Ef ég framleiddi ryksugupoka !
27. september 2006 klukkan 11:25
Þá gerði ég það með það að markmiði að kaupandinn ætti auðvelt með að handleika þá, og þ.a.l. auðvelt með að setja nýja poka í ryksuguna sína ! Pokarnir sem ég keypti mér í gær voru svona svipaðir og ef ég keypti mér bíl án stýris. Allavega, hvað er betra en að eyða heilli kvöldstund í það að barbdúsast með ryksugupoka og reyna að setja þá í ryksuguna hjá sér, en allt og þá meina ég ALLT kom svo sannarlega fyrir ekki. Fleygði ryksugunni og pokanum frá mér eftir talsverða ´reyningu´ og fór að hlusta á mesta dauðarokkið með Manson. Ætla að mæta með ryksuguna og pokana niður í húsasmiðju og láta öþþa sjá um þetta mál, og jesús kristur hvað það verður svekkjandi og niðurlægjandi þegar hann notar í þetta verkefni einhverjar 3-5 mínútur !
Fannst mér best borgið um daginn með kaupum á nýrri byssu, þessi elska kemur frá Benelli, og kallast Comfort
Fyrsta ferðin hennar verður einmitt austur yfir land á morgun, og víst er að þar verður henni ekkert hlíft !
Pabbi hringdi í mig nú um daginn og óskaði eftir því að ég kæmi með honum inn á akureyri, en ég sagði honum að ég því miður gæti það ekki, vegna annasama verkefna hérna á víkinni og afþakkaði annars ágætt boð karls föður míns. Svo var ég tekinn í bólinu u.þ.b. hálftíma seinna þegar hann kom áður en hann fór inneftir og þá var ég á holu nr. 15 St.Andrews vellinum í Skotlandi í Tiger Woods þannig að sá dramatíski málsflutningur minn um að ég hefði bara því miður nóg annað að gera, kolféll þarna í þessari heimsókn föður míns. Þannig að þarna var ég, algerlega varnarlaus þessari heimsókn, búinn að koma mér mjög þægilega fyrir í sófanum eins og norskur skógarköttur og spilandi Tiger Woods. Ég fór því inneftir, og hann þurfti á fund og einhvernveginn þurfti ég því að drepa tímann á meðan, og ákvað því að fara í Ellingsen og ´skoða´ bara einhverja sniðuga hluti. Þegar hinsvegar inn var komið, þá komst ég mjög snögglega að því að þetta var dagur sem ég var sérstaklega áhrifagjarn. Sölumaðurinn náði að sannfæra mig um ágæti þess að versla sér nýja byssu, og lét mig handleika allar byssurnar hjá sér, sem endaði svo með fyrrnefndum kaupum. En sjaldan hef ég gert betri kaup, hugsanlegt að ´Dæjarinn´ minn hérna um árið toppi þessi kaup, en það er sáralítill afgangur af því samt.
En jæja, ætli þetta verði ekki bara síðasta sem almenningur fær að vita áður en ég held í heimahagana austur í Þistilfjörð á morgun(Fæddur þar og uppalinn eins og væntanlega flestir vita). Og þar sem þessar ferðir standast fyllilega utanlandsferðir (nenni ekki að heyra núna "er svona leiðinlegt í útlöndum hjá þér Ævar") þá er nokkuð öruggt að það komi ferðasaga hér inn fljótlega eftir ferðina.
Hafið það bara obboðslega notalegt framyfir helgi og munið að aka eftir aðstæðum og segja Stopp, ég er a.m.k. búinn að því. Enda hef ég aldrei verið mikið fyrir hraðakstur, hef ekki átt neitt sérlega hraðskreiða bíla, Dahaitsu Charade ´88, CarinaE ´97 og síðast en alls ekki síst Nissan Almeru árgerð e-ð. Ég hef aðeins einu sinni gert mig líklegan til þess að vera töff í umferðinni, en það var þegar ég og Gauji ákváðum að spyrna aðeins á Garðarsbrautinni, hér fyrir mörgum árum, þá var ég sko nýkominn á ´dæsa´ (ath - þarna upplifði ég Daihatsu sem mikinn kagga) og hófst spyrnan þar sem Úrval er núna og Gauji á pajero-jeppa föður síns og kemst hann fljótlega framúr mér en ég stóð ´Dæjarann´ flatann, og þegar við komum að Hulduhól, þ.e. annarri hraðahindruninni þá blikka okkur blá ljós og við ´snarhemlum´ og þarna fannst mér þetta bara töff,og tuggði ég man ég 3 tyggjóplötur með miklum ákafa og passaði mig á að horfa mjög svalur í augu annarra ökumanna og gangandi vegfarenda á meðan við Gauji beygðum inn hjá Búrfelli og ætluðum að fara að taka út okkar refsingu. Ég handskrúfa rúðuna hjá mér niður þegar lögregluþjónninn gengur upp að bílnum hjá mér, og vonbrigðin hjá mér leyndu sér ekki, hann sagði orðrétt við mig "Blessaður, þú þarft nú engar áhyggjur að hafa, enginn sérstakur hraði á þér" og kvaddi mig. Coolið sem hafði myndast hjá mér þetta fallega vetrarkvöld á víkinni hvarf sem dögg (þó ekki stefáns) fyrir sólu, og hélt ég heim á leið, og tók hugljúfa kvikmynd með Richard Gere og borðaði ostapopp og drakk kók með. Gauji var sektaður um einhverja summu.
En já og jæja...hagið ykkur semsagt vel í umferðinni sem og allsstaðar annarsstaðar og minnist forfeðra ykkar með þakklæti í huga.
Fín sending Stefán

Ævar Þ.
Þakka þér fyrir kúturinn minn. Ætli þetta verði ekki nema bara kassi þessa ferðina
#2
28. september 2006 klukkan 04:04
Ég á erfitt með að trúa því...nema það sé þá eitthvað sterkt með í för!
#3
28. september 2006 klukkan 16:32
Gunnþór
svalur eins og Frissi Bald!!!!!!!!!!!!!!
#4
29. september 2006 klukkan 00:58
Hvað verða margir kassar með í för??