Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Liverpool vs Milan - Stjórnarmyndunarviðr.

21. maí 2007 klukkan 14:38
Eftir aðeins 2 daga og 5 tíma ca. hefst leikur Liverpool og Milan í úrslitum meist.deildarinnar ! Ljóst er að þetta er stærsti leikurinn, hugsanlega utan við úrslit í HM, sem leikmenn spila og er spennan að stigmagnast. Samkv. heimsíðu Milan dæmir þjóðverji þennan leik, en sá hefur dæmt nokkra poolara leiki, og hafa Liverpool aldrei farið með sigur af hólmi í þeim leikjum, hinsvegar hefur hann dæmt 5 leiki með Milan, og hafa þeir Milano-menn sigrað þá alla ! Þessi staðreynd fer í "afsökunarbankan" ef illa fer á miðvikudagskvöldið. En samt spái ég auðvitað Liverpool sigri í þessum leik, og stend við það, hvar og hvenær sem er, að Milan liðið í dag, er slakara en það var fyrir 2 árum síðan. Líklegt byrjunarlið að mínu áliti, verður að Reina stendur markið, arbeloa, agger, carra og riise í vörninni, á miðjunni verða þeir Mascherano, Gerrard, Alonso, Pennant og Kewell. Einn frammi verður svo Dirk Kuyt. Ég þykist vita að þetta er nú svona meira þráhyggja, varðandi Kewell en m.t.t. þess hversu öflugur hann er að koma til baka ástralinn, þá sé ég ekki af hverju hann ætti ekki að verða á vinstri vængnum á mið.kvöldið, enda langbesti vinstri kantmaður í heiminum.

Það er auðvitað öllum ljóst að frammararnir voru skildir útundan í umræðum við sjallanna og hafa þeir allir, ef frá er talin kannski Björn Ingi verið að gagnrýna fyrrv. samstarfsflokk sinn allsvakalega, og þung orð látin falla, sbr Guðni varaformaður. Annars las ég það einhversstaðar, að græðgin hjá Ingibjörgu Sólrúnu í völd eru slík að hún sé tilbúinn að beygja sig fyrir öllum áformum Sjálfstæðisflokksins, til þess eins að verða ráðherra í nýrri ríkisstjórn. Á sunnudaginn þurfti ég að skoða nafnskírteinið mitt til þess að vera alveg örugglega klár á því, að ég heiti það sem ég heiti, þegar Hannes Hólmsteinn Gissurason tilkynnti það opinberlega í Silfri Egils að hann væri skotin í Ingibjörgu Sólrúnu. Álit Hannesar í gegnum tíðina á Ingibjörgu hefur verið svipað og upplifun venjulegs manns á rottum. Svo opinberar hann það, í Silfrinu, sem fyrr segir að Ingibjörg Sólrún sé reynslumikill og góður stjórnmálamaður ! Annars er það að frétta af þessum umræðum, þessara flokka á milli, að 2 mál séu að velkjast e-ð fyrir flokkunum, mitt ofboðslega pólitíska nef segir mér það að þau mál séu þá nr.1 Evrópumál, og svo nr.2 Umhverfismál. Það verður einnig skemmtilegt að fylgjast með því hvort sú ósk Ingibjargar rætist, um að leggja niður landbúnaðarráðuneytið, eins og hún nefndi hér um árið. Svo ef hún fær að ráða öðru, þá verður samgönguráðherra úr reykjavíkinni, það nefndi hún einnig fyrir þarsíðustu kosningar (2003). Það vilja margir meina að Framsókn hafi verið haft að fífli í kjölfarið á kosningunum, ég ætla nú ekki að ganga svo langt með þá fullyrðingu, en ljóst er, m.v. upplýsingar frá m.a. Þorgerði Katríni að mig minnir, þá höfðu formenn D og S verið í einhverju símasambandi áður en D og B ákváðu að leggja ekki upp í aðra ríkisstjórn. Guðni landbúnaðarráðherra var með ansi hreint langsótt samsæri í kastljósinu um daginn, sem var skemmtilegt að fylgjast með. Held bara að Guðni sé búinn að horfa á allt-alltof margar sakamálamyndir í gegnum tíðina. Samfylkingarfólk bendir á VG og segir að það sé þeim að kenna, að ekki sé hægt að stilla upp vinstri stjórn í landinu og þeir neita því auðvitað. Það var samt gaman að sjá ljósmynd af þeim Geir og Ingibjörgu á þingvöllum nú á dögunum, þau litu út eins og eldri bóndahjón í einhverjum firðinum þarna fyrir vestan, þetta var í besta falli krúttleg mynd af þeim.

En jæja, ætli sé ekki best að fara að drífa sig í sturtu og syngja eins og 2-3 lög á meðan.

Vangaveltur

16. maí 2007 klukkan 14:32

Kosningarnar búnar og allir sem ekki unnu sannkallaðan kosningasigur, uppskáru gríðarlega flottan varnarsigur vegna blablabla ! Það tapar enginn í kosningum, að mínu áliti töpuðu 3 flokkar kosningunum, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og Frjálslyndir. Núna eru allir reiðubúnir að reima skóna á "hordein", og allir virðast eiga svo auðvelt með að vinna með sjöllunum ! Mín skoðun er sú, að best væri fyrir framsóknarflokkinn að draga sig út úr ríkisstjórn með sjöllunum, og endurskipuleggja sitt innra starf. Þeir þurfa núna 4 ár í það að búa til sannfærandi stjórnmálaafl, svo kosningarnar 2011 verði þeim hliðhollari en nú um helgina. Samkvæmt fréttum skiptast skoðanir manna innan flokksins í 50/50, sumir vilja ótrauðir halda áfram þessu stjórnarsamstarfi, hinir vilja passa þetta og fara í stjórnarandstöðu. Þá stendur valið á milli Samfylkingar og VG. Alltof alltof hart hefur Steingrímur ráðist á sjallanna, til þess að XD fari að spá e-ð í þá. Því spái ég, (veit að þetta er ekkert spádómur um að risaeðlurnar komi aftur) að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking myndi næstu ríkisstjórn, sem yrði gríðarlega stór, teldi einhverja 43 þingmenn ef ég man rétt.

Jæja, best að fara að taka úr vélinni, var nubblega að klára, var með hana á ullarkerfinu, bið ykkur sérstaklega vel að lifa og munið að taka vel ég móti farfuglunum okkar

Ég vissi ekki að þú talaðir svona góða sænsku

11. maí 2007 klukkan 11:44

Þá er búið að minna mann á það að við búum á íslandi ! Fyrir örfáum dögum var ég að týna úr nabblanum mínum kuskið, hérna á pallinum fyrir utan, staddur í sólbaði. Núna er ég klæddur í slydduógeðisveðrabuxurnar mínar og loðfóðruðu úlpuna mína ! Eiríkur Hauks komst ekki áfram í eurovision í gærkvöldi sem er ótrúlegt m.v. hvað flest öll önnur lönd lögðu á það ríka áherslu að komast ekki áfram. En jæja, þýðir lítið að gráta utan í bjössa bónda með það.

Kosningar á morgun og bera allir fjölmiðlar merki þess með gegndarlausum auglýsingum um "allt annað líf" "nýja tíma" "árang áfram - ekkert stopp" "ég er ekki að grínast" "Fagra ísland". Ég verð nú að segja það, svona rétt fyrir kosningar, að ég get með engu móti gert upp hug minn, ég er orðin jafn óákveðin og stelpa að finna árshátíðardress !

Liverpool að kaupa Lucas frá Gremio, landsliðsmann Brasilíu og samkvæmt erlendum miðlum voru flest stórlið í evrópu á eftir kauða. Það er nú reyndar oftast þannig, þegar leikmenn sem koma frá s-ameríku, að flest þessi stórlið, Barcelona - Real Madrid - Bayern - Juventus - Milan - Liverpool - Chelsea - Arsenal eru orðuð við leikmenn þaðan.

Var á bryggjunni áðan, varð þess heiður aðnjótandi að skoða stærsta og besta fiskiskip heims áðan ! Þá er ég að sjálfsögðu að tala um Þórsnes 2, skipið sem náði að laða til sín fyrrverandi videokóng heimsins ! Ég gekk þarna um, líkt og ég væri staddur í hvíta húsinu, slík var virðingin. Samkvæmt heimildum mínum (fyrrv.videokóngur) hefur fiskeríið verið með miklum ágætum. Reyndar er það svo, að þegar sjóararnir eru að segja mér e-ð til um það hvað sé ísfiskstogari, og að þeir séu á netum, en ætli svo á línu, og ætli svo að klára þetta á trolli eða hvað sem þetta heitir, þá gæti ég allt eins verið að botna í því hvers vegna í ANDSKOTANUM RAFAEL BENITEZ ENDURNÝJI EKKI SAMNING FOWLER VIÐ LIVERPOOL !

Var einmitt að komast að því þegar ég kláraði "svo að klára þetta á trolli eða hvað sem þetta heitir". Sko, ég hef lengi haft mikið álit á Rafael Benitez, en þarna gerir hann sig sekan um svo andstyggilega heimskulegan hlut, að traust mitt á þessum stjóra Liverpool hríðlækkaði við þessar fréttir ! Enn á ný, er Fowler rekin á dyr hjá klúbbnum, það er ljóst að áhrif Fowler á liðið er ofboðslegt, þó að margir segi að Gerrard og Carragher séu með Liverpool-hjarta, þá eru þau hjörtu Ískögglar við hliðina á poolara-hjartanu í Fowler. Þessi skrif eru með fyrirvara um það að Fowler hafi hugsanlega sjálfur viljað söðla um, jafnvel á leið til LA og spila þar með Beckham. Hinsvegar, ef þetta er ákvörðun, sem eingöngu er tekin af Benitez, þá er ég verulega svekktur og ekkert annað fjögurra til fimm marka sigur gegn Milan í úrslitunum 23.maí n.k. koma til með friða mig !

En jæja, er á leið á fund hjá "Nigel Worthington" og ljóst er að þetta verður stærsta málið á dagskrá, þ.e. brotthvarf Robbie Fowler, eins merkasta markaskorara í sögu enskrar knattspyrnu frá Liverpool ! Mig langar til að gráta....og ætla að gráta

Næsti pistill hjá mér, verður eyrnamerktur Robbie Fowler, og verður hann í lengra lagi, svo vista ég hann hérna til vinstri á síðunni !

....ætla að fara að jafna mig á þessum ömurlegustu tíðindum sem ég hef lengi fengið

Jæja, 4 dagar í kosningar

08. maí 2007 klukkan 08:05
Það eru margir sammála um það að kosningabaráttan hefur verið dauf. Ekkert action í þessu, og alltof alltof margir umræðuþættir í kringum þessar blessuðu kosningar. Mér verður bara bumbult af öllu þessu áhorfi á þessa þætti. Hvernig er samt staða flokkanna, nú 4 dögum áður en landsmenn endanlega ákveða sig með atkvæði sínu.

Framsóknarflokkurinn
Þeir voru framan af í baráttunni, að mælast með þetta 6-7% fylgi en náðu sér svo upp úr þeim öldudal, sem skilað hefur þeim fylgi upp á ca.10% undanfarið. Forystumenn flokksins hafa svona "hótað" því að ekki komi til greina að starfa í ríkisstjórn, nema fylgi þeirra mælist ca.17-20%. Það eru til aðilar sem reynt hafa að gera flokkinn ótrúverðugan, og hefur Jónínu-málið svokallaða fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikurnar. Ég get bara sagt vegna þess, að ef stjórnarandstaðan (sem væntanlega inniheldur Guðrúnu Ögmunds t.a.m.) hefur ekki meira á ríkisstjórnina að setja, annað en að tengdadóttir Jónínu Bjartmarz hafi fengið sérmeðferð við afgreiðslu íslensks ríkisfangs, þá er lítið út í ríkisstjórnina að klaga. Nú er ég hinsvegar ekki að segja að "ef" rétt reynist að óeðlilega hafi verið staðið að málum, þá er það auðvitað ekki gott mál. En það að taugaveiklaðir aðilar innan stjórnarandstöðunnar, s.s. Sigurjón Þórðarson sem gengið hefur hvað lengst í gagnrýni sinni á þessa afgreiðslu ætli að gera þetta mál að sínu kosningamáli, vegna þess að kannanir sýna hann ekki á þingi eftir kosningar, þá finnst mér þetta dapurlegt. En ég held að þetta mál hafi skaðað flokkinn, reyndar eins og Landsvirkjunarmálið, þegar Jóhannes Geir eðalframmari var settur af sem stjórnarformaður og Páll Magnússon skipaður í hans stað. Það mál hefur nú ekki skaðað flokkinn eins mikið, enda eru margir aðilar innan stjórnarandstöðunnar, sem meira að segja hafa lýst yfir ánægju sinni með ákvörðunina, telja að nánast enginn sé betur til þess fallinn að sitja sem formaður stjórnar Landsvirkjunar, en Páll Magnússon.

Frjálslyndi flokkurinn
Ekkert virðist ganga hjá flokknum, og ljóst er að Margrét Sverris er ekki alveg sú vinsælasta hjá þeim frjálslyndum. Í þessu kjördæmi (NA) er Sigurjón Þórðar ekki inni, og vekur það heilmikla athygli ! Ég fór á hreint alveg grútleiðinlegan fund um daginn hér á víkinni, þar sem frambjóðendur í þessu kjördæmi voru komnir saman til fundar og umræðna, og þó ég geti seint talist hlutlaus í þessu máli, þá kom Sigurjón verst frá fundinum. Hann virkaði bæði bitur og reiður. Þá er ég ekki að meina það þannig að ég fái eftirfarandi comment (já hann er bara reiður útaf ríkisstjórninni!!!) heldur var hann frekar nasty og ómálefnanlegur í sínum flutningi.

Íslandshreyfingin
Ómar Ragnarsson ætlar, eins og ég hef komið inn á áður, að stytta bílanna okkar, setja alþjóðaflugvöll á vestfjörðum, græja eldvígsgarða út um landið og fleira og fleira. Það sem hægt er að segja um Ómar, er það að hann er samkvæmur sjálfum sér, hann er í þessu vegna hugsjóna sinna um að aldrei megi traðka á græunum blett í framtíðinni. Bæði íslandshreyfingin og VG hafa enn á ný óskað eftir umhverfisumræðu, en sú umræða hefur tröllriðið þjóðinni undanfarna mánuði og nú mega aðrir hlutir komast að. Þeir eru auðvitað nýliðarnir í hópnum, og þurfa því oft að senda í umræðuþætti sem eru í beinni útsendingu, reynslulítið/laust fólk sem hefur átt erfitt með að svara spurningum sem snúa að öðrum málum en umhverfinu. Það er svosem ekkert skrýtið ef út í það er farið, flokkur og flokksmenn hafa kannski ekki náð að "aðlaga sig" að stefnuskrá flokksins, sem er auðvitað ekki fullunnin svona örfáum dögum fyrir kosningar. Nokkrum dögum eftir að Margrét kvaddi frjálslynda sagði hún frá því að fljótlega yrði tilkynnt um nýtt stjórnmálaafl. Ef það hefði verið rétt hjá henni, að þeir hefðu kynnt sig fljótlega eftir það, væri árangur þeirra máske skárri í könnunum. Nýjasta slagorð hreyfingarinnar, er Ómar Ragnarsson og textinn "Ég er ekkert að grínast" og í baksýn er landslag íslands. Svo tók hann dæmi um einhvern foss sem hefði drukknað nú um daginn. Ég sá nú mynd af þessum umrædda foss, og svaf bara með miklum ágætum nóttina á eftir.

Samfylkingin
Eru að rífa sig upp á við í könnunum, og eru búnir að kynna sannfærandi pakka (Unga ísland - Fagra ísland - Frjóa ísland svo dæmi séu tekin) um ýmis málefni. Ingibjörg Sólrún er, eins og ég hef komið inn á áður, hætt að hlægja hrokafullum hlátri í beinum útsendingum þegar stjórnarliðar eru að tala, það fer henni ágætlega. Hún og samfylkingin tala með þeim hætti að allt sé á endastöð komið, ef samfylkingin fær ekki umboð kjósenda til þess að mynda starfshæfa ríkisstjórn. Mér fannst hún nú reyndar komast vel frá "Jónínu-málinu". Eyða á öllum biðlistum sem fyrirfinnast á undarverðum tíma, talað er um að eftir 1 og 1/2 ár, verði aldraðir komnir í glæsileg mál, varðandi húsnæðisvanda. Það vill nú svo til, að þegar R-listinn var og hét, þá var hann af einhverri ástæðu kallaður Biðlistinn.

Sjálfstæðisflokkurinn
Mælast gríðarlega sterkir og eru í könnunum yfir 40%, og greinilegt að þeir mæta sterkir til leiks n.k. laugardag. Formaður flokksins og varaformaður mynda traustvekjandi tvíeyki greinilega. Skemmtileg tilviljun, að þegar sjallarnir í suðurkjördæmi auglýsa fundi o.s.frv. er oftar en ekki mynd af fólkinu sem efst er á listanum hjá þeim. En alltaf er einn skilinn útundan og er það ljótt að skilja fólk útundan, spái því að allir þeir sem nú þegar eru búnir að giska, hafi rétt svar. Hann er alltaf skilinn eftir, Árni nokkur Johnsen ! Ætli það sé að beiðni Geirs Hilmars Haarde ? Veit ekki, en ljóst er að þessi hressi kall sem oftast nær hefur verið andlit sjálfstæðisflokksins í aðdraganda kosninga, fær ekkert að tjá sig fyrir framan cameruna. Árni reyndar, fékk að spjalla málin við Bjarna gorm á Litlu kaffistofunni um daginn. En allavega, þá virka sjallarnir sterkir sem aldrei fyrr og virðast, m.v. fylgið í könnunum, og þeir sem búnir eru að stjórna hérna í ein...hvað 16 ár ! Hvað gæti þetta þýtt ? Ánægja með störf flokksins eða hlægilega slök og léleg stjórnarandstaða. Það er reyndar vandræðalegt fyrir stjórnarandstöðuna að skjóta fast á sjallanna svona í aðdraganda kosninga, ef vera skyldi að þeir vildu fá að vera með í ríkisstjórn, ásamt Haardenum.

VG
Eru að dala í könnunum, enda líka held ég að það hafi verið farið að fara i taugarnar á fólki, þegar Steingrímur frændi minn, Ögmundur og fleiri innan VG voru farnir að tala eins og ráðherraembættin væru jafnlíkleg og að morgundagurinn rynni upp. Svo hefur þessi gríðarlega umhverfisumræða þjaðnað niður og samhliða því, hefur fylgi þeirra mælst minna. Ég ætla að spá því að VG fái ca.14% í kosningunum, sem er nú mjög gott m.v. kjörfylgi þeirra, sem eru rétt um 8%.

Niðurstaðan
Umræðan undanfarnar vikur hefur verið leiðigjörn, og ljóst er, að aðeins 2 flokkar vilja umsvifalaust setja stopp á stóriðjuáform, sem m.a. fyrirhuguð eru hér á bakka við húsavík. Að öðru leyti, ef öllum svona "almennum" áherslum og stefnum flokkanna yrði blandað saman og fólki yrði réttar þær áherslur, þá væri ekki hægt að eyrnamerkja þær ákveðnum flokki. Svo líkar eru margar af þessum tilllögum og áherslum. Svo er einnig athugavert hversu slæma útkomu framsóknarflokkurinn er að fá í könnunum. Það er það sem ég skil ekki, m.v. góða útkomu samstarfsflokksins, Sjálfstæðisflokksins. Ég veit vel um þennan frasa, "allir samstarfsflokkar sjallanna blæða fyrir samstarfið, en fyrr má nú aldeilis vera. Framsóknarflokkurinn hefur fengið alltof stóra sneið af gagnrýniskökunni, á meðan sjallarnir hafa sloppið vel við hana, það gæti stafað að því að framsókn liggur vel við, því framsókn er auðvitað á miðjunni, þegar kemur að þessu fræga, pólitíska litrófi. Á meðan sjallarnir eru til hægri og því auðveldara fyrir þá samfylkinguna og jafnvel VG að ná í fylgi til framsóknarflokksins. Það sem einnig vekur athygli er að Jón Baldvin, fyrrv. leiðtogi vinstri manna á íslandi, getur ekki sagt það hreint út hvað hann ætli að kjósa, og sagðist meira að segja hafa velt því fyrir sér, að ganga til liðs við Ómar og Margréti. Það er augljóst að eitthvað hefur kastast í klekki á milli forystumanna samfylkingarinnar, og Jóns Baldvins því hann hefur verið við það iðinn undanfarið, að skrifa gagnrýnar greinar um Samfylkinguna.

En þetta kemur allt saman í ljós á laugardaginn. Spurning bara hvar maður setur x-ið sitt.

Það var og...

06. maí 2007 klukkan 07:43
Liverpool og A.C. Milan mætast í úrslitaleik meist.deildarinnar 23.maí n.k. Þetta varð ljóst eftir að Manchester menn mættu til Mílanó til þess að versla sér föt og skartgripi. Svo droppuðu þeir við á San Síró til þess að skíttapa fyrir heimamönnum 0-3 ! Menn hafa verið að gleyma sér í fagnaðarlátunum yfir Milan, þeir hafi verið svo ofboðslega sterkir o.s.frv. ! Málið er að mínu mati hafi þetta Milan-lið ekkert verið svo sérstakt. Ef við tökum t.d. bara varnarlínuna hjá þeim í þessum leik vs varnarlínuna hjá þeim í úrslitaleiknum 2005 þá er sá samanburður svolítið sérstakur. Varnarlínan hjá þeim núna, innihélt hinn hörmulega lélega Massiom Oddo, Alessandro Nesta var þarna reyndar líka, sem er mjög góður. Svo voru þeir Kaladze og Jankulovski, en árið 2005 var línan Cafu, Nesta, Stam og Maldini ! Einhverntíman hefði stórskotalið Manchester, með þá Rooney, Ronaldo Giggs og Scholes t.d. klárað jafn auma varnarlínu, en sú varð nú aldeilis ekki raunin í þetta skiptið. Milan liðið var bara númeri of stórt fyrir United. Djöfull sem þetta var lélegt hjá United. Því að úrslitaleikur á milli Liverpool og Manchester hefði auðvitað verið mun skemmtilegri og meiri stemmning hefði myndast, svo ef mið er tekið af því hversu marga stuðningsmenn liðin tvö eiga a.m.k. hér á landi. En auðvitað voru þarna heimsmeistarar í Milano liðinu, því eins og velflestir vita eur Ítalir heimsmeistarar í greininni og kom það kannski í ljós þarna. United menn voru smeykir fyrir þennan leik og sögðu frá því grátandi að jafnvel yrðu þeir ekki með, Ferdinand og Vidic. Rio Ferdinand var á bekknum en þessi Vidic spilaði leikinn og átti hann hörmulegan leik. Það sem vakti athygli einnig í leiknum, var hversu frábærlega Kaká spilaði í leiknum, Cristiano Ronaldo sást ekki í leiknum og ljóst er að þarna er leikmaður sem ræður augljóslega ekki við að spila undir álagi. Það eru svona 100% líkur á því að hann verði seldur til spánar innan 2ja ára og spilar þar í 5-6 ár, áður en hann söðlar um á nýjan leik og fer til Inter eða Lazio.

Það er ljóst að m.v. þann metnað sem Alex Ferguson á að hafa, þá skilar hann sér ekki í stærstu keppnina, þ.e. meistaradeildina. Því aðeins einu sinni hafa þeir orðið evrópumeistarar undir hans stjórn, eða frá 1986 ! Það var ´99 þegar United vann heppnissigur á Bayern Munich og jöfnuðu þeir þá Nottingham Forrest í titlum talið í evrópukeppninni. Á meðan 13 ár liðu frá því að Ferguson tókst að landa evróputitlinum, er hægt að telja tímann í nokkrum vikum, þegar spurt er um það hvað það tók Rafael Benitez langan tíma að koma heim með stóra dollu. Svo vita auðvitað allir að það tók Ferguson 7-8 ár að færa þeim englandsmeistaratitilinn. Ég held að nú hafi verið tækifærið fyrir Ferguson að updeita evróputitlasafnið sitt, en fyrst það tókst ekki núna, verður hann að horfast í augu við þann veruleika þegar hann hættir og eldist enn meira, að honum tókst ekki að sigra þessa stærstu keppni knattspyrnunnar nema 1 sinni á þá hvað....21 ári+ sem er auðvitað ekki nægjanlega góður árangur fyrir stóran klúbb.

Ég sagði nú frá því einhversstaðar að ég ætlaði mér að endurskoða spá mína fyrir úrslitaleikinn og ætla að gera það núna. Ég spái því að Liverpool verði í sjötta skiptið "Kings of Europe" eftir tæpa 20 daga. Þetta verður mun auðveldara en fyrir 2 árum. Ætla að spá því að hann fari ekki í framlengingu, heldur klára poolararnir þetta í venjulegum leiktíma 2-1. Það verður Steven Gerrard sem skorar fyrr mark Liverpool og Harry Kewell það seinna, úr vel tekinni aukaspyrnu. Knattspyrnumaðurinn frábæri Gillardino skorar mark þeirra Milano-manna. Það er ljóst að um erfiðan leik verður að ræða, enda eins og fyrr segir, inniheldur þetta Milan-lið nokkra heimsmeistara, en ég hef ákveðið að snúa spánni hjá mér við, og spá mínum mönnum sigri í leiknum.

Aðeins til þess að klára þetta, þá hefur það verið frábært að hitta Manchester menn undanfarið, og hvað þá að sjá skrif eftir þá. En um leið hefur þetta máske verið sorglegt, því þeir auðvitað héldu að þeir styddu besta lið í heimi á tímabili, en Milan-hraðlestin þaggaði niður í þeim svo um munaði. Það er a.m.k. ljóst að ekki verða þeir "Kings of Europe" !

Liverpool vs ?

02. maí 2007 klukkan 10:23

Jæja, kemur í ljós í kvöld hvort það verður Milan eða Man.Utd sem verða evrópumeistarar 2007, eftir að Liverpool komst í úrslitin í annað skiptið á þremur árum í gærkvöldi. Leikurinn magnaður, glæsilegir stuðningsmenn Liverpool á Anfield sem gerðu útaf við þessa ömurlegu leikmenn Chelsea. Núna er 3 leikmenn í Chelsea sem ég mun einbeita mér að því að þola ekki á næstu árum. Leikmennirnir eru John Terry, en Terry er orðinn einn af ömurlegri knattspyrnumönnum heimsins. Það að heimski Steve McLaren hafi valið hann sem fyrirliða Englands er honum til háborinnar skammar, enda verður hann ekki í þessu stjórastarfi lengi spái ég. Næsti stjóri englands mun hinsvegar gera það að sínu fyrsta verki að rétta Steven Gerrard fyrirliðabandið um leið og hann hrækir í átt að Terry. John Terry er orðin meiri "vælari" en C.Ronaldo ! Ef það er brotið á leikmanni Chelsea, þá er þessi nöturlegi leikmaður fyrstur á svæðið til þess að heimta spjald á leikmanninn o.s.frv.o.s.frv. En já, ætla ekki að eyða þessum pistli alfarið í John Terry. Næsti leikmaður er Didier Drogba ! Drogba gæti mjög líklega tekið þátt í sterkasta manni heims, en um leið og einhver nálgast hann fellur hann niður og heldur um hnéð á sér og grætur og lætur mann halda það að þetta sé hans síðasta. Svo er hann auk þess mikill vælukjói. Þriðji í röðinni er Frank Lampard. Það er svo fáránlegt hvað allir eru að tala um hvað hann sé góður, hann er búinn að vera spila örlítið yfir getu undanfarin ár, en hefur nú á þessu tímabili sýnt hvað í hann er spunnið, þ.e.a.s. alls ekki neitt. Hann er semsagt ofmetinn og "dirty player" verð ég að segja, svo eru endalausar vangaveltur um það hvort hann sé ekki að fara til Barcelona ! Fáránlega heimskulegar vangaveltur.

Það sem hinsvegar er staðreynd er það, að á síðustu 3 árum, hafa Liverpool komið sér í úrslitaleik meist.deildarinnar tvisvar sinnum. Í þessum útsláttarkeppnum hafa þeir slegið út m.a. Barcelona, Juventus, Chelsea(2x) og Milan ! Frábær árangur hjá frábærum knattspyrnustjóra Rafael Benitez og ljóst er að árangur hans í þessari keppni er hreint út sagt, stórkostlegur ! Núna erum við komnir í úrslit og mætum þar annaðhvort Milan eða Man.Utd. Ég tel líkurnar á því að Liverpool hampi titlinum 23.maí n.k. verulega litlar, enda 2 frábær lið að keppa í kvöld. Til þess að rökstyðja það, þá er auðvitað ljóst að ef Milan slær United út í kvöld og mæta Liverpool, verða þeir ekki búnir að gleyma því sem gerðist fyrir 2 árum. Svo er líka ákveðin biturleiki í þeim vegna frádrátt á stigafjölda á ítalíu, og mun það efla leikmenn liðsins þegar komið er í úrslitaleikinn gegn Liverpool. Ef hinsvegar leikurinn í kvöld fer þannig, eins og ég spái, að Man.Utd taki hann, þá er United auðvitað mun sigurstranglegra lið í úrslitaleiknum. Þá er nóg að horfa í úrslit liðanna undanfarin ár og sjá þar að United fær þar + í kladdann. Ótrúlegur sigur þeirra í 8-liða úrslitum gegn Roma er einnig hrollvekjandi fyrir önnur lið að búa við, sem mæta þeim í úrslitum.

En glæsilegur árangur Liverpool engu að síður staðreynd, tvisvar sinnum á þremur árum í úrslitum meist.deildarinnnar og með 50% vinningshlutfall í þeim úrslitaleikjum !

En varðandi einstaka leikmenn Liverpool í gærkvöldi, þá kom það mér á óvart hvað Zenden var ágætur í leiknum. Steve Finnan er auðvitað að sanna sig enn á ný sem besti h.bakvörður í heiminum. Jamie Carragher og Daniel Agger mynduðu sterkt miðvarðapar, og ljóst er að þeir eru búnir að fylgjast vel með því sem miðvarðakóngurinn á Anfield hefur kennt þeim, Sami Hyypia ! Riise átti ágætan leik. Miðjan var nokkuð öflug, með þá Mascherano sem sinn besta mann, það að West Ham hafi ekki notað hann er með ólíkindum og ekkert skrýtið að Eggertinn hafi losað sig við Pardew m.t.t. þess. Jermaine Pennent komst ágætlega frá þessum leik, sýndi oft á tíðum fína takta. Steven Gerrard, ásamt fyrrgreindum Mascherano dróg vagninn eins og sönnum fyrirliða sæmir. Peter Crouch var svipaður og hann hefur verið, skoraði ekki mark í leiknum. Dirk Kuyt brenndi auðvitað af gullnu tækifæri í framlengingunni eftir að Guð Álmáttugur (sem þá var nýkomin inná) lagði upp það færi fyrir hann. Það er auðvitað svo, að auðvelt er að segja að Pepe Reina hafi verið maður leiksins, en ósanngjarnt þykir mér að taka ekki þá leikmenn 2, Gerrard og Mascherano, og setja þá í pott ásamt Reina og draga um það hver var MOM.

Læt þetta duga í bili og spái United sigri í kvöld 2-3 í skemmtilegum leik, spái því reyndar að Ronaldo fái gult fyrir leikaraskap, sem þýðir að hann verði í banni í úrslitunum.

Meðbyr

29. apríl 2007 klukkan 15:40
..já, ákvað að setja hérna niður örfá orð á meðan ég ber á mig sólarolíuna til þess að bruna út á pall aftur.  Held að það sé óhætt að segja sem svo að veðrið hérna á víkinni í dag, og í gær sé með besta móti. Búinn að liggja á pallinum í dag og sóla mig, ef frá er talinn klukkutími áðan, þegar ég fylgdist með frambjóðendum í NA-kjördæmi tala á RÚV. Ég er eiginlega komin með örlítinn leiða af þessum fundum öllum, á stöð2 og svo á RÚV. Það er ekkert nýtt sem kemur fram en alltaf eru allir sammála um hin geysi mikla meðbyr sem þeir finna fyrir. Er alltaf að bíða eftir að t.d. bara Jón Jónsson í einhverjum flokki segir, þegar hann er spurður um það hvernig kosningarnar og kannanarnir leggist í hann, og svarið verði þá "Já, mér líst bara ekkert á þetta. Ég hef ekki fundið fyrir neinum meðbyr undanfarið en allur sá byr virðist hafa farið til hinna flokkanna". Sá Ómar Ragnars um daginn í svona viðtali á RÚV og hann má eiga það hann Ómar, að hans hugmyndir eru býsna skondnar og setja þær aukið skemmtanagildi í þessar annars venjubundnu umræður. Ef að skoðanir manna eru einhverntíman krúttlegar, þá fær Ómar þann + hjá mér. Búa til eldvígsgarða, íbúðabyggð á lönguskerjum, alþjóðaflugvöll kannski í súðavík, hafa bara stutta bíla o.s.frv.o.s.frv. En það er eitt sem mér hugnast barasta alls ekki við þá hjá íslandshreyfingunni, en það er Jakob Frímann !

Manchester United er svo gott sem búið að tryggja sér englandsmeistaratitilinn, og ég get alveg sagt það hér, þrátt fyrir að ég þurfi að gráta því frá mér hérna, að þeir eru sæmilega vel að þessum titli komnir. Sá það áðan að ofmetnasti stjóri englands, Sam Allardyce, eða Big Sam sagði af sér stjórastöðunni hjá Bolton. Hann er eins og allir vita, búinn að gráta úr sér augun eftir að hafa ekki verið valinn sem landsliðsþjálfari englands þegar McLaren var ráðinn. Mínir menn töpuðu fyrir Portsmouth í gær, enda með hálfgert varalið inn á, enda stór leikur á þriðjudaginn.

Jæja, horfi út um gluggann og sé bara 22 gráðurnar úti og ætla að fara að leika mér við þær. Vona svo innilega að það sé rigning fyrir sunnan.

Er í s-inu mínu

24. apríl 2007 klukkan 09:34
Já, get hreinlega ekki hætt að krota hérna þessa dagana ! Vaknaði óvenjusnemma í morgun, og hef raunar gert það alla morgna síðan á skírdag. Þetta lýsir sér þannig að ég vakna upp, kvalinn af sársauka hvurn einasta anskotans morgun og vorkenni sjálfum mér alveg helling og stundum græt ég. En nú er það rófubeinið maður, nú er það rófubeinið. Þessi aukatími á morgnanna sem skapast, vegna svefnleysis hef ég notað til þess m.a. að horfa á allskyns bíómyndir og þætti. Einnig hef ég spáð í þá hluti sem mér finnst skemmtilegir, og hvaða hlutir það eru sem mér finnast leiðinlegir. Ég er þeim kostum gæddur að mér finnast fáir hlutir leiðinlegir. Það er t.d. eitt sem mér finnst alltaf hálfvandræðalegt, en það er hlutur sem maður á að læra strax á eftir því að hafa lært að reima skó, en það eru áttirnar.

Mér finnst t.d. leiðinlegt þegar ég spyr einhvern hvar þessi staður er, og svarið er "jú, ef þú keyrir eftir þessum vegi og ferð austur fyrir þetta hús þá sérðu hringtorg og keyrir svo í norður eftir það" Þessum leiðbeiningum svara ég játandi eins og ég sé upphafsmaðurinn af áttavitum. Ég geng því í átt að bílnum skælbrosandi eins og vandamál mín séu úr sögunni ! Þetta kemur líka fyrir þegar ég stunda veiðar t.d., nú ætla ég að draga Gauja niður í "ég-kann-ekki-á-áttavita" svaðið með mér, því hann kann heldur ekkert á áttir. Það getur komið sér illa, eins og gerðist s.l. haust þegar við fórum austur á land í ættaróðalið mitt, n.t.t. í þistilfjörð. Við spyrjum frændur mína að því hvar gæsirnar hafa haldið sig síðustu daga, og svarið er undantekningarlaust sagt frá í áttum. "Það hefur þónokkur gæs verið hérna á einu af túnanna vestan við fjárhúsið ! Já er það segir maður, svo reynir maður að klóra í bakkann þegar maður stendur í dyragættinni og bendir í átt að fjárhúsinu og segir "ertu ekki örugglega að meina þarna hinum megin". Þá horfir frændi í átt að fjárhúsinu og svara "þarna vestan við". Þá svörum við "jájá, einmitt, það er bara gott að vera viss". Svo auðvitað tökum við sjensinn á einhverju túnanna þarna næsta dag á eftir (þarf varla að taka fram að við höfum fyrsta daginn ekki haft neinn tíma til þess að kanna svæðið sjálfir), og förum ekki á túnið vestan megin við fjárhúsið. Svo förum við í kaffi eftir flugið og bóndinn spyr okkur hvort við höfum ekki verið á túninu sem hann benti okkur á. Við svörum því til að við höfum verið á því túni sem var næst ánni. "Nú, voruð þið á því túni, túninu sunnan megin við hesthúsið."

Semsagt, skil ekki af hverju fólk getur ekki bara t.d. í þessu tilviki notað vinstra megin og hægra megin við fjárhúsið, eða ofan eða neðan við fjárhúsið. Samt skil ég alveg veðurfréttir sko. Eina skiptið sem ég get staðið stoltur og svarað því hvar ég bý, þá svara ég eitursvalur "suður í góla".

En svo eru auðvitað fullt fullt af hlutum sem ég er verulega klár í. Ég kann t.d. á helling af kerfum í þvottavélum, veit hvað stafirnir standa fyrir o.s.frv. Veit það líka, að ef þú notar ekki brauðskorpu í púðurskykurinn þá harðnar hann fljótt og verður þ.a.l. ónothæfur fljótt, það getur skapað vandamál ef þú hyggst fá þér ljúffengan morgunverð, t.d. súrmjólk með morgunkorni. Svo er ég einnig annálaður fyrir það að geta komið ótrúlegustu keðjum fyrir aftur á hjólum, hver hefur ekki lent í því að keðjan detti niður fyrir gafflanna og átt í erfiðleikum með að koma henni aftur á ! Ég er það fær í því, að ég treysti mér í það verkefni með lokuð augun. Það þarf auðvitað ekkert að nefna það hér enn einu sinni, að þingeyjarsýslan öll skelfur og nötrar af gleði ef ég tek upp kökukeflið og desilítramálið. Svo er ég mjög fær í að stilla sjónvarpsstöðvar inn á sjónvörp, mamma t.d. hefur oft hringt í mig og beðið mig um að stilla fyrir sig sjónvarpið. Ég að sjálfsögðu mæti og læt þetta líta út eins og ég sé að fara að búa til geimfar en læt mér fátt um finnast þegar hún þakkar mér endalaust fyrir að hafa bjargað þessu fyrir sig, og kemur fyrir að hún launar stráknum með kók og töggu.

Þannig að eins og sjá má, eru þeir hlutir sem ég treysti mér nánast óteljandi þrátt fyrir örfáa veikleika, sbr. áttirnar.

En jæja, læt þetta nægja að sinni og varðandi leyndarmálið með púðursykurinn og brauðskorpuna, þá tek ég ekkert fyrir það.
 

Ljóskan í menntamálaráðuneytinu !

23. apríl 2007 klukkan 14:31
Það er auðvitað kristaltært að það er jafn líklegt að það sé þriðjudagur á morgun eins og að vinstri sinnað lið myndi fara hamförum yfir orðum, þá bara...hhmm Davíðs Oddssonar ef hann talaði um Ingibjörgu Sólrúnu sem ljóskuna þarna í formannssæti samfylkingarinnar ! Þannig er nubblega mál með vextina sína að John Bóldvæn fyrrv. leiðtogi vinstri manna á íslandi var staddur í þætti Egils Helgasonar á stöð2 í gær þar sem hann lét þessi orð falla um Þorgerði Katríni Gunnarsdóttir (konu Kristjáns Ara) menntamálaráðherra. Ég sé í sjálfu sér ekkert að þessu, en ljóst er, m.v. það þegar Geir Hilmar Haarde talaði um sætustu stelpuna á ballinu þá létu vinstri menn það líta þannig út eins og Geir hefði framið fjöldamorð ! Mér fannst heldur ekkert að því þá, og heldur ekkert að þessu. En m.v. orð þessa foringja vinstri manna, þá hljóta feministar landsins að mótmæla þessu orðalagi Jóns Balvins.

Annars er fátt að frétta, tæpir 20 dagar í kosningar og samfylkingin með nokkur sannfærandi slagorð "unga ísland" "fagra ísland" og svo e-ð í sambandi við eldri borgara. Lítur allt voða voða fínt út, og hafa þeir verið að mælast yfir 20% undanfarið enda hlaut að koma að því. Kosningasjónvarp, bæði á rúv og stöð2 hafa verið fyrirferðamikil undanfarið og kemur því ekkert til með að linna neitt þangað til búið er að kjósa. Finnst ágætt afþreying að fylgjast með þessum þáttum en eitt þykir mér þó vera leiðigjarnt við þessa þætti. Það eru stjórnendur þáttanna, þeir virðast ekkert ráða við fólk sem grípur frammí fyrir hvort öðru endalaust. En já, samfylkingin virðist vera að rétta úr kútnum eftir frekar slakt gengi undanfarnar kannanir. Það er spái ég m.a. vegna þess að Ingibjörg Sólrún er hætt að hlægja hæðnishlátri af öðrum flokkum, og hætt a.m.k. í bili að tala með hroka og yfirgang. Fylgi við VG er að dala, enda held ég að þegar t.d. Guðríður Lilja, Andrea Ólafs og Sóley Tómasdóttir koma í umræðuþætti þá reita þær fylgið af vg með mjög svo öfgafullum skoðunum sínum á mönnum og málefnum.

Framsókn virðast vera að rétta örlítið úr kútnum, en eru ennþá langt frá kjörfylgi þar sem þeir náðu að ég best man, rúmlega 18%. Frammararnir eru búnir að eyða mestum pening í auglýsingar samkv. gallup. Enda er mig farið að dreyma Jón Sig í sundlaugum, reyndar tók ég eftir því, sem gamall sundgarpur, að Jón kann augljóslega tökin á þessu.

Nýjasta tromp frjálslynda er Grétar Mar, hef tekið eftir því að Magnús Þór sérstaklega er ánægður með sinn nýjasta liðsmann, hampar honum í hástert fyrir framlag hans á ísafirði nú um daginn, og svo aftur núna á sunnudaginn eða laugardaginn á rúv. Eitt mega þeir eiga, þeir frjálslyndu, en það er það að þeir ná að snúa spurningum um bara allt annað en sjávarútvegsmál, einmitt upp í sjávarútvegsmál á 3-5sek. Spurningin er borin fram, segum bara "Hvað finnst þér að betur eigi að gera fyrir fatlaða einstaklinga", þeim Sigurjóni, Magnúsi, Jóni og þá Grétari gætu snúið þesssari spurningu upp í kílóverð á steinbít á já, ca. 5 sekúndum !

En já, læt þetta nægja í bili, þessi færsla var búin til fyrir Dag Svein :)