Barcelona hvað ?
Verðskulduð úrslit í rimmu Liverpool vs Barcelona, að strákarnir úr bítalborginni fari áfram í keppninni. Riikjard er a.m.k. sammála mér með það.
Sissoko bestur í heiminum í sinni stöðu. Einnig spái ég því þegar Finnan verður spurður að því hvort erfitt sé að eiga við Ronaldinho, þá svari hann því til að það sé svipað og klæða sig í sokka.
Nehei !
Þannig hljómaði svarið hjá mér við einn viðmælenda minn nú um daginn þegar ég var að kvarta yfir kvefinu mínu, en hann spurði hvort ég ætlaði mér ekki bara ´uppeftir´ og láta athuga þetta. Veit ekki hvað það er, en mér fannst þetta gríðarlega svalt, ég er búinn að heyra nokkrar hetjur segja svona varðandi spítala, og hafði mig í langan tíma langað að svara svona spurningu á þennan hátt. En inn í mér grét ég, vegna þess að kvefið hafði ákveðið að gera sér að leik að fara líka upp í vinstra eyrað á mér með þeim afleiðingum að ég átti erfitt með heyrn. Það getur verið mjög vont, sérstaklega ef maður ætlar að reyna að losa um það með því að halda fyrir nefið með lokaðan munn og blása. Við það myndast heilmikill þrýstingur sem er gríðarlega sársaukafullur.
En já, ekki mikið búið að gerast síðan Anna Nicol kvaddi þennan grimma heim. Liverpool sigruðu auðvitað Sheff.Utd og leikmenn Arsenal og Chelsea urðu sér til heilmikillar skammar. Þetta virðist engan endi ætla að taka hjá Wenger, er viss um að ef hann væri íslenskur pabbi, þá væru synir hans Lalli Johns og Annþór handrukkari.
Nú ætlar frændi minn úr þistilfirði, Steingrímur J. að setja upp netlöggu ! Jájá, seigur kallinn. Annars held ég að aðilar innan vébanda VG séu haldnir einhverri sjálfspíningarhvöt. Þeir eru undanfarna mánuði búnir að mælast þetta 20-24% í könnunum en svo núna upp á síðkastið hafa komið fram tilllögur sem mælast ekki vel fyrir hjá a.m.k. mér. Mér finnst sem þeir kunni ekki við að hafa svona góðan meðbyr og ætli sér að saxa einhver prósentustig af þessum tölum sem kannanir sýna. En eitt er það sem VG má eiga, sem enginn annar flokkur getur sagt um sig, en það eru náttúrumálin. Þeir eru í raun eini flokkurinn sem kemur til dyranna eins og þeir eru klæddir varðandi þann málaflokk. Aðrir flokkar, sérstaklega samfylkingin, tala í endalausa hringi varðandi ást sína á náttúru íslands, en svo vilja þeir virkja en svo ekki o.s.frv. Samfylkingin stofnaði meira að segja flotta fyrirsögn á náttúrumálin sín, eða "Fagra Ísland". Samt helvíti heppnir að Jakob Frímann skyldi hafa sagt sig úr flokknum, hef aldrei haft góða tilfinningu fyrir þeim tónlistarmanni. Nú er ég einn af þeim sem annars lagið kíkir á Alþingi-rásina og fylgist með þingstörfum og m.a. í gærdag horfði ég á umræður sem snerust um Fundarstjórn forseta. Annan eins skrípaleik hef ég sjaldan orðið vitni að. Solla forseti þurfti að hafa sig alla við að negla hamarnum í bjölluna margoft. En gaman að þessu.
Næst á dagskrá hjá mér, fyrir utan skinkuhornin sem ég ætla að baka á eftir er að fjárfesta mér í sjónvarpsflakkara. Löngun mín í svoleiðis grip er komin á það stig að ég á erfitt með að sofna á kvöldin !
Annars er allt svipað að frétta héðan af vík, Reynir ennþá í skóbúðinni, Jón Arnkells ennþá að rafvirkjast e-ð, Siggi píp á fullu bara í pípunum, Þorgrímur er enn í landsbankanum o.s.frv.o.s.frv.
Þeir koma ekki !!
Nú held ég t.d. að notkun einhverra fíkniefna er leyfileg í Hollandi, ætlum við að banna hollendingum að sækja landið, vegna þess að einhverjar líkur eru á því að þeir hafi reykt gras ? Svo fullyrðingarnar í kringum þessa heimsókn eru svo ótrúlegar, fullyrt hefur verið að þetta fólk standi í mannsali, kvenfyrirlitningu o.s.frv.o.s.frv. en oftast nær, þar sem klámmynd er gerð, þar er typpi. Ef að atriðið er t.d. 2 konur á móti 1 karlmanni, þá er talað um kvenfyrirlitningu. Aldrei hef ég heyrt um karlfyrirlitningu í því sambandi. En þessi andskotans bændasamtök (sem neituðu þessu fólki um gistingu til þess eins og fá kannski hærri styrki frá ríkinu) ætla núna að fara að velja fólk á herbergi. Hvernig verður þá útfyllingarskjalið þið vitið "Nafn, Eftirnafn, Heimili, Greiðslukort," verður þar að finna spurningar eins og "hefur viðkomandi horft á klámmynd?" "Ætlarðu að vera í G-streng á íslandi?" "Þekkirðu framleiðenda klámmynda?" o.s.frv.o.s.frv. Ef þú svara einni spurningu af þessum játandi, þá máttu eiga von á því að afrit af umsókninni verði send feministafélagi íslands og þau ákveði hvort þú megir koma inn í landið, og hvert verður svarið...aha, nei !
Alveg er ég nú viss um það, að frændur mínir austur í þistilfirði höfðu ekkert með þessa ákvörðun að gera hjá bændasamtökunum !
Allavega hefur einn stjórnmálamaður stutt heimsókn þessa fólks hingað og er sá hinn sami einmitt bóndasonur héðan af tjörnesinu.
Klámfíklar á Hótel Sögu...og í egils líka
Ýmsir ráðamenn þjóðarinnar hafa komið í viðtöl og sagst harma þessa heimsókn einnig sumir sagt þetta hreinlega óþolandi. Enda hvað eiga þeir annað að segja, ég get t.d. með engu móti séð Jón Sigurðsson segja í viðtali í tilefni af þessu "hvað er þetta eiginlega (smá svona hlátur hjá Nonna), eins og þetta fólk megi ekki koma hingað og skoða sig um og búa til eins og einn krassandi klámara" Stjórnmálamenn eru bara svo langt í frá hlutlausir yfir svona fréttum. Myndu t.d. aldraðar konur með permanett kjósa slíka aðila. Nei.
Ég allavega sé ekkert því til fyrirstöðu að þetta fólk mæti á klakann, nú, ef þetta fólk ætlar sér að sprengja landið okkar upp, eins og þetta er farið að líta út hjá mörgum (helst öfgafullum feminístum) þá er það auðvitað ekki gott mál. En ef þetta fer eins og ég býst við, að þau komi hingað labbi um á bíkini (stelpurnar bara vonandi) á hótelinu, taki rútu í bláa lónið og taki þar upp einn klámara er það bara í fínu lagi. Auk þess er þetta góð auglýsing fyrir landið okkar og kannski að ímynd okkar breytist til hins betra á nýjan leik, eftir að íslensk stjórnvöld tóku þá heimskulegu ákvörðun að veiða hvali aftur, sem nb hefur kostað okkur skildingin og mun kosta okkur miklu miklu fleiri skildinga !
Læt þetta gott heita í bili - gott í bili
Ronaldinho til Liverpool !
Ef að ég ætti að prósentulíka þetta e-ð, þá tel ég vera 100% líkur á því að Sigurjón fái ekki mitt atkvæði. Sigurjón þessi fékk nefninlega einu sinni verðlaun fyrir það að hafa talað minnst allra þeirra sem voru á alþingi íslendinga, semsagt minnst allra þeirra 63 þingmanna. Daginn eftir að verðlaunaafhending fór fram birtust eftir Sigurjón 4 blaðagreinar* þar sem hann allt í einu setti á fullt og byrjaði að kvelja íslendinga með ræðum sínum. Þetta er ótrúverðugasti stjórnmálamaður okkar íslendinga, á eftir honum kemur allur þingflokkur frjálslyndra, sem telur, ef minnið bregst ekki, 4 þingmenn.
Sigurði Hreinssyni, húsvíkingi, smið, golfara og rjúpnaskyttu með meiru voru í dag dæmdar heilar 15.000.- íslenskar krónur í bætur vegna ólöglegs verðsamráðs olíufélaganna. Það var Ker, sem á olíufélagið esso sem þurfti að punga út þessari upphæð til Sigurðar.
Jæja, ætla að hafa þetta stutt að þessu sinni, vatnsdeigsbollubakstur(langt orð) er framundan og spái ég að þessar bollur fái a.m.k. 9,5 í einkun þegar heppnir átvaglar verða búnir að sporðrenna þeim niður hálsin sinn. Talandi um hálsa, nú herjar veirusýking á fólk, 2 sortir af veirum, önnur sem leggst á börn en hin á fullorðna.
Ronaldinho segir að Liverpool sé líklegt til sigurs í meist.deildinni og augljóst mál að í þessu viðtali sínu er hann að gera að því skóna að spila með Liverpool seinna á ferlinum, líklega 2 ár í hann eða e-ð. Það er nú ekki víst að hann fái reyndar mikið að spila, þar sem kærasti Benitez verður að sjálfsögðu áfram í liðinu, ásamt reyndar viðhaldinu hans einnig. Þarna er ég að sjálfsögðu að tala um Luis Garcia og Peter Crouch !
Örfáar vikur til kosninga
Nú síðast í gær, þegar Sturla Böðvarsson tilkynnti að tæplega 400 milljörðum yrði varið til samgöngumála til ársins 2018 ! Já, þetta eru nú aldeilis flottar tölur sem Stulli kemur fram með. Ég spái því að þessir þrjúhundruðáttatíu og e-ð milljarðar fari ekki í samgöngumál. Eitt af því sem ég hjó eftir var að Vaðlaheiðargöng eru svona "síðast" í upptalningunni á framkvæmdum á jarðgöngum. Einnig á að lengja flugbrautina á akureyri, sem þýðir að möguleiki okkar þingeyinga á að einhverntíman aftur verði flugvöllurinn í aðaldal notaður, er að engu orðin. Hef alltaf haft slæma tilfinningu fyrir Sturlu.
Margrét Sverris hætti í frjálslynda og er að vinna að nýju framboði. Það sem vakið hefur mikla athygli, a.m.k. frá mínum bæjardyrum, er að þegar Gunnar Örlygsson, fyrrv. þingmaður frjálslynda tapaði fyrir Magnúsi Þór í þarsíðasta varaformannskjöri, og fór í fýlu og flúði til sjallanna þá truflaðist allt. Guðjón Arnar (þó ekki vélstjórinn knái sem nú elur manninn á reyðarfirði), Magnús Þór og síðast en alls ekki síst Sigurjón Þórðarson, sem er sá pólitíkus sem ég á mest erfitt með að þola töluðu um lýðskrum o.s.frv. Þessir 3 voru sérstaklega háværir í kringum þetta ´múv´ hjá Gunnari Örlygs, og urðu nánast kjaftstopp þegar hann semsagt færði sig yfir til sjálfstæðisflokksins. Hvað hefur verið að gerast núna undanfarið, jú...fyrst drullar Valdimar Leó upp á herðar í prófkjöri Samfylkingarinnar og hann fór í fýlu og færði sig yfir til frjálslynda, næstur á eftir honum var Kristinn H. Gunnarsson, en hann tapaði fyrir Magnúsi Stefánssyni í prófkjöri exbé og færði sig því yfir til frjálslynda. Hvað gerist í kringum þessar ´róteríngar´ ? Aha, Magnús Þór og félagar taka þessum mönnum opnum örmum og tala um það hversu frábærir aðilar þetta séu og góð viðbót við flokk sinn. Þá eru þingmenn frjálslynda núna þeir Guðjón Arnar, Magnús Þór, Sigurjón Þórðarson, Valdimar Leó og Kristinn H. ! Allt saman afbragðs menn.....
Skrýtnar þessar kannanir undanfarið, sem ýmist sýna stjórnina halda velli, eða alls ekki og síðasta könnun, þ.e. könnun fréttablaðsins sýnir að stjórnarsamstarf samfylkingar og vg er staðreynd. Annars hafa VG verið að bæta verulega við sig, m.v. undanfarnar kannanir, og eru þeir að slefa þetta yfir 20% og eru þeir að nálgast samfylkinguna í prósentum talið all verulega. Ég hef talað mikið undanfarið við mikinn samfylkingarmann og hann segir mér að ástæða þess að samfylkingin nái sér ekki upp, sé sú að þingflokkur samfylkingarinnar sé ekki heill gagnvart formanni flokksins, Ingibjörgu Sólrúnu. Ég get tekið undir þetta hjá honum, auk þess er á því að ræður ISG séu þess eðlis að ekki veit ég í hvorn fótinn maður á að stíga. En hún er búin að tala frjálslega um stóriðju t.a.m. í hafnarfirði og svo hér á húsavík.
Í síðustu könnun mælist exbé einungis með tæp 4% og er það mikið áfall fyrir flokkinn og ímynda ég mér að sú ásýnd sem átti að breytast þegar Halldór fór frá, er ennþá við lýði. Fólk hefur verið, þó sérstaklega Össur, nú síðast í gær að kenna framsóknarflokknum alfarið um byrgismálið ! Mér finnst þetta svolítið einfalt hjá Össuri, enda kemur það svosem ekkert á óvart, enda einstaklega yfirlýsingaglaður stjórnmálamaður. Ljóst er að á sínum tíma þegar þessi starfsemi byrgisins var komin á endastöð þarna í Rockville, þá var mikill þrýstingur á ríkisstjórn íslands að koma því þannig til að starfsemin héldi áfram, og var sá þrýstingur þverpólitískur. Það sem fer hinsvegar rosalega í taugarnar á mér er að þegar rætt er við þessa helstu forkálfa þjóðfélagsins og þeir tala um harmleik og það verði að gera e-ð strax í málunum, er að það gerist ekkert ! Það er rosalega svalt að koma samúðarfullur í viðtöl og tala um hópa sérfræðinga, vinnuhópa, nýstofnaðar nefndir o.s.frv.o.s.frv. séu að vinna á fullu í þessu máli, en núna er talsvert síðan t.d. þetta byrgismál kom upp og enginn vistmaður hafi fengið inn einhversstaðar. En reyndar í fréttum í gær, kom fram að Gunni í krossinum ætlaði að veita 2-3 einstaklingum húsaskjól, hvort sem það er nú réttur staður fyrir veika einstaklinga að fara á eða ekki.
Til að enda þennan pólitíska pistil minn þá legg ég það til að Magnús Þór Hafsteinsson, Guðjón Arnar Kristjánsson, Sigurjón Þórðarson, Valdimar Leó Friðriksson og Kristinn H. Gunnarsson fái ekki eitt einasta atkvæði í kosningunum í vor !
Kompás - Liverpool
En já, Liverpool gerði sér lítið fyrir og skeit upp á haus gegn Newcastle um helgina og voru það vonbrigði, þrátt fyrir að ég hafi sett X á þann leik. Ég er hinsvegar komin með lausnir á getuleysi poolarana, og í þeirri upptalningu ber fyrst að nefna tvo leikmenn sem kunna ekki knattspyrnu. Það eru svona 100% líkur á því að fólk sem veit hvernig rangstaða virkar, veit hvaða menn er verið að ræða, þá John Arne Riise og Bodjewin Zenden. Ekki hef ég hugmynd um það af hverju verið er að notast við slíka leikmenn. Hinsvegar ef það er hugmyndin að vinna aldrei neitt, þá er kjörið tækifæri fyrir þau lið að verða sér úti um þjónustu þessra manna. Svo er ég á því að skipta eigi út öllu sóknarliðinu okkar, Bellamy, Kuyt og Crouch. Að sjálfsögðu nefni ég ekki hér Robbie Fowler, þar sem hann hefur lítið sem ekkert spilað á þessu tímabili. Ástæðurnar fyrir þessu eru:
Craig Bellamy - Ótrúlega hraður leikmaður eru rökin fyrir því að hafa hann í liðinu, og m.t.t. þess er vert að koma því að, að Evert Víglundsson var eldsnöggur með Völlurunum hérna fyrir örfáum árum síðar. Bellamy þarf a.m.k. 4 dauðafæri í leik til þess að skora 1 mark og er það tölfræði sem ekki er hægt að búa við.
Dirk Kuyt - "Hann vinnur svo ofboðslega vel fyrir liðið" er áhrifarík lýsing á leikmanni og þá er hann í liðinu. Miðjumenn mega vinna vel fyrir lið sitt en sóknarmenn þurfa að skila boltanum í netmöskva andstæðinga sinna, en Kuyt er einn af fáum sóknarmönnum sem virðist ekki þurfa að uppfylla það skilyrði fyrir veru sinni í liðinu.
Peter Crouch - Ég þarf ekkert að útskýra þetta. Var hinsvegar gaman að hlusta á heimska lýsandan um helgina, þegar Crouch var á bekknum og hann nefnir það að Crouch komi kannski inn á þrátt fyrir að aðeins 10 dagar séu í Barcelona leikinn !! Hvað var það ! Það semsagt var verið að hvíla slánan fyrir leikina gegn Barcelona, ef svo er, þá þurfa leikmenn, stjórnarmenn, þjálfarar, stuðningsmenn og bara allir þeir sem koma að einhverju leiti að Barcelona ekki óttast Liverpool.
Jæja, þýðir lítið að gráta utan í skyrtuna hjá bjössa bónda varðandi þetta, stutt í Nou Camp og þá er best að láta hendur standa fram úr ermum og senda slummu í lófana og klára þessa ofdekruðu súkkulaðistráka frá Barcelona. (Vek athygli á því að Eidur Smari er svo sannarlega einn af þeim(auk þess að vera ofmetin)).
Gangið hægt yfir þröskuld gleðinnar og munið að ekki má setja hvítan þvott í vél samhliða dökkum.
Það er Gylfi Fannar Albertsson sem kveður héðan frá Breiðavík.
Liverpool F.C.

Síðustu vikur og mánuðir hafa verið skrýtnir, Rick Parry, hægri hönd David Moores aðaleiganda Liverpool til fimmtán ára, hefur verið gjarn á að koma fram í fjölmiðlum og upphefja furstana frá Dubai. Talað var um að þau kaup væru svo gott sem frágengin, og aðeins smáatriði væru eftir, og leit þetta smáatriði svipað út og þegar maður verslar sér bíl, og aðeins ætti eftir að útvega manni smurbók með bílnum. Svo kom nafni raksápunnar til sögunnar, en hafði hann lagt fram tilboð í klúbbinn áður, en nú var hann komin með félaga sér við hlið til þess að fjármagna kaupin, sá maður er Tom Hicks.
Í gærkvöldi fór ég svona létt yfir það hvaða menn þetta eru, og fæ ég ekki betur séð en að þetta séu hinir vænstu kallar, m.a. hefur Hicks starfað lítillega með George W. Bush jr. og eru það nú aldeilis meðmæli. Gillett fór illa út úr því snemma á tíunda áratugnum, og lenti í smá fjárhagskröggum en hefur svo náð sér upp úr þeim vandræðum. En með það fyrir augum, þá minni ég á að Björgólfur Guðmundsson lenti einnig illa í því fyrir nokkuð mörgum árum síðan, en allir vita nú á hverju hann lifir í dag, þ.e. yfirdráttaokurvöxtum og fleirum skemmtilegum vöxtum sem þjóðfélagsþegnar í þessu landi þurfa að búa við.
Aðilar, sem gagnrýnt hafa þessi kaup, segja aðeins eitt, "þetta eru einhverjir kanar". Fleira hefur það nú ekki verið, ég hef lengi verið mjög hrifin af flest öllu því sem Bandaríkjamenn hafa gert, og á t.d. bandaríska fánan sem blasir við í stofunni hjá mér, því til sönnunar.
Hinsvegar, skal ég viðurkenna það, að mér leist ekkert illa á þessa fursta þarna frá Dubai svona við "fyrstu kynni", en m.t.t. til þess að aðal-sheikin þarna er augljóslega ofdekraður mömmustrákur sem fékk alltaf dýfu á ísinn sinn þegar hann var lítill strákur, þá er ég ánægður með að hann hafi farið í fýlu. Ástæður þess að ekki var gengið að þeim kaupum, voru m.a. þær að David Moores voru settir afarkostir, þ.e.a.s. hann fékk 12 tíma til þess að ákveða sig, og við það sætti Moores sig ekki við. Einnig vakti það talsverða athygli að "topparnir" frá Dubai létu aldrei sjá sig, en létu þess í stað einhverjar möppurottur fljúga til Liverpool til þess að taka út bókhaldið á Anfield. Þetta fór einnig ekki vel í þá félaga, Parry og Moores.
Eftir stendur að nýjir eigendur Liverpool, þeir Gillett og Hicks, gerðu David Moores að heiðursforseta Liverpool F.C. fyrir lífstíð. Einnig mun Rick Parry sinna áfram því starfi sem hann hefur unnið á Mersey og er það vel, enda augljóslega klár kall með Liverpool-hjartað á hárréttum stað. Tom Hicks þykir einn af þeim klárustu í bransanum, þegar smíða á nýja leikvanga, og var hans aðkoma að þessu máli, eitt af þeim atriðum sem sannfærðu Parry og Moores um að réttir kaupendur væru fundnir, gríðarlegir fjármunir eru að baki þessum kaupum, en rétt að taka fram að með þessum kaupum, skuldbundu þeir félagar sig ekki á nokkurn hátt, og er Liverpool því ekki skuldsett félag, sem verður að teljast mjög gott, ef mið er tekið af öðrum svipuðum viðskiptum með knattspyrnufélög.
Margir poolara eru viðkvæmir fyrir nafninu Anfield, ég er það ekki og eins og Gillett benti á, að ef fengist gott verð fyrir nafnið, þá væri það vel hugsandi að selja það, ef það myndi skila til baka svosem einum mjög góðum knattspyrnumanni. Þessu er ég algerlega sammála.
Talsvert hefur verið talað um að Rafael Benitez fái nú að kaupa þá leikmenn sem hann dreymir um, og hafa margar mjög ótrúverðugar fréttasíður bent á að Benitez fái um 150m.punda til þess að kaupa leikmenn, og hans fyrsta takmark verði David Villa frá Valencia. Þessum fréttum tek ég að sjálfsögðu mjög varlega, og trúi ég því ekki að heimurinn sé svona einfaldur. Vissulega fær Benitez þykkara veski þegar kaupa á leikmenn, en að það verði e-ð í þá átt sem talað hefur verið um á fyrrgreindum vefsíðum, dreg ég í mikin efa.
Þegar við hvolfum svo öllu þessu saman við botnin, þá get ég lýst því yfir að mér líst mjög vel á þessa menn, og spái því að áframhald verði á velgengni Liverpool F.C., og spái því einnig að þeir 18 englandsmeistaratitlar sem komnir eru á Anfield, nái tveimur tugum á næstu 5 árum (þetta season talið með)
Rétt upp hönd sem finnst taglið á Gumma í byrginu sexy
Á einhvern ótrúlegan hátt komst ég inn í þennan þátt og fylgdist því með Amöndu, Jake og Jack og ég veit ekki hvað og hvað, en engum náði ég svefninum.
Veit ekki hvort þetta hefur e-ð að gera með kynhneigð mína.
Gerði reyfarakaup í rumfó nú um helgina, en þar m.a. fjárfesti ég mér í straujárni og straubretti og eru þetta jafngóð kaup og þegar ég keypti mér ryksugupokanna hérna ekki alls fyrir löngu.
Jæja, hef bara engan tíma í þetta og bið ykkur því rosalega vel að lifa og munið að elska skuluð þið náungan
fín sending stefán
Í tilfefni af þessu
Það er búið að rigna á þvottinn hjá þér í heila viku !
Jæja, skrifa þetta hérna með miklum skömmustusvip, vegna gífurlegs annríkis undanfari misseri.
Er undanfarið búinn að vera að berjast við alveg hreint óstöðvandi hósta, ég hósta bara og hósta, sem hefur svo leitt út í dúndrandi eyrnaverks.
Jónína Ben var í kastljósinu um daginn, þar sem hún var að segja fólki frá stólpípuaðgerðum, hún taldi þetta mjög gott, þar sem hellingur af saur safnaðist saman í þörmunum okkar og hún var viss um að þessar aðferðir myndu ná þessum glerhörðu kögglum sem myndast í útjaðri þarmanna betur en aðrar lækningar. Svo lauk hún máli sínu á því að segja okkur að þegar Elvis Presley kallinn dó þá hafi innihaldið af saur í honum, vegið 60kg.
Vek athygli á því að þetta var orðrétt svona, og hafði ég ekki matarlyst í ca.2 daga á eftir, og er þetta eflaust tilraun hennar til þess að klekkja á Baug.
Magga Sverris (sem er einmitt dóttir Sverris Hermanns, sem er einmitt bróðir Þuríðar Hermanns, sem er einmitt systir Kaju heitinnar Hermanns, sem er einmitt amma Kela, sem heitir einmitt réttu nafni Áskell Geir) fékk ekki varaformanninn, heldur var Magnús Þór endurkjörinn. Ég tel þessi úrslit mjög hagstæð fyrir aðra stjórnmálaflokka.
Ég fór erlendis um áramótin og er að leggja lokahönd á ferðasögu sem mun birtast hérna innan tíðar.
Ég er nokkurn veginn búinn að ákveða að skipta um blogg-vettvang, halla (vilhjálms) mér að Himma á 123 fljótlega.
Í fyrradag fékk ég slæmar fréttir, að tölvan mín væri hrunin, ég seig niður á hnén og fórnaði höndum í átt til himins og spurði af hverju ! Ég grét voða voða mikið og svaf einkennilega um nóttina og dreymdi mig að einhver kom til mín, og sagði við mig í sífellu "reddaðu þessu bara" "reddaðu þessu bara" "reddaðu þessu bara" með svona ljúfri rödd, en ég svaraði á móti "en það er búið að dæma hana ónýta" en alltaf fékk ég þessi fyrrnefndu comment til baka. Svo vaknaði ég, búinn að slefa alla hægri höndina á mér út í munnvatni og horslími (sem kom upp úr hálsinum mínum), og byrjaði ég því daginn á að þrífa hana og tók ég mér korter í það. Deginum áður, voru 2 tölvusérfræðingar búnir einmitt að dæma hana ónýta (99% öruggt) og byrjaði ég því á að rölta til pabba og fara á netið og skoða mig um á tölvusíðum o.þ.h. með það fyrir augum að versla mér 1 stk tölvu. Komst að því að sú tölva sem ég var búinn að mæla út, kostaði svipað og 3-4 heimsóknir til tannlæknis. Ég var því á milli steins og sleggju, ætti ég að bara að versla mér hana, eða að fá mér e-ð ódýrara. En jæja, sá lyklaborð þarna á borði, og ætlaði að prófa þetta 1% sem eftir var af voninni um að gamla tölvan væri bara í fínu lagi.
Viti menn (og konur líka okey), plöggaði lyklaborðinu í, og tölvan ræsti sig ! Þetta þýðir það að ég trúi á kraftaverk. Þetta var svipuð tilfinning og þegar ég sé að Luis Garcia erekki í leikmannahóp Liverpool eða þá að honum er skipt útaf í leikjum.