Það er best ég svari kallinu
En já, hef talsverðar áhyggjur af Liverpool. Þeir hafa tekið það upp hjá sér að spila leiðinlegan fótbolta nú upp á síðkastið, eina jákvæða við það er að þetta er svipaður fótbolti og þeir spiluðu í aðdraganda úrslitaleiks meist.deildarinnar 2005. Sá reyndar ekki leikinn í gær, en sá sem spilar víst alltaf svo ofboðslega rosalega vel fyrir liðið skoraði 2 mörk. Man.Utd tapaði stigum í gær, hefðu svo auðveldlega getað tapað 3 stigum, ef dómarinn hefði farið eftir reglum í lok leiks þegar M´boro átti að fá vítaspyrnu. Annars hlýtur það að vera geysilega pirrandi að tapa fyrir M´boro, leiðinlegasta og óáhugaverðasta liðið í deildinni þetta seasonið.
Allt að gerast í pólitíkinni, Ómar Ragnarsson ætlar að fljúga frá einhverjum firði á vestfjörðum til útlanda. Sé þetta fyrir mér þegar maður pantar sér flug, og valið er "frá" A) Reykjavík/Keflavík : B) Akureyri : C) Vestfjörðum ! Fínt að taka 15 tíma akstursferðalag til vestfjarða áður en maður flýgur út í heim. María Óskardóttir, sem hvað frægust er fyrir að vera eiginkona Einars Kolbeinssonar, merkjameistara er í framboði fyrir baráttusamtök eldri borgara og öryrkja. Hún skrifaði harðorða grein í skarp nú á dögunum sem ég las yfir. Ég ætla ekki að kjósa þessi samtök. Nú hlaðast þær inn, skoðanakannanirnar og ef einhver flokkur hækkar up hálft prósentustig kemur frasin, "já, þetta er í takt við þann meðbyr sem ég augljóslega finn fyrir". Ef hinsvegar flokkur lækkar á milli kannana er svarið aldrei "já, þetta er einhver lægð sem við finnum vel fyrir núna". Þá er svarið "Það er nú svo að hér er einungis um að ræða skoðanakönnun og stærsta könnunin er auðvitað 12.maí". En auðvitað reyna þeir að draga úr því þegar illa gengur, og líta á könnunina sem biblíu ef þeir hækka eitthvað, það er eðlilegt.
Æji djöfull sem ég nenni þessi ekki lengur, alltaf nefninlega þegar ég skrifa eitthvað hérna, fer ég alltaf að hugsa út í það, þegar Fóstbræður gerðu grín af fólki hérna um árið !
Erann að takann
En já, það var eins og örlögin hefðu tekið málin í sínar hendur fyrir páskana, því ég fjárfesti mér í sjónvarpsflakkara, sem er núna að mínu mati mun gáfulegri uppfinning en rennilás. Búinn að ná í fullt fullt af klámmy....nei fræðsluþáttum og heimildarmyndum um ýmsa hluti, m.a. í morgun horfði ég á heimildarmynd um engisprettur sem ég var búinn að setja inn á flakkarann hjá mér.
Manchester sigraði Roma í gærkvöldi 7-1 á Old Trafford. Ágæt úrslit hjá United sem verða að teljast sigurstranglegir í keppninni eftir þessi úrslit í gær. Mínir menn að klára PSV í kvöld, og mæta þá í undanúrslitum Chelsea. Ég spái því að Chelsea sigri þá rimmu.
Ég hef lengi ekki skilið það hvað maður eins og Sigurjón Þórðarson (x-f) er að gera á Alþingi íslendinga ! Hann hefur semsagt haft það ákaflega notalegt í dágóðan tíma í sæti nr.1 hjá mér yfir þá stjórnmálamenn sem ég kann hvað síst við. Nú hinsvegar eru breyttir tímar, því hann deilir nú sæti nr.1 og 2 með einni konu sem virðist leggja það á sig í hvert skipti sem hún talar, að reyna að vera óþolandi. Það eru auðvitað allir heilbrigðir aðilar búnir að sjá hvaða konu ég er að tala um (nei ég er ekki að tala um kolbrúnu halldórs), þetta er engin önnur en daddaradadada...Guðríður Lilja held ég að hún heiti, vinstri græna skákkellingin þarna á suðurlandinu ! Á næstu dögum og vikum munu þau tvö semsagt berjast um efstu sætin. Það er allt í lagi að það komi fram svo hér, hver það er sem trónir í þriðja sætinu, en það er Jón Magnússon (x-f). Ef flett er í orðabókum hverskonar og farið í tjeið(T) og flett upp á orðinu Tækifærissinni þá er Jón Magnússon þar við hliðina með feitletruðu.
Jæja, læt þetta nægja í bili og bið ykkur vel að lifa og gangið hægt um dyrnar frægu.
Gón dagin
Var að velta því fyrir mér nú um daginn hvað væri það vandræðalegasta sem komið hefði fyrir mig á minni *hóst*stuttu ævi*hóst*(25) og gaman að leita til baka í leit að þannig atvikum. Gleymi því t.d. seint þegar ég var staddur upp á sjúkrahúsi með gauja og við höfum verið þetta 13-14 ára í heimsókn hjá mömmu hans. Þetta var auðvitað á þessu tímabili þar sem maður skammaðist sín fyrir ættingja sína upp að ákveðnu marki, og þarna var afi minn Áki á lifi, blessuð sé minning afa gamla. Við vorum semsagt þarna e-ð á ferðinni, mjög líklega í eltingarleik og glymur svo í sjúkrahúsinu "maaatur" "maaatur" þannig að við snarstoppum svo svitinn kastar sér af okkur og gauji spyr mig, "hver er þetta eiginlega?" og hló hann svona, ég hló líka en og sagði "ég veit það ekki, höldum áfram" (þarna vissi ég í raun að þetta var afi gamli. En gauji vildi rannsaka þetta mál e-ð frekar en ég að reyna að komast hjá því og pikka í hann og segi honum að hann sé hann og hleyp ég því af stað. Gauji gerði ekki neitt, og gekk í átt að matsalnum, og við svo búið gat ég ekki flúið þessa staðreynd og gekk ég því með honum í átt að matsalnum og heyrist þá aftur "maaatur" og ég byrja að svitna aftur, þó öðruvísi svita. Svo sjáum við að þetta er að sjálfsögðu afi og gauji spyr "bíddu ævar er þetta ekki afi þinn?" "júhú(ægilega óvænt)þetta er afi, þvílíkur meistari þetta er" segi ég og hlæ aðeins en græt eins og kornabarn inn í mér. En samt toppnáungi sko, var svolítið fyrir sopan á sínum yngri en hver er það ekki.
Svo man ég líka eftir því þegar ég var staddur í sundkennslu og búið var að skipta í lið, og var ég að taka bringuna á þetta en sá að ég var talsvert á eftir þeim sem ég var að keppa við, og stoppaði ég því á öðrum endanum og hristi hausin og tilkynnti það að ég gæti ekki keppt meira þar sem ég hafði misstigið mig á leiðinni. Man samt eftir því að ég náði að sannfæra Gunna Sigga frænda minn um þetta, hann sumsagt trúði mér. Gunni Siggi einmitt ýtti Guðrúnu Kristins út í laugina á svo eftirminnilegan hátt hér í den, og hló heilmikið af því í einhverjar vikur á eftir.
Svo þegar ég og Birkir Vagn vorum sendir á vestmannsvatn í sumarbúðir. Þar deildum við herbergi í viku eða svo, og gerðum heilmikið grín af flestum í kringum okkur (þó aðallega Bibbi auðvitað) og einn af þeim sem á vegi okkar varð, var Eyvindur Karlsson, sonur Karls Ágústs Úlfssonar spaugstofumanns. Við stríddum honum svolítið, en hann átti tromp í erminni sá aðili, en þannig var það að eftir að við vorum búnir að gera at í einhverjum þarna og löbbuðum í átt að herbergi okkar sigri hrósandi bíður Eyvindur eftir okkur (örugglega bak við hurðina) og byrjar um leið að kasta í okkur u.þ.b. 1000 bókum af nýja testamentinu. Hann var svo brjálæðislegur á svipinn að ég held ég hafi pissað á mig. Ég var skömmustulegur það sem eftir var ferðar, í máske 1-2 daga.
Flestir húsvíkingar og nærsveitungar þekkja Mumma Skalla. Mummi var svona fyrirbæri hér á víkinni en þó manneskja sem allir voru hræddir við. Þannig var það einn sumardag á víkinni að við gauji vorum staddir niður á bryggju e-ð að ditta að bátnum hjá pabba gauja, lítilli hobby-trillu og var pabbi gauja eflaust að mála gripinn. Fljótlega gerum við okkur grein fyrir því að Mummi Skalli er á svæðinu, að sjálfsögðu, og okkur dettur það snjallræði í hug að spyrja hann að því hvað hann heiti. Við nálgumst hann eins og um serial-killer væri að ræða, og virðumst vera tilbúnir til þess að enda líf okkar þarna á bryggjunni með því að spyrja hann spurningar. Mig minnir að Gauji hafi fengið hlutkestið, sem þýddi að hann átti að spyrja hann, og snýr hann sér við og starir á okkur, og kaldur svitinn rennur niður kinnarnar á okkur og þarna vorum við bara, face to face og aðeins 2-3 metrar á milli okkar og hans, þegar gauji spyr "Hvað heitirðu?", örlítil hik kom á Mumma en hann svaraði blíðri röddu "Guðmundur" og við það snúum við okkur við um leið og við segjum "alltlæ bless" og göngum af stað, svipaðir og göngufólk í maraþonkeppni. Þarna semsagt vorum við búnir að lifa í ótta við þetta ljúfmenni sem Guðmundur var í allan þennan tíma.
Sennilega fyndnasta sagan sem ég man eftir svona í fljótu bragði gerðist þegar við vorum ca.14 ára. Þarna var í tísku að eiga kanínur og enginn var maður með mönnum, ef hann átti ekki kanínur. Svalasti staðurinn fyrir svoleiðis dýrahald var við hliðina á skólagörðunum, þar man ég að Orri Freyr átti t.d. helling af kanínum. En já, við gauji smíðuðum kofa, með hjálp frá pabba gauja, og í hann fengum við 2 kanínur. Hrikalega var það svalt að þegar t.d. einhver stelpa spurði mig að því hvað ég ætlaði að gera í dag, þá var svarið "gefa kanínunum" og er svarið sambærilegt við því í dag að segjast ætla að sniffa kókaín. En já, vorum í einhverjum vandræðum með mat handa þeim, áttum ekkert handa litlu krílunum okkar, og brugðum við því á það ráð, að hlaupa yfir lækinn og í skólagarðana og fá "lánað" hjá Guddu systur. Þetta endaði svo með því að við tókum það að okkur að eyðileggja mikið af garðinum. Þarna vorum við í essinu okkar, að rífa upp úr moldinni það sem nýbúið var að leggja niður, hjá m.a. systur minni litlu. Verðum varir við bíl sem kemur þarna að, og ákváðum við að hlaupa, svo hlupum við bara, og hlupum, svo hlupum við meira, og svo bara ennþá meira. Í millitíðinni hafði Kristjana Skarphéðins (mamma Ninnu í okkar bekk) séð til mín og kallað mjög skrækóttri röddu að okkur "Ææææævaaaaar" nokkrum sinnum en við virtum hana ekki viðlits og héldum hlaupum okkar áfram. Enduðum upp á golfvelli og biðum við þar í dágóða stund og héldum að okkur væri borgið eftir rúmlega klukkutíma þar uppfrá. Röltum þá niður í byggð aftur, og heim til gauja þar sem mamma hans beið okkar og sagði við okkur, með gífurlega vonsvikinni röddu að við skyldum fara til Sísíar og biðjast afsökunar á þessari hegðun okkar. Við sögðum ekki neitt og röltum niðureftir og náðum að sannfæra hvorn annan um það að við höfðum ekkert gert þetta. Við bönkum á dyrnar og til dyra kemur Sísí elskan og um leið og hún tekur í hurðina segjum við "við gerðum þetta sko ekki", en svo þurfti Sísí, sem tók þessu furðuvel, ekki langan tíma til þess að láta okkur vita að hún vissi vel að við gerðum þetta, þannig að við biðumst afsökunar á þessu framferði okkar.
En jæja, nenni ekki meiru í bili.
p.s. ég þori veðja putta upp á að, ef maður tekur þátt í getraun núna, þá er páskaegg í verðlaun, djöfull er mikið um það maður !
Tók rúnt í bæinn fyrir Dag
Ég sá að framkvæmdir við nýja pósthúsið eru á sæmilegri siglingu, sá að 2 smiðir voru staddir fyrir utan að vega og meta aðstæður. Annar þeirra var alveg örugglega frændi minn, hann Brynjar, sem er betur þekktur sem Brynjar "sem gengur bara í buxum sem ná niður að kálfa". Þessu næst hitti ég hana móður mína, sem leit í dag afskaplega vel út, enda sagði ég henni það "mikið rosalega lítur þú nú vel út í dag" sagði ég við mömmu, mamma svaraði "æji ævar þór hættu þessu". Svo keyrðum við og við kvöddumst með einum rembingskossi. Þessu næst sá ég einmitt títtnefndan Reyni í skóbúðinni, en sólstóllinn hans var ekki enn komin út, en alveg er ég viss um að kvöldið í kvöld fer í vangaveltur hjá Reynsa hvort hann eigi að skella honum út á morgun. Svo sá ég 2 stelpur á röltinu, og bætti ég því örlítið á hraðan til þess að líta ´cool´ út fyrir þeim, það vildi ekki betur til en svo að löggan mætti mér þá og þurfti ég því að snarhemla sem virkaði alveg örugglega gríðarlega ókarlmannslegt. Samfylkingin er búinn að koma sinni kosningaskrifstofu fyrir þar sem táin var (við hliðina á leigunni sálugu) og VG tylltu sér einmitt með sína bækistöð í gömlu leigunni. Þannig að þegar nær dregur kosningum má búast við því að sjá Ingólf Freys (xs) og Björgvin Leifs hnakkrífast fyrir utan melluna. Sem minnir mig á það þegar Stjáni Hjaltalín bannaði útlendingunum sem voru að vinna í sláturhúsinu í hittí´fyrra að labba á gangstéttinni sinni fyrir utan melluskotið. Stjáni var örlítið í glasi þarna.
En já, hvað er hægt að nefna fleira, ég kom við í einni búð bæjarins og náði mér í blaðið og fréttablaðið. Keyrði framhjá leikskólanum og sá að þar voru iðnaðarmenn einnig að störfum, augljóslega gríðarleg uppbygging að eiga sér stað hér á víkinni. Ég sá Kristján(krilla) ekki neitt í þessari ferð, en hitti hann þó um daginn, þar sem hann var sérstaklega brosmildur, auk þess var hann nýrakaður kallinn og gott ef hann var ekki búinn að skella á sig rakspíra, rakspíra sem myndi bræða hvaða öfgafeminsta sem fyrirfinnst í heiminum. Man nú ekki eftir fleiru í augnablikinu.
Liverpool sigrar Arsenal á morgun 2-0, ég hef ákaflega blíða tilfinningu fyrir þessum leik og mun rauði herinn hirða þessi 3 stig sem í boði eru. Ætla að fara núna niður í ríki og versla mér kippu af gylltum viking, já, svo er hrönn kára byrjuð að vinna í ríkinu, þá er það komið sem einhverju máli skiptir af húsvískum fréttum held ég Dagur. Vona að þú sért sáttari við þetta en áður.
25 ára strákurinn !
En já, oft heyrir maður klisjur í stjórnmálamönnum fyrir kosningar og hverjar eru þær, jú, "við ætlum sko að bæta velferðarkerfð, menntakerfið, gera vel við aldraða, barnafólk hafi það betra" o.s.frv.o.s.frv. Lengst gekk þessi klisjuumræða nú í gær þegar íslandshreyfingin sagðist ætla að gera lífið skemmtilegra, já það er nú ekki ónýtt að kjósa flokk og fólk, sem ætlar að gera líf manns skemmtilegra. Þessi umræða minnir á "óháðu" umræðuna, þ.e. flokka sem aðhyllast einnig að "óháðu" fólki. Fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar kom Samfylkingin held ég fyrst fram með framboð sitt merkt, "Samfylkingin og óháðir", svo fylgdu frammararnir, sjallarnir og vg í kjölfarið. Algerlega ómarktækt. Svo þegar svokallaðir "óháðir" aðilar sitja á listum fólks, því er ekki að neita að sú umræða fer ´nett´ í taugarnar á mér.
Ég lýsi því hér með yfir að ég er búinn að æla tvisvar sinnum vegna baugsmálsins, það hefur semsagt komið fyrir tvisvar að þegar þessi "setti ríkissaksóknari" Sigurður Tómas hefur birst á skjánum þá hef ég hlaupið inn á baðherbergi og ælt, í seinna skiptið náði ég því varla og þurfti ég að eyða góðum tíma í að bóna klósettsetuna hjá mér.
Íslendingar töpuðu fyrir spánverjum í gær 1-0 á mallorca í vægast sagt leiðinlegum leik hef ég heyrt. Landsliðsþjálfarinn okkar, ofmetni Skagfirðingurinn Eyjólfur Sverrison, sagði fyrir leikinn að verið væri að spila við íslenskar aðstæður, rok og rigningu. Reka Eyjólf og ráða Gauja kóng strax !
Kiddi
En já, íslandshreyfingin orðin að veruleika og Hannes Smárason að fjármagna framtíðarlandið samkvæmt slúðursögum laugavegsins. Ómar og Margrét komin upp í 5% samkvæmt fyrstu könnun eftir að þau kynntu framboð sitt, og Ómar hæstánægður með niðurstöðuna. Samt frábært að undanfarin ár, og í aðdraganda ákvörðunarinnar um kárahnjúkavirkjun o.s.frv. var Ómar Ragnarsson að fljúga með fáfróða íslendinga yfir þetta svæði (sem að 10% landsmanna hefur séð) og segja þeim hvað þetta væri allt saman frábært. Hann má eiga það, að hann reyndi eftir sinni bestu getu að halda aftur af sér, varðandi hlutleysi og hlutdrægni. Svo brast stíflan, og Ómar gekk á fund útvarpsstjóra og sagðist ekki lengur, skoðana sinna vegna, geta flutt fréttir af stóriðju hverskonar. Eftir það fór hann að mála árabát og sigla í lóninu og mynda það þegar aðalbláber fóru undir vatn. Því næst arkaði hann niður laugaveginn í svona "gay-pride" göngu og söng "ísland er land" þitt og fleiri þjóðlög við mikinn fögnuð allskonar listamanna. Annars er Ómar fínn náungi held ég, sprellikarl og húmoristi, góður að lýsa boxbardögum, auk þess er hann fínasti textahöfundur. Svolítið dapurlegt að andlit þessarar hreyfingar m.a. skulu vera þau Margrét Sverrisdóttir og Jakob Frímann, aldrei sannfærandi eða trúverðugt þegar stjórnmálamenn taka þátt í prófkjörum þar sem þau sækjast eftir ákveðnu sæti en tapa þeim svo, þá hlaupa þau í burtu og segjast ekki eiga samleið o.s.frv.o.s.frv. Reyndar er Margréti Sverris vorkun, eftir dramað allt saman í kringum hennar fyrrverandi flokk, Frjálslynda flokkinn. En Jakob Frímann ! Jesús jesús, skil ekki af hverju hann er alltaf fenginn í svona umræðuþætti. Egill Helgason hefur t.a.m. verið ófeiminn við að fá hann í þáttinn sinn, til þess að fá hans afstöðu og hans skoðanir í hinum ýmsu málum. Aldrei verið hrifin af Jakobi og var það gríðarlega farsælt fyrir Samfylkinguna að sjá á eftir honum.
Fylgið við Vg að mælast minna núna en áður, og mældust þeir í 23% nú síðast og Samfylkingin örlítið að færast upp á við. Framsókn að sækja örlítið í sig veðrið þrátt fyrir stanslausar árásir stjórnarandstöðuflokkanna á hendur þeim. Það jákvæðasta við síðustu könnun var að sjá fylgi frjálslyndra er í 4,4%. Kosning í firðinum eftir ca 5 daga held ég, og öll spjót farin að beinast að því hvað Alcan sé að kosta miklu í herferðina ! Sól í straumi held ég að samtökin heita sem berjast gegn því að þetta deiliskipulag verði samþykkt, benda á það í nýrri tölvuteikningu Alcan af stærra álveri vanti einhverja turna, og svo sem fyrr segir, að Alcan sé að eyða alltof alltof alltof miklum pening í þessa herferð sína.
Djöfull sem ég nenni ekki lengur að skrifa hérna núna, en get þó bætt þeirri sorgarfrétt við hérna að einn dyggasti stuðningsmaður Vg (m.a. fyrrv. stjórnarmaður húsavíkurfélags vg) ætlar að leggja sjó undir fót og fara að veiða fisk en samt meira kannski að elda hann, eða meira kannski að elda kjöt. Verður gríðarleg eftirsjá af honum, og eru stuðningsmenn hans búnir að ákveða að koma saman á fjögurra daga fresti upp á svokölluðum Gónhól á meðan á dvöl hans út á hinu stóra hafi stendur, og syngja nokkra valinkunna sjóaraslagara.
Jafnaðarmannaflokkur Íslands !
Í fyrstu vildi enginn stýra skútunni, fáir um hituna og var því Össur Skarphéðinsson sjálfkjörin formaður flokksins í upphafi og hélt hann þeim titli í verulegan tíma eða þangað til vonarstjarna jafnaðarmanna á íslandi, Ingibjörg Sólrún gerði tilkall í formanninn. Hún sigraði Össur með yfirburðum í formannskjöri flokksins ekki fyrir margt löngu. Þessi flokkur átti að vera mótvægið við Sjálfstæðisflokkinn sem annar valkostur og gerði Samfylkingin mikið úr því að valið stæði einungis á milli tveggja flokka, annarsvegar íhaldsins eða þessa frjálshyggja jafnaðarmannaflokks. Við fyrstu sýn stóð þetta allt, Samfylkingin hefur síðan þá verið næststærsti flokkur landsins eða allt þar til núna í vetur, þegar margítrekaðar kannanir sýna að flokkurinn rétt slefar yfir 20% á meðan Vg, "hinn" vinstri flokkurinn hefur verulega verið að sækja á. Margir vilja meina að ástæða þessa fylgistaps sé vegna þess hve orðóheppin formaður flokksins er. "Flokkurinn of pólitískur" "Þjóðin treystir ekki þingflokknum" o.s.frv.o.s.frv. Össur Skarphéðinsson er svona sprellikarl sem náði til margra þeirra sem "ég veit ekki hvað ég kýs" fólk á meðan Ingibjörg Sólrún er of umdeild á meðal þeirra sem ekki vita í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Talað hefur verið um að stefnufesta sé einn af akkilesarhælum flokksins, þ.e. að þeir eiga erfitt með að vera á sama máli á ólíkum fundarstöðum. Þá kemur frasin "Samfylkingin er stór flokkur sem inniheldur fólk með ólíkar skoðanir" en ljóst er að t.d. álversumræður hafa verið fyrirferðamiklar undanfarið, m.t.t. orða formannsins um álverið í straumsvík, svo einnig dularfulla þögnin um fyrirhugað álver hér á bakka við húsavík. Einnig er ekki annað hægt en að líta um öxl með bros á vör þegar bændur á íslandi áttu erfitt með svefn á tímabili, vegna tilllagna Samfylkingarinnar varðandi búvörumál. "Fagra Ísland" er slagorð sem er í fyrsta lagi ófrumlegt, en þarna á að vera hægt að finna áherslur flokksins í umhverfismálum, sem eru einmitt svo ofboðslega vinsælar í dag.
Ljóst er einnig, að stuðningsmenn Össurar í formannskjörinu síðasta, eru í einhverri nöp við formanninn. Við sjáum nú þegar örfáir dagatugir eru í kosningar að t.d. Hrafn Jökulsson, í gegnum tíðina verið mikill Samfylkingarmaður sat andspænis Hannesi Hólmsteini í Kastljósþætti nú á dögunum og gerði lítið annað en að vinna Samfylkingunni mein. Oft er það svo að Hannes Hólmsteinn vill eiga síðasta orðið og vera með orðið, en þarna sá maður bara hvað prófessorinn sat rólegur og kinkaði kolli yfir því sem Hrafn hafði að segja um stöðu síns flokks og þá síns formanns. Eins og kom fram í síðasta pistli þá sjáum við bæjarstjórarnn í Hafnarfirði, Lúðvík Geirsson setja ofan í við Ingibjörgu er hún hóf að ræða um málefni álversins á þeim bænum. Ég hef sagt það áður, og segi enn, að ef Samfylkingarfólk nær ekki einhverri samstöðu um sinn formann þá kemur kosningin til með að líta illa út í vor.
Sjarmi Samfylkingarinnar hefur dofnað verulega undanfarið, fáir eru þeim sammála í evrópuumræðum, en frammararnir hafa þó verið gjarnir á að ræða aðild að þeim félagsskap, en þá hafa reyndar jafnharðan sjallarnir komið og tekið í hálsmálið á þeim og rifið þá inn og skammað þá fyrir umræður um evrópusambandið. Eins og kom fram í síðasta pistli þá vitna ég í könnun fréttablaðsins um vinsældir Ingibjargar og ekki eru það vinsældir til að hrópa húrra fyrir, en seinna var hún rendar í rúv-könnun komin upp í 16 eða 17% en það eru auðvitað ekki nærri því eins og gott og menn í þessum ofboðslega jafnaðarmannaflokki vilja hafa. Geir Hilmar Haarde mælist þetta með 40-50% í sömu könnunum og er hann einmitt í "hinni blokkinni" !
Forvitnilegt verður að sjá hvort Samfylkingin nái að stilla saman strengi sína og þó að vika sé langur tími í pólitík eins og einhver sagði, þá mega þeir fara að hysja upp um sig buxurnar fram að kosningum, ef ekki á illa að fara.
Örlitlar vangaveltur
Í þessum skrifuðu orðum hefur Ingibjörg Sólrún sagt að hún muni reyna "samningaleiðina" ef að Hafnfirðingar samþykkja deiliskipulagið nú um mán.mótin sem gerir ráð fyrir stærra stærra álveri í straumsvík. Þetta þýðir á mjög augljósu máli, að ef hafnfirðingar stækka, og Ingibjörg Sólrún kemst til valda (ólíklegt þó vegna smæðar flokks hennar í könnunum undanfarið) þá verði sett stopp á fyrirhugaða stækkun í straumsvík af hennar hálfu, það á að bíða, við skulum bara bíða og sjá eru skilaboð formanns Samfylkingarinnar. Gegndarlausar framkvæmdir á sv-horninu hafa í verulegum mæli komið á fót þennslu, mér liggur við að segja að ekki séu nema ca. 100mtr á milli byggingarkrana á sv-horninu. Hvað vilja menn gera, hvað vill bæjarstjórnin í hafnarfirði gera, jú, ýta í enn frekari mæli á þennsluna, með því að stækka álverið í straumsvík ! Hvað vilja menn eins og Örlygur Hnefill, Einar K, Kristján Möller og samfylkingarfólk hér á víkinni gera, jú, að hér rísi álver við bakka.
Allt þetta byrjaði auðvitað á því, þrátt fyrir gefin loforð við sína heittelskuðu kjósendur í rvk um að hún sæti sem borgarstjóri það kjörtímabilið til enda, á því semsagt að hún gekk á bak orða sinna við þá reykvíkinga og fannst tilvalið að bjóða sig fram til alþingis ! Enda var hún gerð að forsætisráðherraefni flokksins og leit þetta allt saman huggulega út, fylgið var þetta í kringum 32-37% og allir vegir færir fyrir samfylkinguna. Ingibjörg hafði það á orði að kosning undir 35% að mig minnir, væri ekki ásættanlegt fyrir flokkinn og hélt svo út í slagsmálin sem kosningabaráttan er. Samfylkingin slefaði rétt yfir 30% markið og lengi leit út fyrir það að ISG væri inn á þingi en því miður, úppps, komst ekki inn og flúði lands til Englands og var þar í einhverja mánuði á eftir. Hún var gerð að varaformanni svona til þess að hún hefði eitthvað starfsheiti, því ekki dugði það að vera bara fyrrv. forsætisráðherraefni flokksins. Spurt var um daginn í fréttablaðinu, hvaða stjórnmálaleiðtoga fólkið treysti best, Ingibjörg Sólrún, formaður jafnaðarmannaflokksins á íslandi hlaut upp úr krafsinu 12,1% ! Veit reyndar fyrir víst að Kristján J. kaus Össur sem formann flokksins en hann hlýtur engu að síður að bakka sinn formann upp. En já, svo ég svari spurningarmerkjum Kristjáns frá commenti hans og örlítið reyni að leiðrétta manninn með örfáum orðum, þó erfitt sé að ræða við reiða menn (sem ég skil auðvitað mjög vel, sbr skoðanakannanir undanfarið)
Þetta comment hans byrjar auðvitað á því að hann reynir að kenna ríkisstjórninni um að hann hafi tekið sér yfirdrátt á einhverjum tímapunkti í sínu lífi og er það frekar dapurlegur málflutningur. Ég ætla, vegna skrifa Kristjáns um það hversu slæm kárahnjúkavirkjun er, að minna hann á það að Ingibjörg Sólrún, þá í ráðhúsinu samþykkti kárahnjúkavirkjun eins og meirihluti þingmanna samfylkingarinnar. Nú er ég ekkert að segja að mig dreymir hverja nótt um álver við bakka, en virðist vera sem svo að mikið af fólki á víkinni, vill fá e-ð þá í staðin fyrir álver, hvað á það að vera Mr. Júlíusson ? Hinsvegar held ég að við séum nú ekkert svo hróplega ósammála um marga hluti, munurinn er sá að þú sérð einungis svartnættið framundan á meðan ég reyni nú að líta á það jákvæða einnig ! Tökum dæmi um jákvæða punkta eftir setu þessarar ríkisstjórnar:
Ætla að byrja á því að nefna það að áður en þessi ríkisstjórn tók við völdum, og raunar frá því að Sjálfstæðisflokkurinn kom í ríkisstjórn, þá var gengisfelling daglegt brauð, verðbólga há, og lítill sem enginn kaupmáttur til í landinu ! Þetta var á tímum gömlu flokkana, þeirra á meðal sem nú heita Samfylking. Íslenskur fjármálamarkaður nýtur sín sem aldrei fyrr, og fjármálageirinn kemur t.d. með meira af pening inn í þjóðarbúið heldur en sjávarútvegurinn. Ætlar þú einnig að fara í hótunaraðgerðir gagnvart bönkunum t.a.m. eins og idolið þitt, hann Össur gerði ? Búið er að lækka tekjuskatt á fyrirtæki úr 30% í 18%. Nýlega hefur svo matarskattur verið lækkaður úr 24,5% og 14% niður í 7%. Þrátt fyrir þessar ábendingar, og eru þær brotabrot af fleiru jákvæðu sem hægt er að nefna, þá munu skuldir á árunum 2006 og í ár lækka um 25 milljarða íslenskra króna ! Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor telur að heildartekur allra tekjuhópa hafa vaxið gríðarlega undanförnum árum.
Kristján spyr mig hvort ég viti hvað Kyoto-bókunin er, svarið við þeirri spurningu er já. Ef mig misminnir ekki var það skamkomulag gert árið ´99. Þar eru t.d. að finna heimildir sem kunna að koma okkur íslendingum til góða varðandi áframhaldandi uppbyggingu orkufreks iðnaðs. Varðandi Draumalandið eftir Andra Snæ, þá hef ég ekki lesið þá bók, enda legg ég það ekki í vana minn að taka mark á
öfgafullum skoðunum manna, og núna þýðir ekki að hrópa "hvernig veistu að hann er öfgafullur ef þú hefur ekki lesið bókina hans!", ég hef heyrt og lesið ýmis viðtöl við þennan annars geðþekka náunga og fæ ekki betur séð en að hann er a.m.k. pínulítið öfgafullur.
Til þess að klára þetta allt saman, þá get ég vel sagt það hér, að ég er ekkert sérstaklega rosalega æðislega obboðslega hrikalega spenntur fyrir því að álver rísi hérna við bakka. Ef Bill Gates kæmi hérna við á morgun og segðist vilja nýta þá tæru orku sem við höfum upp á að bjóða hérna á svæðinu, tæki ég þeim fregnum eflaust fagnandi ! Það bara þýðir ekkert fyrir fólk, að taka mark á því þegar forseti lýðveldisins fer á stuttan fund með Bill og þar komi fram hvað Bill þyki ísland fallegt land og ísland sé með hreina orku. Ég hef töluverða tilfinningu fyrir því að ef af því yrði, þá værum við að tala um áratugi, en árétta, að þetta er einungis tilfinning. Vona að þetta svari spurningum þínum á einhvern hátt, og þér til eflaust mikillar gleði og ánægju, mun ég, að öllum líkindum skella inn pistli sem snýr að Samfylkingunni og allt sem snýr að henni varðandi kosningarnar í vor. Þá væri gaman ef þið, flokksbundnu Samfylkingarmenn, þ.e Kristján og Andri sæuð ykkur fært að mæta á þennan vettvang og upphefja allt það frábæra sem Samfylkingin hefur fram að færa.
Ekkert álver !
Var svolítil frétt hérna um daginn, þegar smáralind gaf út sinn venjubundna bækling og framan á honum var stelpa að teygja sig eftir loðfóðruðum bangsa. Allt ætlaði um koll að keyra þegar fólk rak augun í þessa "klámmynd", en hún átti að þýða það að karlmenn ímynduðu sér það að lille venn kæmist vel fyrir á ákveðnum stöðum þarna, og einnig væri mjög hentugt að stunda kynlíf standandi, og þá erum við að tala um kynlíf svona aftan frá. Ég held að þegar fólk er farið að lesa svona klámmyndir út úr fermingarbæklingum, þá sé það næsta sem það gerir, að fara og athuga á sér toppstykkið. Meira að segja var þetta ekki bara einhver djonn djonnsson út í bæ, heldur var þetta víst virðulegur kennari við HÍ. Það er aðili, Anna katrín heitir hún að mig minnir, sem er talsmaður feminista sem reyndi að klóra í bakkann með þetta hjá kennaranum. Sagði sem svo að hugsanlega hefði þessi kennari farið fullgeyst í yfirlýsingarnar varðandi þetta mál, annars væri allt í lagi að benda á þetta. Eva Dögg, markaðseitthvað smáralindar sagði sem svo að það hlyti bara að vera sjúkt fólk sem læsi svona hluti út úr fermingarbæklingum.
Allir ræða álverið, það kemst enginn að í umræðum liggur við, nema að hafa skoðun á álveri hérna á bakka (og þá helst að vera því fylgjandi). Álverið á að bjarga heiminum frá endalokum að mati margra. Fullt fullt af fólki búið að versla íbúðarhúsnæði og annað misgáfulegt með það fyrir augum að hér rísi álver, annars deyja allir. Núna er eins og allir vita í gríðarlegri tísku að þykja vænt um tréð sem stendur fyrir utan húsið þitt og helst verða menn að safna hári, setja á sig skærlitt ennisband, reykja hass og kaupa sér bol með andliti Steingríms J. framan á. En ef maður gefur sér það, að ekkert álver rísi hérna, allt verði sett á hold(sem þýðir í raunninni ekki álver) og hvað þá. Ég sé þetta mjög greinilega fyrir mér, á kannski sunnudegi verður það uppgefið að ekkert álver muni rísa við bakka á húsavík í nánustu framtíð (15-20 ár, og svo auðvitað ekkert eftir það) og fólk tilkynnir sig veikt í vinnu á mánudag (nema Bjöggi Leifs og Trausti Aðalsteins). Svo tekur maður rúntinn niður í bæ og sér þar starfsmenn öryggis sem mættu í vinnu að rífa niður nýja merkið sitt utan á búðinni, og Oddur Örvar sem dansaði svo eftirminnilega upp á borðum á bauknum fyrir u.þ.b. ári síðan (þegar tilkynnt var um að húsavík hefði verið valið í NY) keyrir um snöktandi yfir þessum tíðindum. Svo keyrir maður í sjoppuna og kaupir sér pulsu með öllu og eyðir svo afgangnum í hús sem hafði hrunið niður um 250% í verði á sunnudeginum. Trausti Aðalsteins valhoppar um bæinn og bendir á álverssinna "ha-ha". Talsverður fjöldi af þeim sem keyptu sér hús í tilefni af "væntanlegu" álveri kveikja í húsum sínum. Nóg verður að gera hjá sýslumanni í að afgreiða skilnaðarpappíra. Björgvin Leifs rúntandi um með bagatellóin sinn og syngjandi með U2, lagið "Beautiful day". Sr. Sighvatur þarf að kalla út auka presta vegna þess að hann ræður ekki við allan þann fjölda fólks sem þarf að leita sér aðstoðar.
Svona gæti þetta litið út í smátíma en svo gleymum við þessu, og förum að búa til parket aftur.
Maður ársins !
Ekki þarf lengur að bíða eftir manni ársins 2007, hann er komin fram. Þeir sem sátu spenntir yfir silfrinu nú á sunnudaginn vita hvað ég á við. Þarna var mættur enginn annar en Hafliði Jósteinsson ! Hans helstu afrek í þættinum voru klárlega þau þegar hann spurði Ögmund út í stóriðjustefnu vg hérna á húsvaík, þ.e. hvort þeir væru hlynntir eða andvígir stóriðju á bakka. Ögmundur svaraði því til í rólegheitunum að vg væru á móti slíkri framkvæmd. Þá heyrðist í okkar manni "jaaaaahá, þeeeetttaaa er goootttt aaað viiita. Þeeetta eeer gooot fyyyrir fóóóólk aaaað nooorðan aaað viiiita" svo glumdi í settinu hjá Agli ! Einnig fannst mér mjög gott þegar cameran var á öllum viðmælendum Egils, og Ögmundur var að tala og Hafliði með báða olnboga á borðinu og þegar það var held ég Ögmundur sem lauk máli sínu, hristi Hafliði hausinn og settist aftur í stólinn með handleggi krosslagða. Síðast en kannski alls ekki síst var það frábært þegar Egill var í þann mund að kveðja þennan part þáttarins og stefið hans komið í gang, þá sneri Hafliði cameruni að sér og byrjaði að spyrja Árna Pál (x-s) mann sömu spurningar og hann hafði áður gert við Ögmund. Viðbrögð Árna voru frekar samfylkingarleg, þ.e. jafnvel kannski og hugsanlega vitum við það ekki og viðbrögð Hafliða voru þau sömu og við Ögmund.
Hér eftir hlýtur Hafliði að fá fastan sess í þáttum Egils, slíkur var hamagangurinn þarna á tímabili. Ég er alveg að sjá þetta fyrir mér, Hafliði máske í öðrum hvorum þætti með svona 15mín innslag í lok þáttarins og annars lagið fær hann til sín mótleikara, þ.e. fólk sem er honum ekki sammála.
Einnig sá ég í gærkvöldi myndbandið af íslenska eurovision laginu með Eiríki Hauks. Það kæmi mér allverulega á óvart ef hann sigraði ekki eurovision þetta árið, svo svalur var hann ! Gagnrýnendur lagsins voru þau dr. Gunni (sem er btw ofmetnasti tónlistarmaður íslandssögunnar) og Birgitta okkar Haukdal. Gríðarleg öfund einkenndi málflutning þeirra í garð Eiríks og auðvelt var að sjá bara hvað þau hvítnuðu eftir að myndbandinu lauk og reyndu þau að hæla þessu frábæra lagi/myndbandi á frekar afbrýðisaman hátt.