þakka ég öllu því fólki sem hafði haft vit fyrir mér, því að setjast í þennan sófa, var ekkert ósvipað og að mölva 100 kók-flöskur og tylla sér ofan á þær, slíkur var sársaukinn. Endaði þessi ferð svo með því að ég keypti mér gullfallegan tungusófa sem fer einkar vel í stofuna og er ég, sem gamall iðnaðarmaður, búinn að setja hann upp. Við erum að tala um einhverjar 16-18 þriggja tommu skrúfur þar sem stjörnuskrúfjárnið var notað, þurfti reyndar að bora í fyrir um 6 skrúfum en kallinn sótti þá bara inn í verkfærabúrið sitt, AEG-sjálfvirku batterýsborvélina sína og setti ég þetta upp á mettíma, enda einkar fær þegar setja á saman flókna hluti, sbr svona sófa !
Gæti vel farið svo, að ég skellti inn nokkrum myndum af nýja sófanum hér inn við gott tækifæri og þar getiði séð það að smekkur minn á húsgögnum er ofboðslega frábær !
Benni páfi sagði að múslimar væru fífl og leiðinlegt fólk, e-ð urðu múslimarnri foj yfir þessu og er Benni hvorki meira né minna en réttdræpur hvar sem hann fer að mati einhvers klerks þarna í einhverju múslimaríki. (en klerkur þessi er einmitt með svona alskegg)
En já, talandi um sófakaupin hjá mér, ekki má nú gleyma því að ég keypti mér einnig framúrskarandi hnífapör í sömu ferð, að ógleymdri ristavélinni sem einnig fékk að fljóta með. En rúsínan í pulsuendanum var án alls vafa, daddarada...eldföst mót, svalt að eiga eldföst mót, græjaði svona flókin pastarétt daginn sem ég kom heim, og þurfti ég að nota 3 hellur af 4 á eldavélinni og eru aðeins pro-aðilar sem geta staðið yfir þremur hellum í einu, en maður er nú ekki kallaður "æbbi Hall" fyrir ekki neitt !
En jæja...læt þetta duga í bili og vona að þið farið ofboðslega vel með ykkur um þessa helgi, sem og allar aðrar.
ps Er að fara í okkar margrómuðu gæsaferð austur á land í næstu viku, eða réttast væri að kalla þetta heimahagana, því eins og allir vita er ég fæddur og uppalinn í þistilfirði, n.t.t. í Tunguseli og væri ég að ljúga því blákalt ef ég segðist ekkert vera neitt spenntur yfir þessari ferð. Ætli hún verði ekki með svipuðu sniði og undanfarin ár, þ.e. 60-70 gæsir steindauðar eftir komu okkar þangað

Guli Videkongurinn
Það er greinilegt að það er meira í gangi en kannski sýnist í fyrstu. Menn eru greinilega komnir á biðilsbuxurnar og farnir að draga í búið allt hið nauðsynlegasta til heimilshalds. Maður bara spyr sig hvenær vænta megi tilkynningar um fyrirhugað íslenskt-pólskt brúðkaup!?
#1
23. september 2006 klukkan 15:20
Góð spurning hjá þeim gula!!!
#2
24. september 2006 klukkan 00:57
Ævar Þ.
Það vantar ekki að þið eruð sniðugir strákarnir :)
#3
24. september 2006 klukkan 01:54
gudda sys
hallo elskan ! til hamingju med nyja sófann, verd ad fá ad prufa hann tegar ég kem nast í heimsókn !
atladi bara rétt ad kasta á tig kvedju, bid ad heilsa ollum heima :)
kvedjur úr sólinni á Tenerife ;)

#4
24. september 2006 klukkan 03:08
Íslenskt-pólskt brúðkaup?
Hef ég farið á mis við eitthvað stórkostlegt síðustu daga? Ævar, ég vænti þess að þú segir mér ef eitthvað sé í ganga í kvennamálum hjá þér. Við erum nú einu sinni vinir!!

#5
24. september 2006 klukkan 22:43
Andri Birgiss
Þið félagarni haldið þá kannski bara tvöfallt brúðkaup þar sem mér sýnist þær pólsku vera að tröll"ríða" þessum vinahóp;p
#6
24. september 2006 klukkan 23:45
Hvaða rugl er í gangi? Nú krefst ég skýringa á þessu commenti frá Andra Birgis.
#7
25. september 2006 klukkan 02:30
Ævar Þ.
Var að koma úr bakaríinu og hitti þar engan annan en Johnny Depp. Depparinn eins og ég var farinn að titla hann undir lok samtalsins var bara í hvalaskoðun hérna á húsavík. Svo var magnað að þegar ég var að rölta heim úr bakaríinu þá kom Eva Longoria aftan að mér og spurði mig hvar Íslenskir Sjávarréttir væru til húsa. Gaman að sjá 2 fræga hollywood-leikara á húsavík bara með 15mín millibili. Ég sver að þetta er satt og auðvitað hljóta bara allir að trúa mér í því.
vóóó, fokkk...er ekki bara Grameðla að reka hausinn inn um gluggann hjá mér núna..ætla að fara að leika við hana núna. Blessbless krakkar

#8
25. september 2006 klukkan 13:58
Það að snúa útúr er ekki að útskýra. Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að Andri skrifaði þetta comment hérna. Ég vil útskýringu, sama hvort það sé eitthvað til í þessu eða ekki. Þú hlýtur að geta svarað betur fyrir þig en þetta Ævar.
#9
25. september 2006 klukkan 14:33
Ævar Þ.
Þetta er nú bara einhver léttur djókur hjá köllunum Dagur hlýtur að vera. Þú veist hvernig þetta er þegar slúðurberar bæjarins fara af stað, og held ég að þú hafir oft á tíðum þurft að standa í þeim sporum sem ég hef staðið í undanfarið, þ.e. sporum fórnarlambs slúðurberans.
Ætli þetta stafi samt ekki af því að ég var á leið heim einhverntíman eftir partý og erum við að tala um 8-12 aðila másek, og voru 3-4 pólverjar inn í þessari ´grúppu´. Það er nú öll sagan á bak við þetta held ég, ekki nema sé verið að rugla mér saman við einhver annan.

#10
25. september 2006 klukkan 16:39
Ég stend með Ævari. Það er alltaf verið að brigsla hann um einhver ósköp sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum!
Til hamingju með eldfasta mótið... Ég er einmitt að vinna í að kaupa mér eitt.. Mælirðu með einhverju sérstöku?

#11
25. september 2006 klukkan 17:07
Dagur
Allt í þessu fína. Gott að fá svona mál á hreint. Mitt næsta mál á dagskrá var að hringja í Guðmund Halldórsson og fá hans hlið á þessu máli, en eins og flestir vita þá er hann með öll svona mál á hreinu ;)
#12
25. september 2006 klukkan 18:43
Ævar Þ.
Gott að fá glæsilegt ´backup´ að sunnan :) Man nú ekki af hvaða tegund þessi eldföstu mót eru hjá mér, en þau er ofboðslega sniðug og skemmtileg, mjög gott að vinna með þau.
Jájá, hringdu í Guðmund málara, hann getur eflaust svarað þér í þessu, og ekki láta þér detta það til hugar að það séu einhverjar ýkjur eða e-ð álíka í þeim frásögnum.... :)

#13
26. september 2006 klukkan 06:59
Já Ævar alltaf jafnsaklaus! Borðaðiru aleinn eftir að hafa eldað á þremur hellum?
#14
26. september 2006 klukkan 15:58
Lesandi
Góð spurning Þórdís :)...og svaraðu nú Ævar
#15
26. september 2006 klukkan 17:23
Ævar Þ.
Ég borðaði ekki einn eftir að hafa notast við þessar 3 hellur af þeim 4 sem eldavélin mín (og sennilega bara flestar eldavélar) þar sem í fjölskyldu minni eru miklir matgæðingar og verð ég því að uppfylla ströng skylirði ef ég á að bjóða til matar :)
#16
27. september 2006 klukkan 11:37