Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Úrval Gunni

03. október 2006 klukkan 11:40


Jæja, komin heim frá æskuslóðunum, staðnum þar sem maður sleit barnsskónum, minnist þess alltaf þegar ég var við leik þegar ég var yngri, og klæddur í gamla ullarpeysu, í gammosíum við Hafralónsána (á sem rennur djúp og breið (má syngja þetta) gegnum Þistilfjörðinn), og voru leiktækin ekki þau sem nútímakrakkar leika sér að í dag, heldur var um að ræða gærur og sviðshausa. Þá var nú gaman og heilbrigt að vera ungur smaladrengur í sveit. En já @líst, þá komum við heim, þreyttir en ákaflega ánægðir með ferðina.

Fórum af stað, á fimmtudeginum og vorum komnir heim seinnipartinn á Sunnudeginum. Afli ferðarinnar voru 32 gráar og vorum við ánægðir með þann afla, og enn á ný fjölgar þeim svæðum sem við fáum leyfi á, í Þistilfirðinum en alltaf þegar ég bið bændur um leyfi fer ég í "auðmýktar" gírinn og segi þeim frá því að ég eigi nú aldeilis ættir að rekja í þennan sennilega fallegasta fjörð íslands. Svo var það nú sérdeilis magnað á lau.kvöldinu, en höfum við haft þá reglu síðsustu nóttina fyrir austan að fá okkur herbergi á gistiheimili og sötra þar jafnvel 2-3 öllara og varð engin breyting þar á þessa ferðina. Við komum þarna inn, og komum okkur fallega fyrir, störtum tölvunni og skellum inn myndum í tölvuna áður en alvaran tekur við, þ.e. manager-keppnin okkar og þegar ég er að gera mig líklegan til þess að fara í sturtu mæti ég gaur sem er sláandi líkur Jóa B, Jóa græna, eða djódjó eins og hann vildi sjálfur kalla sig á sínum tíma. Fer að ræða við hann um tilgang lífsins o.s.frv. og spyr hann mig svo að því hvort við ætlum ekki örugglega á hafnarbarinn um kvöldið, ég svara því til, að við séum nokkuð þreyttir en ætlum að sjá til, þá svona brosir "jói" og nikkar í átt að sameiginlegri snyrtingu gestanna þarna, og þaðan heyrast stelpuskrækir og brosir "Jói" í átt til mín. Ég svona eins og súper-móngi spyr hann að því hvort sé e-ð ball þar um kvöldið, en þá neitar hann þvi og segir mér að hann sé mættur með 2 stelpur frá Goldfinger og þær séu að fara að dansa þarna í kvöld. Á Þórshöfn á Langanesi !! Ég sem betur fer var ekki búinn að segja honum frá því að ég væri frá Húsavík, þar sem aðal-skemmtikraftarnir í gegnum tíðina væru Johnny King og Sent.

En þetta endaði allavega þannig að við vorum bara heima á gistiheimilinu, og spiluðum Veiðimann bara í stað þess að fara að horfa á einhverjar illa launaðar stelpur frá Litháen dansa utan í kófsveittum, helgröðum einstæðum bændum úr Þistilfirðinum þetta kvöldið.

Skelli inn myndum úr ferðinni hér við tækifæri, en ætla ég að vara viðkævmt fólk við því að það sést blóð á 1-2 myndum, og hvar eru þær annarsstaðar en í andlitinu á mér ! Svalur

til lukku með þær gráu ;) en segðu mér 1 ertu íkorni ?

p.s. hvað er annars að frétta af Valla !? er hann í símanum eða ?
#1
06. október 2006 klukkan 16:33
 
Ævar Þ.
Hehe...jú, var aðeins íkorni um s.l. helgi en hætti svo bara að vera íkorni, en ég stefni aftur að því að vera íkorni fljótlega, en sem stendur er ég ekki íkorni, en ég veit samt um mann sem í dag var íkorni sko ! :)

Reyndi að ná í Valla um daginn, en held að hann hafi skroppið e-ð í laugardalshöllina til þess að sparsla hana, svo talaði hann e-ð um að fara að mála 2 blokkir...ef ég þekki hann rétt, verður hann ekki í vandræðum með það, enda á topp 100 lista yfir langbestu málara landsins ! (reyndar að eigin sögn) ! :)
#2
08. október 2006 klukkan 05:10

Skrifa athugasemd