Að leggja land undir fætur
Eftir 75 ár - Gleðileg Jól
Á ofangreindri vefslóð gefur að líta grein við 100 ára gamla konu, sem kveðst hafa skemmt sér vel þegar hún var yngri, þ.e. þegar jólahátíðin gekk í garð. Þarna talar hún um að hafa fengið nýja sokka, og nýja peysu, sem móðir hennar hafi að sjálfsögðu saumað á sig, og systkini sín. Ekki voru keyptar einhverjar sérstakar gjafir handa börnunum, eins og tíðkast svo sannarlega í dag.
Hvernig verður þetta eftir 75 ár, ætli maður verði í viðtali við einhvern fjölmiðilinn um það hvernig jólin voru hjá mér í gamla og daga. (og ætli þær sögur yrðu gamaldags)
"Já, ég aldist nú upp á Húsavík, en þá var mikið mannlíf þar á þeim tíma, ekki svona sumarbústaðabyggð eins og er þar nú. Uppáhaldsgjafir okkar krakkanna voru iPod, nýjir tölvuleikir, levis, diesel eða gabba fatnaður. Þá fóru allir út fyrir jólin og eyddu miklum pening við jólagjafakaup. Bankastofnanir þá, lánuðu fólki fullt fullt af peningum sem það gat svo eytt í jólagjafir. Í þá daga, þótti gott að kaupa rakettur og skjóta þeim svo upp, þegar nýja árið gekk í garð. Þá var nú gaman einnig."
Svo er maður spurður af því hvort aðrar breytingar hafa orðið frá þessum tíma ? (75 árum seinna)
"Já, ég er nú aldeilis hræddur um það, mikið af fólki gekk til messu þessa daga, og þá horfði fólk á sjónvarp, á messur og jólamyndir. En þá horfði fólk á sjónvörp sem voru ekki nema 50" sjónvörp. Ekki þessa risaskjái sem nú eru að færa sig inn á öll heimili."
Semsagt, e-ð verður nú sennilega búið að breytast í jólahefðinni eftir ca. 75 ár. Tímarnir breytast og mennirnir með hvíslaði lítill fugl mér um daginn.
Læt þetta verða lokaorðin, og tók ég þá ákvörðun í gærdag eftir að jólakortin (sem ég var búinn að ákveða að yrðu engin af minni hálfu) hlóðust inn um lúguna hjá mér að senda nokkur kort, en þau kort sem ég hef fengið send frá stórreykjavíkursvæðinu, sem og af landsbyggðinni vil ég þakka fyrir og óska þeim aðilum sérsaklega gleðilegra jóla, og gæfuríks komandi árs. En þetta verða nú samt ekki nema 10-15 kort sem ég ætla að hlaupa með í dag.
Gleðileg Jól og farsælt komandi ár kæru lesendur, og megi þið fylgja slóð frelsara ykkar, Jesús Krists á næstu árum og hlýða þeim boðskap sem hann kann ykkur að færa
Er víst nokkuð bjart yfir Betlehem
M.v. fréttaflutning af þessu máli, kæmi mér verulega á óvart ef sjónvarpsstöðvarnar á íslandi sameinuðust ekki í svona "allir saman" þátt um jólin og söfnuðu fyrir fólk pening, t.d. fólkinu sem missti hestana sína þrjá. Þetta myndi minna á útsendinguna sem stöðvarnar héldu þarna um árið þegar flóðin þarna fyrir austan áttu sér stað.
Ég er enn ákveðnari í þeirri skoðun minni að Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fréttakona á stöð2 sé, ásamt sennilega Birni Þorlákssyni á sömu stöð, séu leiðinlegustu fréttamenn sem mynduð hafa verið !
En já, allavega, Jón Sverrir keyrði fram af brú, og samkvæmt vitnum þá er það kraftaverki líkast að hann skyldi halda lífi.
En jæja, flestar fjölskyldur landsins farnar að selja börnin sín vegna eyðsluseminnar fyrir jólin og neita að styrkja björgunarsveitir landsins eftir jólin með kaupum á rakettum af því að "ég get bara horft á nágrannan gera þetta". Held að það væri ráð fyrir Inga Sveinbjörns, Dedda og þessa kalla að selja rakettur fyrir jólin, er viss um að söluaðilar fengu meira í kassann ef það yrði gert.
Ég sjálfur er einmitt komin í sannfærandi frí, langt framyfir áramót og lítur það bara nokkuð vel út skal ég segja ykkur, fríið byrjar á morgun þegar ég ætla að þykjast virka "gloralegur" þegar ég ætla að tengja bakhátalaranna fyrir karl föður minn, spái því að mín sérstæða þolinmæði muni sigra að lokum.
Liverpool fær Watford í heimsókn á laugardaginn, og verður ljóst eftir þá viðureign að leikmenn Watford komi ekki til með að eiga gleðileg jól, því auðvitað munu leikmenn Liverpool sigra þenna leik sannfærandi, ég er reyndar svartsýnn fyrir leikinn og spái leiknum ekki nema 3-0 fyrir Liverpool en bjartsýnin kemur máske á morgun.
Læt þetta duga í bili, og mun væntanlega kasta kveðju á ykkur fyrir jól.
fín sending stefán
Að versla
, henni Olgu Maríu eftir og ljóst er að það verða ekki vandræði að velja gjöf sem hún verður glöð með :)En allavega, að deginum sem nú er að líða, vaknaði upp óvenjuglaður í bragði, arkaði framúr eins og Sharon Stone væri að bíða eftir mér ! Dauðhreinsaði allar stýrur í báðum augunum mínum áður en ég burstaði tanngarðinn í mér vel og vandlega. Örstuttu síðar hringir Hrólfur í mig og segist vera á leiðinni og ég allur fuðrast upp, vegna þess að ég var á leiðinni inn á akureyri, þar sem m.a. eru umferðarljós.
@líst, við drífum okkur inneftir, og ræðum ýmsa hluti á leiðinni og marga hverja ansi hreint skemmtilega og erum svo mættir inneftir og röltum hlægjandi inn um rafmagnsdyrnar á glerártorginu (þá leið mér eins og samkynhneigðum). Hrólfur þurfti að byrja á því að kasta af sér, og ég beið eftir honum og síðan fengum við okkur að borða og svoleiðis, versluðum af okkur aleiguna, enduðum á horninu naktir og fórum að selja okkur gömlum ekkjum, máske ekki alveg. Það var þó eitt sem kom fyrir mig, sem ég hef ekki lent í áður, þ.e. hef ekki fengið svona nautsterka tilfinningu fyrir því áður, en það var þegar ég gekk um búðirnar með kerruna mína blístrandi jólalög hægri vinstri, þá fannst mér alltaf gamalt fólk eða fólk sem á, af einhverjum ástæðum hægara um vik en margir aðrir, keyra kerrunni sinni fyrir framan mig og tafði það mig talsvert, stútfullur af jólaanda, brosti bara til þessara gamlingja, já og hinna líka.
En já, stutt yfirgrip yfir daginn er á þessa leið = Keyrðum inneftir, versluðum í glerártorgi - ellingsen - Byko - jmj og átvr. Þetta var hin besta ferð og er ég viss um að Hrólfur deili þessari skoðun minni, að þetta sé ein af betri akureyrarferðum sem farnar hafa verið.
Það var reyndar eitt óheppilegt sem kom niður á (nei upp á), en það var þegar ég verslaði gjöfina fyrir mína elskulegu foreldra, það var þannig að Hrólfur skrapp frá á meðan ég fjárfesti í gjöfinni og gekk það allt gríðarlega vel. Svo beið ég í "forstofunni" í Byko og er þar að finna svona aðstöðu fyrir fólk sem vill pakka inn hlutnum sem það verslaði. Ég stóð þarna hugsi í þónokkurn tíma, áður en ég lét til skarar skríða, þ.e. að pakka þessu hlut inn. Ég hefst handa við að kynna mér hvernig þetta dót virkar, og svo næ ég pappírnum í gegn og byrja að reyna að böggla pappírnum utan um kassann, fyrsta tilraun misheppnaðist algjörlega, svo ég lít í kringum mig, og sé að enginn hafði upplifað þessa hörmulegu reynslu karlmanns á aldrinum 24 ára við að reyna að pakka kassa í pappír. Þannig að ég reyni aftur, en niðurstaðan er sú sama, þ.e. þetta klúðraðist. Þarna var ég frekar "frústíreitaður", og lít til hliðar þar sem standa 2 (tvær) konur að fylgjast með mér, og ég svona brosi til þeirra með þá von í brjósti að þær myndu hjálpa mér, en þeim stakk ekki bros á vör (og hefur aldrei gert spái ég, óhamingjusömustu og leiðinlegustu konur á akureyri) og hristu bara hausinn yfir þessu. Ég leit undan, og lét eins og þetta "ignore" þeirra hefði engin áhrif á mig, en það gerði það svo sannarlega. Gaman samt að segja frá því, að þegar ég kom heim frá akureyri, læsti ég útidyrahurðinni og pakkaði þessu öllu saman inn og árangurinn er stórfenglegur !
fín sending stefán
Liverpool vs Barcelona
Ég fékk í alvöru talað bara samviskubit yfir þessum drætti í dag(vegna íslendingsins), þar sem í ljós kom að Liverpool taka á móti Barcelona í 16-liða úrslitum meist.deildar evrópu.
Semsagt, fyrsta hindrun fimmfaldra evrópumeistara (ef hindrun skal kalla) verða litlu vælukjóarnir í barcelona.
Fyrri leikurinn fer 1-1, þ.e. á Nou Camp en síðari leikurinn, á Anfield Road fer 3-1 fyrir rauða herinn og þ.a.l. fara þeir örugglega áfram í keppninni.
Meira af boltanum, Sir Alex Ferguson sagði í dag, í tilefni að því að Dong Fangzhou fékk atvinnuleyfi á englandi, að "Strákurinn eigi frábæra möguleika"
Það sem Ferguson á við er, "Strákurinn á frábæra möguleika í að verða okkur mjög góð tekjulind í asíu" Þetta er einn af þessum "deildarbikarmönnum", þ.e. fær að spila nokkra leiki í deildarbikarnum, en svo ekki söguna meir !
Feitur biti sem Frón-kallinn náði að klófesta í Curba, West Ham ná uefa-sæti á næsta seasoni.
En allavega, til hamingju poolarar !
Bush er fínn
Síðustu dagar hafa verið einkar skemmtilegir, búinn að afreka heilmargt frá því síðast, í þessum jólaundirbúningi. En það sem ég er búinn að gera er að kaupa jólakort & skrifa á nokkur þeirra. Þá er það upptalið. Ég þarf nú sennilega ekki að kaupa nema að hámarki 7 gjafir þessi jólin, sem er nokkuð vel sloppið.
Þessir dagar hafa þó ekki verið áfallalausir, svolítið sérstakt og spúggí mál hefur blossað upp hérna, framleiðendur í hinni snobblausu hollywood gætu tekið þetta mál upp á sína arma og búið til eina mynd eða svo. Heiti myndarinnar gæti verið "The Car". Því einn daginn þegar ég svaf á koddanum mínum hringdi síminn eins og enginn væri morgundagurinn, og var ég þónokkrum sinnum búinn að gefa sá hinum sama afsvar, þ.e. ákvað að sofa lengur. En hann lét sér ekki segjast og bara hringdi og hringdi, þannig að ég snéri mér við tók upp símann og svaraði. Tilefnið var það að bakkað hafði verið á bílinn hjá mér. Alltaf gott að vakna upp við þannig fréttir. Samtalinu lauk, og ég svaf aðeins lengur.
6-7 dögum seinna er ég sofandi, jafn vært og í fyrra skiptið, þegar síminn byrjar að hringja og hringja og hringja og hringja og hringja. Tilefnið var að búið var að bakka á bílinn hjá mér, og var það enginn annar en Haukur Hauksson, oft kallaður Snúlli.
En já, sagan búinn.

Fór í laufabrauð um daginn, og þarf vart að taka fram að allt gekk ótrúlega vel og talaði fólk um að þetta hefði gengið sérstaklega vel þetta skiptið. Setningar eins og "Djöfull munaði um þig Æbbi", "Bíddu, ert þú höfundur laufabrauðsins Ævar?" hljómuðu eftir laufabrauðsgerðina ! Án þess að monta mig e-ð af kunnáttu minni í laufabrauðinu þá voru þetta mjög eðlilega spurningar.
Fréttirnar um daginn, þegar maðurinn lést í slysinu þarna á vesturlandsvegi held ég að það hafi verið, eru býsna sérstakar. Fólk sem sá gjörsamlega handónýta bíla þarna við veginn hringdi víst snælduvitlaust í lögguna og sagði henni að drulla sér í burtu svo þeir gætu haldið leið sinni áfram ! Þetta segir manni eingöngu það að allar geðdeildir eru svo sneisafullar og væri ráð fyrir heilbr.ráðherra að fjölga rúmum og styrkja þennan þátt í kerfinu. En hvað er þetta eiginlega ? Mín spá er að þetta sé vegna jólanna, fólk að farast úr stressi og rugli, ekki búið að kaupa neinar jólagjafir, visa-reikningurinn hleðst upp í aðdraganda jólanna, börnin að gera foreldranna geðveika vegna krafna þeirra um 100.000.-kr jólagjafir og svo deyr maður og 2 bílar í hassi og fólk einfaldlega gleymir sér í bulli og hringir á lögregluna og segir henni til syndanna !
En já, að skemmtilegri fréttum, ég leyfði bragðlaukunum mínum að njóta lífsins um helgina, en þeir fengu eftir töluverðan þrýsting á mig, að prófa að fá á sig jólabjórinn frá viking. Það er vægt til orða tekið að segja að þeir hafi verið hæstánægðir með mig þá, og hoppuðu þeir um af gleði í þónokkurn tíma á eftir. En ég gaf þeim loforð um það að þetta yrði ekki eina skiptið sem þeir fengu jólavíkingin á sig.

Jæja...læt þetta duga í bili og vona að þið hafið það sérstaklega gott og endilega hreint látið það vera að hringja í lögguna og segja henni að hypja sig í burtu ef hún er að klippa í sundur bíla með stórslösuðu fólki þar fyrir innan.
Jólin koma...Jólin koma (verður að raula þetta eins og í laginu)

Þau skylduverk sem maður þarf að vera búinn að gera fyrir hver jól, sem ég er búinn að gera fyrir þessi jól eru eftirfarandi:
- Búinn að taka fram jólatréð og búinn að skreyta það.

Þá er það upptalið og eins og sjá má, þá á ég heilan helling eftir að gera á næstu dögum og vikum til þess að uppfylla þau skylirði sem jólin draga á eftir sér. Ég á t.d. eftir að kaupa allar jólagjafir, kaupa og skrifa jólakort, kaupa mat, kaupa gos, kaupa toblerone o.s.frv.o.s.frv.
Skrýtið samt með það, hvað maður er árstíðarbundin með hina ýmsu hluti, s.s. Toblerone-ið, nú finnst mér Toblerone mjög gott súkkulaði, alltaf gott þegar hvítu flögurnar í því ágæta súkkulaði klessist upp á milli tannanna á manni og maður er a.m.k. 2-3 daga að losna við það, ef maður á ekki tannþráð. Ég reyndar nota tannþráð, svo ekki á ég við það hvimleiða vandamál að stríða. Sömu sögu er að segja um laufabrauð, mér finnst fínt að fá mér laufabrauð (tek einmitt 30 kökur þetta seasonið), en einungis borða ég það um jólin. Mér finnst reyndar bollur ekki góða, þið vitið, svona vatnsdeigsbollur og gerbollur o.þ.h. bollur, en fullt af fólki borðar þær einungis dagana í kringum bolludaginn. En já, nóg af því, ég er @líst búinn að skreyta jólatréð og gerði ég það undir ljúfum tónum íslenskra tónlistarmanna og voru það helst lög á borð við "Líður að jólum" með Stebba Hilmars og "Litla Jólabarn" með Andreu Gylfa sem auðvelduðu mér verkið, eina sem vantaði upp á var heitt kakó. Stefni að því að klára að skrifa jólakort fljótlega og ætla ég skrifa talsvert mikið af jólakortum. Ég er búinn að fá 1 stk jólakort fyrir þessi jólin, ég hyggst ekki senda henni/þeim til baka, en einhver gilsstaðarkona sendi mér jólakort með boðskap jesús og guði og fleirum, frétti að margir aðrir hafi verið þess heiður aðnjótandi að fá jólakort frá þessari konu einnig.

Sheik Mohammed bin Rashid Al Maktoum er hugsanlegur kaupandi að Liverpool F.C. Held að þetta sé hinn vænsti kall þrátt fyrir yfirlýsingar frá stuðningsmönnum annarra klúbba um að svo sé ekki. Það var einmitt m.a. hádegisfundur í gærdag og ljóst er að fullt af fólki er afbrýðisamt út í stuðningsmenn Liverpool, vegna þessara hugsanlegu kaupa. Menn segja að þessi Sheik sé allt að því hryðjuverkamaður, en kommon, eins og ég sagði á fundinum þá væri auðvita auðvelt að finna e-ð að honum, auðvitað hefur hann stigið feilspor í lífinu en hann á nú skilið annað tækifæri, bara eins og Árni Johnsen. Nú á dögum, þar sem geisar stríð út um víða veröld þá bara verðum við að finna það góða við náungan endrum og sinnum, og fullyrði ég að Sheik þessi er bara flottur kall.

Svo minni ég fólk á að Robbie Fowler skoraði bæði mörkin í 2-3 tapi gegn Galatasaray í gærkv. en Liverpool spilaði með varaliðið sitt (fyrir utan Fowler) enda fyrir lifandi löngu komið upp úr þessum erfiða riðli sem það var í.

Það sem á daga mína hefur drifið...
...er vinna - sofa - og baka ![]()
Ég hef ákveðið að gefa bakstrinum hjá mér undanfarið einkun.
1. Man fyrst þegar ég ákvað að baka bara eins og það hafi gerst í gær (það eru nú ekki nema held ég 3 vikur síðan (en ég er mjög gleyminn samt)) Var að rölta frá tannburstanum og stærsta vandamálið í þeirri gönguferð var það, hvort ég ætti að halda áfram á St.Andrews, þ.e.a.s. á 3 hring í Tiger Woods leiknum, eða þá hvort ég ætti að halda áfram að brillera með Liverpool í FIFA í PS2. Ég labba hægt og man ég eftir því að ég fékk hausverk af þessum vangaveltum. Staðnæmist fyrir framan nýja sófann minn, og horfi upp í loft, lít í kringum mig og þar er amma mín heitin á vegg, og ég les það svo greinilega á vörum hennar, "ævar minn, hvernig væri það nú ef þú færir bara að baka" ? Ég svaraði henni í huganum "jú, veistu amma, best ég geri það bara".
2. Dreif mig niður í búð og verslaði mér í skúffuköku og bjó hana til og til svo sannarlega gamans má geta að þetta var mín fyrsta skúffukaka og þegar ég beit í fyrsta bitann af henni, þá leit þetta út eins og um væri að ræða mína þúsundustu skúffköku. Einkun 9,0 (ekki 10,0 vegna þess að ég notaði ótæpilega mikið af kókosmjöli)
3. Næst á dagskrá, eftir að hafa brillerað svona með skúffukökuna, voru skinkuhorn. Þau tókust einnig allt að því óaðfinnanlega. Ef ég ætti að ´krítisera´ sjálfan mig á einhvern hátt, þá er hægt að segja sem svo að það voru mistök að hafa ekki skinkubita/kurl í þeim, en skinkusmyrjan gerði það að verkum að hornin brögðuðust átakanlega vel. Einkun 9,0
4. Súkkulaðisnúðarnir voru næstir á dagskrá, fyrsta uppskrift gekk eins og í sögu og velti ég því alvarlega fyrir mér hvort ég gæti jafnvel gert þetta blindandi ! Þegar ég svo deildi þeim út í bæ, upphófust mikil fagnaðarlæti, og gekk fólk berseksgang í að hæla þessum snúðum, sumir meira að segja gengu svo langt að segja að um bestu snúða sem þau höfðu smakkað væri að ræða. Einkun 10,0
5. Þá dundi yfir mig áfallið ! Ég gerði aftur snúðana, og þarna greinilega var ég farinn að álíta mig sem týnda bakarann. Gerdeigið, sem eins og flestir vita á að vera mjúkt og helst örlítið blautt eftir ´lyftingu´ hafði svo lítið sem ekkert lyft sér og þá voru góð ráð dýr. En ég hafði ekki þessi ráð en hélt engu að síður ótrauður áfram með uppskriftina og kláraði að baka þessa snúða, þeir voru frekar harðir og grunar mig að annaðhvort hafi ég sett of mikið af hveiti í skálina, eða þá að smjörlíkið sem ég bræddi og mjólkin sem ég hitaði hafi ekki verið nógu heitt þegar ég skellti því skálina. Einkun 6,0 (6,0 fyrir að hafa ekki gefist upp og fleygt deiginu í ruslið ásamt öllum þeim áhöldum sem ég hef verslað undanfarið í tilefni af bakstursáráttu minni)
6. Eftir töluverðar vangaveltur um það sem fór úrskeiðis við síðasta bakstur var haldið áfram í gærdag. Ég ákvað að gera svona snúða, en þó ekki súkkulaðisnúða, ákvað að gera skinkusnúða. Til að gera langa sögu stutta, þá brögðuðust þeir snúðar eins vel og hægt var að hugsa sér. Ég hringdi í mína nánustu og sagði þeim frá þessu og vildu þeir eðlilega endilega fá að smakka á þessu lostæti sem ég hafði búið til og einn þeirra skoðaði meira að segja hendurnar á mér og vildi fá að vita hvaða töfrar væru þar að finna. Einkun 10,0
7. Nú, fljótlega upp úr hádegi var búið að ráðast svo harkalega á snúðanna að þeir kláruðust fljótt. Við því var brugðist fljótt, ég skellti því í aðra uppskrift bara og hafði hana örlítið stærri, og ekki þarf að spyrja að því hvernig það tókst, svo ég vitni nú í hana móður mína orðrétt "æji takk elskan mín, ég verð nú bara að fá þig til að baka fyrir mig alltaf" Já, þið sáuð rétt, móðir mín notaði orðið ´alltaf´ við þetta tilefni. Einkun 10,0
Nú hef ég ákveðið það eftir töluverðar bollalegginar á kaffihúsum bæjarins að baka 6 sortir fyrir þessi jól. Sortirnar hafa þó enn ekki verið ákveðnar en fyrr en seinna mun ég upplýsa hvaða sortir það verða sem munu prýða kökuílát margra heimila víðsvegar af á landinu nú um hátíðirnar.
Ætla að leyfa nokkrum myndum að fylgja með þessum skrifum![]()
![]()
![]()
![]()
fín sending stefán
Setti í nokkur Muffins-form
Mér finnst ég hafa greint mikla fjölgun máva niður við bryggju þegar ég hef keyrt þar framhjá. Ástæða fjölgunarinnar er mér hinsvegar ókunn. Það virðist ekkert ætla að minnka í snjóinn hérna á víkinni. Einhver bílasýning var á eyrinni um helgina, og komst ég því miður ekki, en það hefði nú verið sérdeilis skemmtilegt ef maður hefði fengið að berja augum sínum á nýju Primeruna, sem á víst að vera með 2x afturhjólakíttií aftan við nippilinn hægra megin við aftari demparana. Auk þess hefði verið gaman að sjá nýju kastaranna sem Bílanaust eru komnir með í sölu, en þeir eru víst með 145% auka halogen-geislum sem orsaka að þú þarft ekki lengur að nota lágu geislanna, þ.e. þegar þú notar ekki 100w perurnar sem fylgja original-útgáfunni af nýju perunum. Svo síðast en alls ekki síst, þá hefði maður eflasust misst úr honum ef maður farið og skoðað nýju viðarklæðningarnar í nýju Mözdunum ! ussss....þeir segja mér það félagarnir sem komu með nýja playboy-dagatalið til mín í gær á verkstæðið, að nýja Mazdan, SRT 440 sé suddaleg ! Ég er búinn að sjá myndir af spoilernum af henni og dísús kræst, ef að þetta er ekki græja sem hver maður verður að eignast þá er e-ð að ! Þegar ég verð búinn að gera þenna Willys-jeppa upp, og athuga framanverðan öxulinn á Cadilacnum hans Jóa "drifskapti" þá ætla ég að keyra suður á Corvettunni og skoða þessa græju ! (verð reyndar sennilega 2 daga að koma Corvettunni í lag, er nefninlega að bíða eftir alvöru "pústi" í hana, pantaði mér það á e-bay á nokkra dollara)
En já og jæja, Jón Sigurðsson, formaður framsóknar (exbé) sagði frá því að innráisin í írak hefði verið mistök. Nú jæja, þetta voru semsagt mistök af hálfu ríkisstjórnar íslands að fylkja sér á bakvið Bush og Blair við upphaf stríðsins. Enn logar allt í átökum í Írak enn þann dag í dag, sem er svolítið skrýtið af því að ég man eftir viðtali einu við núverandi Seðlabankastjóra, og fyrrv. forsætisráðherra Deivid Ódson, þar sem hann lýsti því yfir að óöldin í írak væri að mestu yfirstaðin, það væri verið að koma á kyrrð þarna í einhverju litlu þorpi í írak en þessir stærstu staðir í írak væru í fínu lagi. Ég trúi Deivid, auðvitað er bara verið að gera of mikið úr þessu ástandi í írak.
Liverpool gerði sér lítið fyrir og sigraði City um helgina, 1-0 og mark rauða hersins skoraði Steven Gerrard.
Farið var á bauksa um helgina, og þar var enginn annar en Johnny King að spila, en Johnny þessi er án alls vafa sá skemmtilegasti í bransanum í dag, alltaf e-ð svo brosmildur og hæstánægður með lífið. Ég veit til þess nefninlega að á sunnudeginum, þá lét hann hafa það eftir sér að gaman væri að drulla sér héðan í burtu, hann var spurður af hverju, útaf þessum helvítis snjó sem safnast hérna saman ! Þess má svo geta að Johnny var alls ekki að spila gott mót á bauksa um helgina.
Ákvað það svo í gær, að skella í nokkrar Muffins, og tókst það líka svona rosalega vel. Ég einmitt setti jóladisk á fóninn, og byrjaði að raula með þeim, og fannst e-ð svo krúttlegt að rölta út í kjörbúð og versla mér hveiti, súkkulaðispæni o.s.frv. til þess að skella í nokkrar Muffins. Ekki þarf að spyrja að því hvernig það endaði, Steinunn Þórhalls hefði orðið stolt af mér með þessar kökur. En Steinunn þessi var matreiðslukennarinn minn á mínum yngri árum, og mun ég, þegar fjölmiðlar landsins teppa af umferð til og frá húsi mínu fljótlega, tileinka Steinunni hæfni mína við bakstursstörfin að einhverju leyti, þó að hún Amma mín heitin sé mesti áhrifavaldurinn í baksturshæfileikum mínum !
fín sending Stefán
Tæknileg mistök
Jájá Árni. Tæknileg mistök, hárrétt hjá þér.
Það kom bersýnilega í ljós í fréttatímum í gærkvöldi hvað ég hafði að sjálfsögðu rétt fyrir mér nú um daginn þegar ég tók fyrir "veðurofsa" á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta frétt í fréttatímum dagsins í gær var um snjókomuna í reykjavík. Ég hjó sérstaklega eftir spurningum fréttamanns á RÚV (og fannst mér með heilmiklum ólíkindum að ég, ásamt einhverjum öðrum erum að borga þessum fréttamanni laun fyrir störf sín), en þannig var að hún stóð þarna og talaði um þessar "náttúruhamfarir" þeirra sunnanmanna og við hliðina á henni stóð maður með skóflu, svona staðlaðar skóflur örugglega sem björgunarsveitir í reykjavík hafa sent í öll hús í reykjavík vegna þessa óveðurs. Allavega, þá stendur hún þarna við hliðina á honum og komu m.a. 2 spurningar, fyrsta spurningin var "Er mikill snjór" og spurning nr.2 var "Ertu búinn að vera lengi að moka". Okey, ef um væri að ræða atvinnufræði hjá Ingólfi, eða starfskynningu hjá fólki sem væri á meðferðarheimili, þá tæki ég þessar spurningar góðar og gildar, en þarna stendur hún og spyr um það hvort mikið sé um snjó. Það er a.m.k. þannig hjá mér, að ég spyr spurninga sem ég bersýnilega veit ekki svarið við, en ef ég stend úti, þar sem mikill/lítill snjór er, þá hef ég alveg dómgreind í að segja mér það sjálfur. Það kæmi nú aldeilis skrýtinn svipur á nágrannan ef ég færi út, og hlypi að næstu útidyrahurð, og dinglaði þar bjöllunni og spyrði ábúandann þar hvort væri mikill snjór eða lítill snjór. En já, aðalatriði málsins er að mikið óveður skall á í reykjavík, og fóru fréttastofur landsins, sem hafa, kannski eðlilega, höfuðstöðvar sínar í reykjavík heilmikinn í að tilkynna fólki um þennan veðurofsa sem skapaðist. Það kom svona 10.000 sinnum verra veður hérna á víkinni um daginn, og ekki man ég eftir að Bogi Ágústs eða Sigmundur Ernir hafi verið hér á svæðinu til þess að horfa á fólk moka snjó (fyrir utan hvað það er óendanlega pirrandi) og spyrja þá að því, hvort mikið væri um snjó !
En já, aðeins að pólitíkinni, Árni Djónsen er mættur aftur til þingstarfa, eftir næsta vor. Mörgum finnst það pirrandi að maður sem misnotaði aðstöðu sína illilega á sínum tíma, á launum hjá skattgreiðendum þessa lands, skuli geta dottið inn á þing aftur. En þetta voru víst bara tæknileg mistök á vestmannaeyingnum knáa, reyndar að hans sögn. Frjálsyndi flokkurinn er rasista-flokkur, þeir opnuðu innflytjendaumræðuna á svo vitlausum stað að það nær ekki nokkuri tali, þeir fimmfölduðu held ég fylgi sitt, og hef ég komist að því hvaða þjóðfélagshópar það eru, sem hrönnuðust (þó ekki Hrönn Kára) á bak við Magnús Þór og félaga í frjálsynda. Ég ætla ekki að tilgreina hvaða hópar það eru, sem eru svo obboðslega glærir að þeir sjá ekki að þetta útspil er eitt það lágkúrulegasta sem ég man eftir.
Liverpool - Liverpool F.C. eru búnir að skíta upp á herðar. Stjóri liðsins, sem hefur einhvern þann alleiðinlegasta hreim sem ég veit um, talar um að þetta sé allt í lagi, í 99 leikjum af 100, þá hefðum við sigrað lélegt lið Middlesbrough ! Nákvæmlega þarna, er vert að spá aðeins í hlutina og spyrja hvort Rafael Benitez sé:
a) Heilaskemmdur
b) Dópisti
c) Með ólæknandi blindu
d) Veruleikafirrtur
d) Meinilla innrættur
Ég ætla ekki að taka sterkara til orða en svo að hann sé á villgötum með þetta lið, en alltaf er hægt að sjá ljósið í myrkrinu. En ljósið í myrkrinu er ekki að finna í Reina, Riise, Carragher, Gonzalez, Zenden, Pennant, Bellamy og Crouch svo dæmi séu tekin.
Ég er orðinn svo pirraður á gengi Liverpool að ég finn það ekki einu sinni hjá mér að baka !
Núna er ég líka orðinn svo pirraður á gengi Liverpool að ég finn það ekki lengur hjá mér að skrifa meira.
fín sending Stefán
