Okey...Guuunni síminn til þín
13. október 2006 klukkan 22:12
John Bóldvæn sagði frá því að síminn sinn hefði verið hleraður hérna um árið, eða n.t.t. fyrir 10-15 árum síðan ! Hann vildi bara ekki segja frá því strax, taldi betra að segja frá því 2006. Heimskulegt maður !
En jæja, vaknaði upp í nótt og ætlaði mjög líklega að pissa eins og háaldrað gamalmenni, en ´vaknaði´ upp við það að ég var að snerta skjáinn hjá mér, þ.e. að þröngva fremsta hluta vísifingurs á skjáinn. Þannig er nú það að ég vinn talsvert með snertiskjái og má því með sanni segja að ég taki vinnuna með mér heim, enda seint vændur um það að taka ekki til hendinni þegar á mig er kallað ! Er einn af þeim mönnum sem færu aldrei inn á sjúkrahús nema í börum !
Til stóð að snúa einhverjar gæsir úr "the necklæð" í fyrramálið, en sökum þess hve lítið er af gæs, þá var ákveðið að fara bara til Sigga í staðinn og fjárfesta sér í eins og örfáum bjórum og kyngja þeim öllum niður, jafnvel í kvöld. Þannig að því má segja að formlegar gæsaveiðar hjá veiðifélaginu "við erum bestu skyttur í heimi" er lokið. Við taka rjúpnaveiðar á sunnudaginn og þá er nú aldrei að vita nema einhverjir kílómetrar af göngu liggja eftir mann þann daginn.
Liverpool að spila við Blackburn á morgun og nú er orðið ljóst víst að Peter "ég er bæði ljótur og get ekki neitt í fótbolta" Crouch verður í byrjunarliðinu og því er ástæða til þess að óska sér þess heitast að strákarnir úr bítlaborginni nái jafntefli í leiknum. En þær vonir eru svipaðar og þær vonir Ómars og co að hætt verði bara við stjóriðjuna þarna fyrir austan !
En talandi um gæsir, og gæsaveiðar, þá sáum við á einum stað nokkuð sannfærandi magn af gæs í dag og tókum við okkur því til og bárum að dyrum. Til dyra kom maður, sem annaðhvort var nýbúinn að kyrkja konuna sína, eða nýbúinn að fá fregnir um 60-70 milljóna króna víxil sem féll á hann, og buðum við góðan daginn, hann sagði ekki neitt og við gauji svona litum á hvorn annan, og tók ég því á skarið og byrjaði að umla þarna e-ð um hvað veðrið væri gott o.s.frv. og þá vaknaði bóndinn úr þessum "ímyndunargeðveikisheimi" sem hann augljóslega lifði í, og sagði okkur frá því að það væri nú bara allt í lagi, sumarið hefði verið ömurlegt ! Við að sjálfsögðu sammála því og blótuðum sumrinu 2006 í sand og ösku og svo spurði ég hann að því hvað hann væri með margar kýr (heimskur ég að segja ekki rollur) ! því hann sagði engar og tók utan um hurðarhúnin og var að gera sig líklegan til þess að skella hurðinni beint framan á litlu nefbroddana okkar gauja. Þegar gauji spurði hann um gæsirnar á túninu þarna og reyndi að benda á það tún sem gæsirnar voru á, virti túnið ekki viðlits og sagðist meina öllum allri gæsaveiði. Við þökkuðum fyrir okkur og kvöddum, hann sagði ekki neitt ! og skellti hurðinni á eftir sér, og var þá sennilega að fara að klára dæmið með fyrrverandi (þegar þetta er skrifað) konunni sinni !
Er nokkuð klár á því að ef ég tæki mig til og afklæddi mig (ekki æstar stelpur) og tæki þá ákvörðun að ganga nakinn um nunnuklaustur, þá liði mér betur eftir á, en eftir þessa forvitnilegu heimsókn á íslenskt sveitabýli.
En jæja, ætla að fara að setja mig í startholurnar og fara að hengja upp þvott, vaska örlítið upp og setja manson í græjurnar !
fín sending Stefán