Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

(skiptiborð) "Bakarískeðja ÆÞÆ góðan dag"

06. nóvember 2006 klukkan 21:40

Já, ákvað það þennan daginn að engin af þeim uppskriftum sem ég ætlaði mér að baka yrði í dag. Þess í stað ákvað ég að gera Skinkuhorn. Tók auðvitað út hvað ég átti í bakarahillusamstæðunni minni, og kom það auðvitað ekkert á óvart að ég átti ca 80% af þeim hráefnum sem þurfti í skinkuhornin. Hitti litla stelpu sem heitir Erla Björk og hún sagði mér frá sinni reynslu af skinkuhornum og saman spjölluðum við um skinkuhorn í góðar 15-20mín. Ég spurði hana að því hvort ætti að notast við smjörlíki í stað smjörs í verkið og hvort þyrfti ekki að nota bökunarpappír þegar hornin væru að bakast. Auðvitað var stelpan með þetta allt á kristaltæru, þ.e. hvernig átti að framleiða skinkuhorn.Þrátt fyrir að vera frábær bakari, er alltaf gaman að hlusta á reynslusögur annarra sem handleika kökukeflið og gat ég nýtt mér sitthvað af því sem Erla hafði að segja og færi ég henni bestu þakkir fyrir það :)

Allavega, þá hefur skúffukakan frá því um daginn slegið það rækilega í gegn að síminn hjá mér hefur vart stoppað, og hafa það verið kvenfélagskonur í stórum stíl að óska eftir allskonar uppskriftum. Ég hef, þó glaður hefði ég viljað, ekki getað svarað miklu í þeim efnum, því það er með mig, eins og Jamie Oliver, að við notumst voða lítið við einhverjar sérstakar og heilagar uppskriftir. Þó eru enn nokkrir afbrýðisamir aðilar þarna úti sem geta vart skilið það (og vilja það kannski ekki bara) að ég er frábær að baka, og nota hvert tækifæri til að draga það í efa að ég geti bakað. Ég hef því, eftir að hafa sofið á því í nótt, ákveðið að sýna fólki myndir af þessu öllu saman í dag. Fólk getur farið hérna í myndir, uppi til hægri og valið þar "Nóg að gera á stóru heimili" held ég, og séð það hversu öflugur í eldhúsinu ég er !

En jæja, best að fara að huga að næsta bakstri og þeir sem það vilja, geta leitað til mín og ég þá reynt að baka það sem fólkið vill, en eins staðan er akkúrat núna eru næstu 2 vikur uppbókaðar...1 brúðkaup, 2 fimmtugsafmæli og fleira á döfinni.

Fín sending Stefán

Lítið skref fyrir mannkynið....

04. nóvember 2006 klukkan 13:18
....en risaskref fyrir mig !

Já, það er óhætt að segja að síðasti fimmtudagur hafi ekki verið neinn venjulegur fimmtudagur. Þegar ég lagðist til rekkju þetta vetrarkvöld hér út á fróni, þá hafði ég komist að því að baksturinn á einstaklega vel við mig. Þannig var mál með vexti (þó ekki ávexti) að ég ákvað um þrjú-leytið að draga fram kökuform og skunda niður í kjörbúð og verlsa mér hráefni í skúffuköku. Skal viðurkenna það að ég hafði engar væntingar til verksins, gekk um búðina eins og nýfætt dádýr í leit af öllum þeim hráefnum sem góð skúffukaka þarf að innihalda. Svo til þess að vera viss um að kakan yrði sú besta hingað til, þá fjárfesti ég mér í ekki ómerkari hlutum en desilítramáli og sleif. Ég lenti í röð, fyrir framan og aftan við mig stóð fólk líka með körfu eins og ég, ég fór nú í smá vettvangsrannsókn og skoðaði hvað fólk var að kaupa, og þar var að finna svona 1944 rétti aðallega og skinkusnúða. Ég hinsvegar, stóð fullur af monti þarna með sneisafulla körfu af svona "heimilislegum hlutum", sem þurfti í eins og eina skúffuköku. Á örlitlu augnabliki í biðröðinni fann ég fyrir fordómum í garð annars fólks sem í biðröðinni beið, hugsaði með mér "isss, bíddu eldar þetta lið aldrei, eða a.m.k. bakar eða eitthvað". Svo heyrðist ´næsti gjörið svo vel´ ég lít svona í kringum mig, stoltur með körfuna mína, og geng í átt að búðarborðinu og skelli blýþungri körfunni upp á hilluna þarna og fer að draga þessa hluti alla saman upp og horfi mjög reglulega í kringum mig, svona til þess að vera viss um að allir sjái það að ég sé að fara að baka. Þarna fékk ég þónokkra ástríðufulla augncontacta frá konum 65+ sem allar voru mjög sáttar við að svona ungur, hress, myndarlegur, frábær, hraustur, barngóður, tillitsamur strákur væri að fara að baka. Ég reyndi að haga mér þannig að þetta væri sem daglegt brauð fyrir mér, þ.e. að versla mér í bakstur. Svo til að fullkomna verkið, þá bauð ég einni af þessum elskulegu konum far heim, því hún var að burðast með 2 þunga poka þarna og hver var betur til þess falinn en ég að bjóða henni far heim !

En já, þessu næst læsti ég hurðinni á eftir mér, dreif þetta upp úr pokanum og þarna reyndar skal ég fyrstur manna viðurkenna að yfir mig kom ákveðið sjokk, þ.e. neineinei, hvað ertu eiginlega búinn að gera ! Ég settist niður og var hársbreidd frá því að hringja í systur mína og bjóða henni að eyða einhverjum af sínum tíma í að gera skúffuköku. Ég leit í átt að mynd af ömmu minni heitinni, og las ég það af svipnum hennar þá, að þetta gæti ég alveg. Ég fleygði því símanum frá mér, og dreif mig í sturtu svona til þess að búa mig undir þau átök sem framundan væru. Ég nálgaðist eldhúsið rólega og þónokkuð hikandi, en lét svo til skarar skríða með desilítramálinu mínu og sleifinni. Til þess að gera langa sögu stutta (þó hún sé nú orðin bara býsna löng nú þegar (og varð hún bara enn lengri við þetta innlegg)) þá hrærði ég þessu bara saman öllu saman, nema hráefninu í kremið auðvitað og þarna var ég búinn að skella ofninum á °200 og var hann því orðinn nokkuð heitur og góður. Fyrsta áfallið reið yfir þegar ég var búinn að setja þetta í kökuformið, deigið virkaði svo lítið e-ð í forminu að ég var viss um að kakan yrði jafn há og homeblest-kex, en það þýddi ekkert að bakka með þetta þarna og dreif ég því formið bara inn í ofn og eftir u.þ.b. 20mín ´þorði´ ég að kíkja inn í ofninn og hvað haldið þið eiginlega ! Jújú, deigið var búið að lyfta sér talsvert og var svona bara líka rétt undir efstatoppskökuformamáli sem þýðir í rauninni á mannamáli að þetta hafði tekist 100%, sigurinn var þó ekki í höfn í hornafirði, og beið ég í ca.6mín í viðbót og reif síðan formið út úr ofninum. Það þarft ekki að fara í neinar grafgötur með það að kakan ilmaði bara eins og venjuleg kaka og sigurtilfinningin reið yfir mig. Ég hringdi nokkur símtöl, bara "að heyra hljóðið í fólki" (svona smá leikþáttur áður en ég sagði...ég, nei það er e-ð lítið að frétta af mér...jæja og þó, var að skella í eina skúffuköku).

Kökuformið fékk aðeins að kólna áður en ég setti kremið yfir, sem var ekkert mál að græja, enda bakari með bullandi sjálfstraust. Svo skar ég hana þversum og endilanga og tók upp fyrsta bitann og það get ég svo svarið fyrir, að þessi frammistaða mín jafnaði næstum því bestu mót ömmu hérna á árum áður.

Ég hef ekki tekið ákvörðun um það hvað það verður næst sem ég geri, sem viðkemur bakstri en ýmis járn eru þó í eldinum en þó get ég upplýst fólk um það að valið stendur á milli þriggja uppskriftra, þ.e. Gyðingakökur, Brúnkaka eða Hjónabandssælu. Nú, svo fer auðvitað að líða að laufabrauðsgerð og hef ég tekið þá rökréttu ákvörðun eftir þessa frammistöðu að gera laufabrauð með tilheyrandi jólatónlist með Helgu Möller o.s.frv.

Er líf þitt í myrkri varðandi bakstur og eldamennsku ? Sérðu ekki lífið framundan með þeim hæfileika að getað t.d. bakað kökur og tertur ? Hikaðu ekki við að hringja og afla þér upplýsinga um hvernig baka eigi góða köku.

fín sending stefán

Þetta eru bestu skinn

30. október 2006 klukkan 13:39

Ótrúlegt hvað íbúar höfuðborgarsvæðisins eru miklar skræfur. Þetta lýsir sér langbest í því að ekki má úrkoman vera hvít á lit, þá æða allir inn í Everest og kaupa sér fokdýrar flíspeysur og flísbuxur til þess að verjast þessum veðurofsa. Þetta hefur nú verið rætt áður en alltaf þegar ´óveður´ er á suðurlandinu senda fjölmiðlarnir 1 fréttamann ásamt tökumanni, upp í litlu kaffistofu og fréttamaðurinn stendur á veginum og um hann blæs örltítill vindur og hann er í tilfinnangalegu sjokki yfir þessu ástandi sem skapast hefur. Talar um að 2 bílar hafi farið útaf (það er nú bara vegna þess að reykvískir bílstjórar eru slakir bílstjórar) og einungis Guðshjálp bjargar ástandinu. Allar björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins eru kallaðar til, og í startholunum bíða sjúkraflutningamennirnir ef til þess kemur að vindhraðinn fari yfir 15 m/sek.

Það þyrfti að senda 1 aðila úr björgunarsveitinni héðan til þess að halda smá tölu fyrir þetta lið þarna fyrir sunnan, sá aðili gæti t.d. verið Friðrik í Húsasmiðjunni eða jafnvel Gunnar Sigurð Jósteinsson (sem sagði Ólafi Ragnari það svo eftirminnilega hérna um árið að alltaf væri sól á Húsavík, grísinn heyrði þetta ekki og bað Jósteinsson Hreiðarsson að endurtaka það sem hann sagði og Gunnar krosslaggði hendur sínar og bjó til ´skítaglottið´ fræga og sagði honum það aftur að það væri alltaf sól á Húsavík). Auk þess að senda þá Friðrik eða Gunna Sigga, þá væri ágætt ef Ingi Sveinbjörn færi með í þá ferð, og spái ég því að Ingi færi ekki eftir þjóðvegi 1, hann færi yfir svona 15 fjöll á leiðinni, og gist yrði í ca. 3-4 björgunarsveitakofum á leiðinni.

Dreif mig um helgina á bauksa, kominn tími til þess að maður lyfti sér aðeins upp. Þokkalegt um manninn þarna niðurfrá og hljómsveitin Outloud lék fyrir dansi, en hljómsveitin þurfti reyndar að hætta spileríi fyrr en áætlað var vegna þess að hljómborðsleikarinn var laminn af húsvískum hetjum. Þekki ekki þetta mál alveg til fullnustu en þarna kemur það fram spái ég, þ.e. þetta skammdegisþunglyndi sem svo mikið er talað um. Fólk gleymir sér í ruglinu og byrjar að drekka, og er bara harðákveðið í því að best væri nú að lemja einhvern í kvöld. Menn ganga um staðinn ráfandi og reikandi eftir færi á slagsmálum, og ef svo óheppilega vill til að einhver hugsanlega kannski ef til vill rekur sig óvart utan í einhvern er litið á það sem miskunnarlausa árás og henni verður bara að vera svarað með höggi/höggum.

En jæja, best að fara að drífa sig í hjólabuxurnar, setja á sig svitabandið, blanda sér herba og drífa sig út í þetta hefðbundna mánudagsjogg. Ætla að lengja hringinn hjá mér núna og taka 12 km.

Leikmennirnir verða að vinna vinnuna sína. The players have to work their work
                                                                                                -Guðjón Þórðarson

23. október 2006 klukkan 13:49
Það hefur ekki farið framhjá neinum 4 ára og eldri að við íslendingar erum byrjaðir að veiða hvali á nýjan leik. Tilgangurinn er sá að við eigum að nýta auðlindir okkar og ekki láta einhverjar aðrar þjóðir segja okkur hvað við megum gera og hvað við megum ekki gera !

Kristján Loftsson, alskeggjaði titturinn þarna sem á þessa báta alla, fundaði með Einar Kr. sjávarútvegsráðherra og fékk að vita það áður en allir aðrir að Einar Kr. ætlaði að heimila hvalveiðar. Sama dag og það var ákveðið, var Kristján búinn að ráða til sín fullt af eldgömlum köllum, sem hér áður fyrr höfðu skotið fullt af hvölum. Þeir græjuðu Hval 9 og voru svona að dorma e-ð í rvk-höfn þangað til að þessi ákvörðun var gerð opinber. Þá hringdi Einar Kr. í félaga sinn Kristján og lét hann vita af þessu. Kristján bein upp í Hvalfjörð til þess að ná í byssuna sína, og svo héldu þeir á haf út.

Svo eftir talsverðan tíma, fundu þeir fyrir eina langreyði sem átti víst eftir u.þ.b. 10mín eftir ólifaða, en þá dræpist hún af náttúrulögum orsökum. Þeir brunuðu í átt að henni, skutu hana og hringdu svo í land og þetta spurðist út, og fóru fjölmiðlar á rellu í átt að Hval 9 og mynduðu hvalinn við Hval 9. Svo þegar heim var komið, n.t.t. í Hvalfjörðinn þá beið fólk klappandi og margir geðsjúklingar með tárin í augunum, en samkvæmt mínum heimildum þá fékk mikið af fólki dagvistarleyfi frá ýmsum geðdeildum landsins þennan dag. Einar Kr. og Halldór Blöndal, voru þar fremstir í flokki, klappandi höndum og sögðu frá því að um gleðidag væri að ræða. Rökin sem hvalveiðisinnar nota eru m.a. eftirfarandi

- Nýta auðlindir okkar ! (af því við eigum þessa hvali bara er það ekki)
- Við gerum sko bara það sem við viljum gera og látum enga aðra segja okkur fyrir verkum
- Við ætlum að selja kjötið til Japans. (svo þegar það er sagt að ekkert hefur gengið hjá nojurunum að selja kjötið til Japans, fer fólk bara í fýlu og segist bara víst ætla að selja það til Japans)
- Allt í lagi að fækka þessum hvölum e-ð ! (Langreyðar eru í útrýmingarhættu)

Skipstjóri Hvals 9 missti það svo út úr sér að sú langreyða sem veiddist sé nú bara sennilega óæt. Jájá, okei, það er alltlæ, förum bara og náum í fleiri og fleiri hvali, og hvað með það þó þetta gæti haft áhrif á einhverja ímynd og hvað með það þó að margar þjóðir í heiminum hafi hreinlega fordæmt þessar veiðar. Þetta virkar svona á mig eins og maður með mikla minnimáttarkennd, sem segir voða lítið edrú, en þegar áfengið er komið í blóðið hjá honum, þá brýst fram í honum mikil árásarhneigð, og fer að lemja fólk. Semsagt, þá held ég að þetta stafi af heilmikilli minnimáttarkennd íslendinga. Við ætlum sko ekkert að láta aðrar þjóðir segja okkur að við megum ekkert veiða hvali, Stjáni Lofts má bara víst skjóta hvali.

En já, Liverpool.

Árangur Liverpool F.C. er það sem af er þessu tímabili, 3 sigrar, 2 jafntefli og 4 ósigrar í deildinni. "We just need a little bit more confident" segir Benitez, hann hefur reyndar hjakkast á þessu í talsverðan tíma sem er að verða ansi hreint leiðigjarnt. Þeir leikmenn í Liverpool sem kæmust varla fyrir á bekknum á Magna eru t.d. Luis Garcia, Peter Crouch, Jamie Carragher, John Arne Riise, Xabi Alonso og Jose Reina. Ef að þessir aðilar vita ekki hvernig sæðið úr Benitez er á bragðið, þá yrði það stórfrétt ! Það er orðið skemmtilegra að skipta um á rúminu heldur en að setjast fyrir framan skjáinn og horfa á þetta skítlélega lið. Ef að þetta breytist ekki mjög fljótt, og ekki bara sigrar í næstu leikjum, heldur til tilbreytingar, sannfærandi sigrar fari að sjást, þá ætla ég að segja upp áskriftinni að enska boltanum og fara að leggja meiri áherslu á önnur áhugamál, s.s. klettaklifur og köfun.

Jæja..ætla að skunda með emil inn á eikureyri og versla kannski eitthvað af heiðursmanninum Jóhannesi Jónssyni

fín sending stefán (betri en hjá Alonso) 

Hvernig datt þér þetta eiginlega í hug ?

19. október 2006 klukkan 03:10
Jú svara ég. Þannig var það nú kaldan október mánuð s.l. að ég, ásamt mági mínum vorum staddir heima hjá þeim síðarnefnda og vorum við e-ð svona að baggsa við þetta kerfi og vorum við búnir að bíða í einar 31mín eftir svari og vorum við til skiptis búnir að þurfa að hlusta á allan þann sora sem tónlist almennt í heiminum hefur alið af sér. Þá kviknaði þessi hugmynd. En áður hafði ég pælt verulega í þessu, þ.e. ætti ég ekki bara að láta að verða af þessu. En það var þegar ég hringdi í annað símanúmer og valdi þar annan takka en ég hafði þurft að velja til að fá þá þjónustu sem ég óskaði mér, ég beið og beið...bara beið og beið, en svo lifnaði ég nú aldeilis við þegar í símann loksins svaraði 14-15 ára stelpa sem aldist aðeins upp við það í nútímatæknivæðingu að spila Snake í gemsann sinn. Hún sagði við mig eftir rúmar 20mín í bið, "heyrðu, jááááá, best ég gefi þér sambandi við tæknimann" ! Áður en ég gat svarað þessari hugmynd stúlkunnar þá hafði hún gefið mér samband við tæknideild, og við tók enn eitt hörmungarlagið....ég skellti á og blótaði þessari þjónustu áður en ég taldi upp á 2.000 til þess að jafna mig !

Þetta er klárlega málið ! Ég veit reyndar ósköp vel að Sverrir gluggaþvottamaður ætlaði að vera í dag á Bahamas, röltandi um á sundskýlu með bjór í annarri og mellu í hinni eftir gróðrastíuna sem gluggaþvotturinn átti að færa honum. En þetta er svo þúsund sinnum betri hugmynd en sú hugmynd Sverris, þ.e. að búa til þolanlegan playlista í símann á meðan maður bíður eftir svari frá þjónustufulltrúa !

En jæja, þýðir ekki að standa hágrátandi utan í Bjössa bónda varðandi þessa þjónustu, ekkert sem hann getur gert í þessu, annað en að vera bara þolinmóður, og þann þátt á ég ákaflega auðvelt með !

Kristján Loftsson, sá ágæti maður, er byrjaður að miða á hvalgreyin aftur, nú á að veiða held ég 9 hvali af einhverri tegund og 30 af annarri. Alltaf gaman af Kristjáni, alltaf e-ð svo rólegur í tíðinni og ekki til dónaskapur hjá honum. Horfir alltaf (með bæði augun þegar þess gefst kostur) á það jákvæða við hlutina og orðar hlutina á svo sanngjarnan og notalegan hátt.
Skil ekki þetta brölt á manninum, að skjóta hvali sem er jafn erfitt að koma í sölu og ef ég ætti tóma kókflösku og stæði fyrir utan félagsþjónustan og ætlaðist til að fá fyrir hana 15.000 kjell !

En jæja..Crouch skoraði að sjálfsögðu í kvöld fyrir Liverpool og gaman væri nú að heyra í þeim sem í gegnum tíðina hafa aldrei haft neina trú á Croucherator ! Hann og Fowler saman í framlínunni yrði svipað og Sharon Stone og Zeta-Jones í klámmynd !!

Já, Þórhildur Þorleifs kom öllum að óvörum og bauð sig fram í prófkjör samfylkingarinnar í dag ! Mig svimaði bara við þessar fréttir og leið eins og ömmu Jón Odds og Jón Bjarna fyrst, þegar henni var sagt að strákarnir hefðu lent undir ruslabílnum ! 

Fariði vel með ykkur og munið eftir faðir vorinu

fín sending Stefán 

Okey...Guuunni síminn til þín

13. október 2006 klukkan 22:12
John Bóldvæn sagði frá því að síminn sinn hefði verið hleraður hérna um árið, eða n.t.t. fyrir 10-15 árum síðan ! Hann vildi bara ekki segja frá því strax, taldi betra að segja frá því 2006. Heimskulegt maður !

En jæja, vaknaði upp í nótt og ætlaði mjög líklega að pissa eins og háaldrað gamalmenni, en ´vaknaði´ upp við það að ég var að snerta skjáinn hjá mér, þ.e. að þröngva fremsta hluta vísifingurs á skjáinn. Þannig er nú það að ég vinn talsvert með snertiskjái og má því með sanni segja að ég taki vinnuna með mér heim, enda seint vændur um það að taka ekki til hendinni þegar á mig er kallað ! Er einn af þeim mönnum sem færu aldrei inn á sjúkrahús nema í börum ! Svalur

Til stóð að snúa einhverjar gæsir úr "the necklæð" í fyrramálið, en sökum þess hve lítið er af gæs, þá var ákveðið að fara bara til Sigga í staðinn og fjárfesta sér í eins og örfáum bjórum og kyngja þeim öllum niður, jafnvel í kvöld. Þannig að því má segja að formlegar gæsaveiðar hjá veiðifélaginu "við erum bestu skyttur í heimi" er lokið. Við taka rjúpnaveiðar á  sunnudaginn og þá er nú aldrei að vita nema einhverjir kílómetrar af göngu liggja eftir mann þann daginn.

Liverpool að spila við Blackburn á morgun og nú er orðið ljóst víst að Peter "ég er bæði ljótur og get ekki neitt í fótbolta" Crouch verður í byrjunarliðinu og því er ástæða til þess að óska sér þess heitast að strákarnir úr bítlaborginni nái jafntefli í leiknum. En þær vonir eru svipaðar og þær vonir Ómars og co að hætt verði bara við stjóriðjuna þarna fyrir austan !

En talandi um gæsir, og gæsaveiðar, þá sáum við á einum stað nokkuð sannfærandi magn af gæs í dag og tókum við okkur því til og bárum að dyrum. Til dyra kom maður, sem annaðhvort var nýbúinn að kyrkja konuna sína, eða nýbúinn að fá fregnir um 60-70 milljóna króna víxil sem féll á hann, og buðum við góðan daginn, hann sagði ekki neitt og við gauji svona litum á hvorn annan, og tók ég því á skarið og byrjaði að umla þarna e-ð um hvað veðrið væri gott o.s.frv. og þá vaknaði bóndinn úr þessum "ímyndunargeðveikisheimi"  sem hann augljóslega lifði í, og sagði okkur frá því að það væri nú bara allt í lagi, sumarið hefði verið ömurlegt ! Við að sjálfsögðu sammála því og blótuðum sumrinu 2006 í sand og ösku og svo spurði ég hann að því hvað hann væri með margar kýr (heimskur ég að segja ekki rollur) ! því hann sagði engar og tók utan um hurðarhúnin og var að gera sig líklegan til þess að skella hurðinni beint framan á litlu nefbroddana okkar gauja. Þegar gauji spurði hann um gæsirnar á túninu þarna og reyndi að benda á það tún sem gæsirnar voru á, virti túnið ekki viðlits og sagðist meina öllum allri gæsaveiði. Við þökkuðum fyrir okkur og kvöddum, hann sagði ekki neitt ! og skellti hurðinni á eftir sér, og var þá sennilega að fara að klára dæmið með fyrrverandi (þegar þetta er skrifað) konunni sinni !

Er nokkuð klár á því að ef ég tæki mig til og afklæddi mig (ekki æstar stelpur) og tæki þá ákvörðun að ganga nakinn um nunnuklaustur, þá liði mér betur eftir á, en eftir þessa forvitnilegu heimsókn á íslenskt sveitabýli.

En jæja, ætla að fara að setja mig í startholurnar og fara að hengja upp þvott, vaska örlítið upp og setja manson í græjurnar !

fín sending Stefán 

Hilmar Haarde að lækka skattin

10. október 2006 klukkan 00:55

Ritstífla ! Hrjáir mig einhver ritstífla, hef ekki hugmynd um það hvaða stórmerkilegu hluti ég á að skrifa um ! En ætla bara að stikkla á því helsta.

H.Haarde og félagar hans í ríkisstjórninni ætla að stórlækka skatt á matvöru og lækka tolla á innfluttu kjöti. Sé mig nú ekki fyrir mér, standandi við frystihólfið í Úrval og kaupa mér einhverjar helsýktar kjötbollur frá Argentínu, sem mun svo garanterað verða til þess að ég þurfi að fá mér læknaþjónustu sem mun kosta mig alveg helling af pening. Mikið af fólki sem fær sín lyf alveg frítt, fyrir tilstilli TR. Ég hef ekki gerst svo frægur að fá einhverja sérstaka afslætti frá TR. Það þykir mér ósanngjarnt, en man nú svosem ekki í fljótu bragði eftir því hvaða lyf það eru sem ég hef fengið niðurgreitt. Skiptir svosem ekki máli. (þarna brýst hún fram, þessi ritstífla, þ.e. er farinn að tala um að ég hafi ekki fengið afslátt af lóritíni, sem er ofnæmislyf)

Sá auglýsingu áðan, frá Vodafone, sem ekki er lengur nefnt og vodafone, þetta eru byltingarkenndar nafnbreytingar. En auglýsingin gekk út á flugu sem lifði bara í einn dag og það sem hún gerði var bara skemmtilegt, hún spilaði Tennis og var e-ð að stríða köngulónum. Svo fann hún ástina og sátu þær á strái við sólsetrið og þar með var bara lífið búið. Veit ekki alveg hversu djúpar hugsanir sérfræðinga Vodafone voru við gerð þessarar auglýsingar, en ég hugsaði aldrei um að færa viðskipti mín yfir til Vodafone.

Hetja íslands, Ómar Ragnarsson, er hættur að sigla á örkinni sinni þarna uppfrá. Fjölmiðlar fengu held ég leið á þessu fréttaefni, sjá einhvern sköllóttan kall róa á handónýtri bátsdruslu upp á hálendi íslendinga. Þá fór Ómar heim, og sagðist skulda u.þ.b. 20 milljónir, ætli hann fari þá ekki sömu leið og Hallbjörn Hjartar gerði hérna um árið, þegar Country(þó ekki Stebbi)-bær brann til kaldra kola, og fór að biðja landsmenn um pening handa sér. Svo man ég líka eftir því þegar einhver fiðlukona sá einhverja fiðlu sem henni langaði í, og þá bara bað hún landsmenn um að gefa sér pening fyrir henni. Í báðum þessum tilvikum fékk maður sendan heim einhvern gíróseðil sem maður gat greitt í bankanum ef maður vildi styrkja þetta. Þess má til svo sannarlega gamans geta, að ég tók hvorugan gíróseðilinn með mér í bankan.

Samt er þetta öðruvísi þegar annaðhvort er bankað á dyrnar hjá manni, eða það er hringt í mann. Ég er búinn að styrkja fullt af svona samtökum o.s.frv. gegnum síma. Mér finnst samt alveg vanta að fólk komi til manns með harðfisk, það var alltaf þannig í gamla daga. En já, @líst, þá fær maður alltaf e-ð samviskubit þegar t.d. ungir krakkar koma í kolklikkuðu veðri og þau eru eðlilega ekki með posa, til þess að selja manni sultur, klósettpappír eða einhverja álíka vörur. En það sem er langerfiðast, og velti ég því fyrir mér hvort það er bara löglegt, en ég hef lent í þeim aðstæðum a.m.k. tvisvar held ég, að þá bankar upp á hjá manni heyrnarlaus maður ! Hvernig í ósköpunum á maður að segja "Neibb..sorry" við heyrnalausa aðila. Keypti einhverja svona íkona-mynd af þessum í seinna skiptið og kostaði hún mig alveg heilar 3000.- krónur. Þessi íkonamynd er nú á einhverjum stað sem ég hef ekki hugmynd um ! Þetta er svona svipað og ef kæmi til manns maður sem segði mér að hann ætti eftir aðeins 5 klukkutíma eftir á lífi og hvort ég gæti nokkuð gefið honum pening fyrir pulsu og kók, þá myndi maður mjög sennilega segja bara nei.
Það er ekki langt síðan stúlka ein frá Búlgaríu að mig minnir, bankaði upp á í l3c, ég ákvað eftir u.þ.b. 3sekúndna umhugsun að standa upp úr FIFA, og rölti ég að hurðinni, klórandi mér á maganum og opnaði hurðina. Hún var með svona málverk til þess að selja mér, hún kunni ekki íslensku, ekki ensku, ekki þýsku, ekki dönsku, ekki sænsku, ekki frönsku eða neitt af þeim tungumálum sem ég kann. Hún notaði sömu taktík og þeir heyrnarlausu (sem þurfa auðvitað að notast við þá aðferð) og rétti mér blað. Hún var að fara að læra íslensku, og þurfti pening til þess, og þessi aðferð, að banka upp á hjá, m.a. ungum, hressum, skemmtilegum, fallegum, barngóðum, hjálpsömum og tillitsömum karlmönnum varð auðvitað til þess að ég las yfir blaðið, þóttist lesa það reyndar, var bara að ákveða hvernig táknmál ég ætti að nota til þess að segja henni frá því að ég væri bara með kort, en hún skildi ekki táknmálið, og annaðhvort skildi hún mig ekki eða var bara agalega frek. Því hún setti upp mjög skrýtnan svip, ekkert ósvipaðan og ef ég hefði sagt henni (hún þá með skilning til þess að skilja e-ð af fyrrgreindum tungumálum) að ég þyldi ekki svona hræsnara, sem gengu í hús hvert einasta kvöld til þess að féfletta fólk, með einhverjum hallærislegum og ljótum málverkum !

Jæja...læt þetta duga í bili og munið að veðrið verður aldrei það vont að það lagist ekki

Fín sending Stefán

Úrval Gunni

03. október 2006 klukkan 11:40


Jæja, komin heim frá æskuslóðunum, staðnum þar sem maður sleit barnsskónum, minnist þess alltaf þegar ég var við leik þegar ég var yngri, og klæddur í gamla ullarpeysu, í gammosíum við Hafralónsána (á sem rennur djúp og breið (má syngja þetta) gegnum Þistilfjörðinn), og voru leiktækin ekki þau sem nútímakrakkar leika sér að í dag, heldur var um að ræða gærur og sviðshausa. Þá var nú gaman og heilbrigt að vera ungur smaladrengur í sveit. En já @líst, þá komum við heim, þreyttir en ákaflega ánægðir með ferðina.

Fórum af stað, á fimmtudeginum og vorum komnir heim seinnipartinn á Sunnudeginum. Afli ferðarinnar voru 32 gráar og vorum við ánægðir með þann afla, og enn á ný fjölgar þeim svæðum sem við fáum leyfi á, í Þistilfirðinum en alltaf þegar ég bið bændur um leyfi fer ég í "auðmýktar" gírinn og segi þeim frá því að ég eigi nú aldeilis ættir að rekja í þennan sennilega fallegasta fjörð íslands. Svo var það nú sérdeilis magnað á lau.kvöldinu, en höfum við haft þá reglu síðsustu nóttina fyrir austan að fá okkur herbergi á gistiheimili og sötra þar jafnvel 2-3 öllara og varð engin breyting þar á þessa ferðina. Við komum þarna inn, og komum okkur fallega fyrir, störtum tölvunni og skellum inn myndum í tölvuna áður en alvaran tekur við, þ.e. manager-keppnin okkar og þegar ég er að gera mig líklegan til þess að fara í sturtu mæti ég gaur sem er sláandi líkur Jóa B, Jóa græna, eða djódjó eins og hann vildi sjálfur kalla sig á sínum tíma. Fer að ræða við hann um tilgang lífsins o.s.frv. og spyr hann mig svo að því hvort við ætlum ekki örugglega á hafnarbarinn um kvöldið, ég svara því til, að við séum nokkuð þreyttir en ætlum að sjá til, þá svona brosir "jói" og nikkar í átt að sameiginlegri snyrtingu gestanna þarna, og þaðan heyrast stelpuskrækir og brosir "Jói" í átt til mín. Ég svona eins og súper-móngi spyr hann að því hvort sé e-ð ball þar um kvöldið, en þá neitar hann þvi og segir mér að hann sé mættur með 2 stelpur frá Goldfinger og þær séu að fara að dansa þarna í kvöld. Á Þórshöfn á Langanesi !! Ég sem betur fer var ekki búinn að segja honum frá því að ég væri frá Húsavík, þar sem aðal-skemmtikraftarnir í gegnum tíðina væru Johnny King og Sent.

En þetta endaði allavega þannig að við vorum bara heima á gistiheimilinu, og spiluðum Veiðimann bara í stað þess að fara að horfa á einhverjar illa launaðar stelpur frá Litháen dansa utan í kófsveittum, helgröðum einstæðum bændum úr Þistilfirðinum þetta kvöldið.

Skelli inn myndum úr ferðinni hér við tækifæri, en ætla ég að vara viðkævmt fólk við því að það sést blóð á 1-2 myndum, og hvar eru þær annarsstaðar en í andlitinu á mér ! Svalur

Ef ég framleiddi ryksugupoka !

27. september 2006 klukkan 11:25
Þá gerði ég það með það að markmiði að kaupandinn ætti auðvelt með að handleika þá, og þ.a.l. auðvelt með að setja nýja poka í ryksuguna sína ! Pokarnir sem ég keypti mér í gær voru svona svipaðir og ef ég keypti mér bíl án stýris. Allavega, hvað er betra en að eyða heilli kvöldstund í það að barbdúsast með ryksugupoka og reyna að setja þá í ryksuguna hjá sér, en allt og þá meina ég ALLT kom svo sannarlega fyrir ekki. Fleygði ryksugunni og pokanum frá mér eftir talsverða ´reyningu´ og fór að hlusta á mesta dauðarokkið með Manson. Ætla að mæta með ryksuguna og pokana niður í húsasmiðju og láta öþþa sjá um þetta mál, og jesús kristur hvað það verður svekkjandi og niðurlægjandi þegar hann notar í þetta verkefni einhverjar 3-5 mínútur !

Fannst mér best borgið um daginn með kaupum á nýrri byssu, þessi elska kemur frá Benelli, og kallast Comfort
Fyrsta ferðin hennar verður einmitt austur yfir land á morgun, og víst er að þar verður henni ekkert hlíft !
Pabbi hringdi í mig nú um daginn og óskaði eftir því að ég kæmi með honum inn á akureyri, en ég sagði honum að ég því miður gæti það ekki, vegna annasama verkefna hérna á víkinni og afþakkaði annars ágætt boð karls föður míns. Svo var ég tekinn í bólinu u.þ.b. hálftíma seinna þegar hann kom áður en hann fór inneftir og þá var ég á holu nr. 15 St.Andrews vellinum í Skotlandi í Tiger Woods þannig að sá dramatíski málsflutningur minn um að ég hefði bara því miður nóg annað að gera, kolféll þarna í þessari heimsókn föður míns. Þannig að þarna var ég, algerlega varnarlaus þessari heimsókn, búinn að koma mér mjög þægilega fyrir í sófanum eins og norskur skógarköttur og spilandi Tiger Woods. Ég fór því inneftir, og hann þurfti á fund og einhvernveginn þurfti ég því að drepa tímann á meðan, og ákvað því að fara í Ellingsen og ´skoða´ bara einhverja sniðuga hluti. Þegar hinsvegar inn var komið, þá komst ég mjög snögglega að því að þetta var dagur sem ég var sérstaklega áhrifagjarn. Sölumaðurinn náði að sannfæra mig um ágæti þess að versla sér nýja byssu, og lét mig handleika allar byssurnar hjá sér, sem endaði svo með fyrrnefndum kaupum. En sjaldan hef ég gert betri kaup, hugsanlegt að ´Dæjarinn´ minn hérna um árið toppi þessi kaup, en það er sáralítill afgangur af því samt.

En jæja, ætli þetta verði ekki bara síðasta sem almenningur fær að vita áður en ég held í heimahagana austur í Þistilfjörð á morgun(Fæddur þar og uppalinn eins og væntanlega flestir vita). Og þar sem þessar ferðir standast fyllilega utanlandsferðir (nenni ekki að heyra núna "er svona leiðinlegt í útlöndum hjá þér Ævar") þá er nokkuð öruggt að það komi ferðasaga hér inn fljótlega eftir ferðina.

Hafið það bara obboðslega notalegt framyfir helgi og munið að aka eftir aðstæðum og segja Stopp, ég er a.m.k. búinn að því. Enda hef ég aldrei verið mikið fyrir hraðakstur, hef ekki átt neitt sérlega hraðskreiða bíla, Dahaitsu Charade ´88, CarinaE ´97 og síðast en alls ekki síst Nissan Almeru árgerð e-ð. Ég hef aðeins einu sinni gert mig líklegan til þess að vera töff í umferðinni, en það var þegar ég og Gauji ákváðum að spyrna aðeins á Garðarsbrautinni, hér fyrir mörgum árum, þá var ég sko nýkominn á ´dæsa´ (ath - þarna upplifði ég Daihatsu sem mikinn kagga) og hófst spyrnan þar sem Úrval er núna og Gauji á pajero-jeppa föður síns og kemst hann fljótlega framúr mér en ég stóð ´Dæjarann´ flatann, og þegar við komum að Hulduhól, þ.e. annarri hraðahindruninni þá blikka okkur blá ljós og við ´snarhemlum´ og þarna fannst mér þetta bara töff,og tuggði ég man ég 3 tyggjóplötur með miklum ákafa og passaði mig á að horfa mjög svalur í augu annarra ökumanna og gangandi vegfarenda á meðan við Gauji beygðum inn hjá Búrfelli og ætluðum að fara að taka út okkar refsingu. Ég handskrúfa rúðuna hjá mér niður þegar lögregluþjónninn gengur upp að bílnum hjá mér, og vonbrigðin hjá mér leyndu sér ekki, hann sagði orðrétt við mig "Blessaður, þú þarft nú engar áhyggjur að hafa, enginn sérstakur hraði á þér" og kvaddi mig. Coolið sem hafði myndast hjá mér þetta fallega vetrarkvöld á víkinni hvarf sem dögg (þó ekki stefáns) fyrir sólu, og hélt ég heim á leið, og tók hugljúfa kvikmynd með Richard Gere og borðaði ostapopp og drakk kók með. Gauji var sektaður um einhverja summu.

En já og jæja...hagið ykkur semsagt vel í umferðinni sem og allsstaðar annarsstaðar og minnist forfeðra ykkar með þakklæti í huga.

Fín sending Stefán

Úrval Gunni

23. september 2006 klukkan 06:05
Verð bara að titla þessar færslur hérna hjá mér með þessum orðum, því ástæðan er svo óeðlilega fyndin !

En já, mikið af fólki dáið, en hellingur af fólki fæðst síðan síðast og ætla ég svona að stikla (þó ekki stiklur með ómari ragnars) á stóru

Arkaði inn á eyri um daginn og varð Geddarinn þess heiður aðnjótandi að fá að bruna með mér inneftir. Tilgangurinn var að bæta í búið. Fékk þá frábæru hugmynd að kaupa mér sófasett eða svona tungusófa einn daginn í vinnunni, varð svo geðveikur að ég hrifsaði til mín næsta bækling sem ég sá og hringdi og ætlaði að panta mér sófasett. 3+2 varð það heillin, og ítrekað hringdi út í þessum svokallaða "póstkröfusíma" ! Fullt af fólki varaði mig við þessum viðskiptaháttum, og sagði mér að ég myndi sjá eftir því að panta mér sófasett án þess að prufa það...ég issssaði það bara og hélt áfram að hringja til þess að panta mér sófasettið en enginn svaraði. Svo dofnaði þessi löngun aðeins, eða ekki beint löngun, heldur dofnaði meira löngunin í að fá sófasettið strax ! Það varð svo úr að í næsta fríi vaknaði ég, eiturhress að vanda og skellti þvottapokanum framan í mig og gróf stýrurnar upp úr augunum á mér og pissaði og svoleiðis áður en ég hélt út á vit ævintýranna, þ.e. náði í Geddarann og við svo keyrðum á 90 km hraða inneftir (ég er nubblega búinn að segja STOPP við þessu aksturslagi sem virðist einkenna landann) og gekk það ferðalag einkar vel. Ég fór í þá verslun þar sem þessi frægi 3+2 sófi var, og prufaði hann, og þakka ég öllu því fólki sem hafði haft vit fyrir mér, því að setjast í þennan sófa, var ekkert ósvipað og að mölva 100 kók-flöskur og tylla sér ofan á þær, slíkur var sársaukinn. Endaði þessi ferð svo með því að ég keypti mér gullfallegan tungusófa sem fer einkar vel í stofuna og er ég, sem gamall iðnaðarmaður, búinn að setja hann upp. Við erum að tala um einhverjar 16-18 þriggja tommu skrúfur þar sem stjörnuskrúfjárnið var notað, þurfti reyndar að bora í fyrir um 6 skrúfum en kallinn sótti þá bara inn í verkfærabúrið sitt, AEG-sjálfvirku batterýsborvélina sína og setti ég þetta upp á mettíma, enda einkar fær þegar setja á saman flókna hluti, sbr svona sófa !

Gæti vel farið svo, að ég skellti inn nokkrum myndum af nýja sófanum hér inn við gott tækifæri og þar getiði séð það að smekkur minn á húsgögnum er ofboðslega frábær !

Benni páfi sagði að múslimar væru fífl og leiðinlegt fólk, e-ð urðu múslimarnri foj yfir þessu og er Benni hvorki meira né minna en réttdræpur hvar sem hann fer að mati einhvers klerks þarna í einhverju múslimaríki. (en klerkur þessi er einmitt með svona alskegg)

En já, talandi um sófakaupin hjá mér, ekki má nú gleyma því að ég keypti mér einnig framúrskarandi hnífapör í sömu ferð, að ógleymdri ristavélinni sem einnig fékk að fljóta með. En rúsínan í pulsuendanum var án alls vafa, daddarada...eldföst mót, svalt að eiga eldföst mót, græjaði svona flókin pastarétt daginn sem ég kom heim, og þurfti ég að nota 3 hellur af 4 á eldavélinni og eru aðeins pro-aðilar sem geta staðið yfir þremur hellum í einu, en maður er nú ekki kallaður "æbbi Hall" fyrir ekki neitt !

En jæja...læt þetta duga í bili og vona að þið farið ofboðslega vel með ykkur um þessa helgi, sem og allar aðrar.

ps Er að fara í okkar margrómuðu gæsaferð austur á land í næstu viku, eða réttast væri að kalla þetta heimahagana, því eins og allir vita er ég fæddur og uppalinn í þistilfirði, n.t.t. í Tunguseli og væri ég að ljúga því blákalt ef ég segðist ekkert vera neitt spenntur yfir þessari ferð. Ætli hún verði ekki með svipuðu sniði og undanfarin ár, þ.e. 60-70 gæsir steindauðar eftir komu okkar þangað Svalur