Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Þessar helvítis loftbresmur virka ekki rassgat

15. september 2006 klukkan 04:56
Var að spá í að velta fyrir mér hinum ýmsu störfum í næstu pistlum, er búinn að vera að spá í hvað sé skemmtilegast en jafnframt áhugaverðast af öllum djobbunum. Fyrsta sem ég ætla að spá í, er dagur í lífi trukkabílstjóra með 27 ára reynslu af trukkaakstri.

Dagurinn byrjar auðvitað á því að maður vaknar með slefið á olíubornum koddanum sínum, og ennþá í hlýrabolnum sem maður er enn í, eftir 11 daga notkun. Skríður fram og tekur brókina niður úr görninni, (ath-ekki boxerbrók) og labbar af stað í eldhúsið og lagar sér rótsterkt kaffi og tekur sér í hönd fréttablaðið sem þá er nýkomið inn um bréfalúguna, og flettir bara strax í smáauglýsingarnar, og fer í dálkinn "varahlutir" og vekur strax áhuga hjá manni lyfta ein sem verið er að auglýsa en hún er reyndar biluð en "andskotinn hafi það" segir maður og bjallar maður í félagann "blessaður laxi, ert þú að selja þessa lyftu" Jújú, þeir komast að einhverri niðurstöðu og ég rölti út, glaður með afrakstur morgunsins. Svo set ég Scaniuna af stað svo allir krakkar sem leið eiga í skólann líta í átt að "stóra bílnum" og horfa aðdáunaraugum á bílinn og til mín. Ég er 100% meðvitaður um það að ég verð að halda ´kúlinu´þegar krakkarnir stara á mig keyra stóra bílnum, og einbeiti ég mér að því að brosa ekki neitt til þeirra. Kem við á kaffistofunni, þar sem 3 aðrir bílstjórar eru mættir, á þeim tímapunkti er ákaflega mikilvægt að bjóða ekki, endurtek, bjóða ekki góðan daginn heldur rölta bara svalur að kaffivélinni og hreyta því út úr sér að þessi helvítis Michelin-dekk virka ekkert betur en bridgestone dekkin gömlu ! Umræðan er semsagt komin strax út í vörubíladekkin mín, sem er hið besta mál, sötra af kaffibollanum (sem ekki hefur verið þveginn í einhverja 2-3 mánuði) og hristi hausinn yfir þessu nokkrum sinnum áður en ég stend upp og arka út í bíl. Ræsi bílinn aftur og fer að keyra möl, svo bara keyri ég möl og keyri möl og keyri möl allan daginn, heilsa samt öllum öðrum bílstjórum sem aka á ´stórum bílum´. Það er mjög mikilvægt, og helst að horfa með lítillækkandi augum á fólksbíla, jeppar sleppa, og meira að segja heilsa ég líka fólki sem aka um á breyttum ´44 tommu jeppum. Að endingu kem ég við á bensínstöð og fylli helvítið af olíu, fæ mér kaffibolla á stöðinni og stend með kaffibollann upp að vörunum og stari á ´stóra bílinn´minn, svo geng ég út og sparka nett í dekkin á bílnum og upp í hann og áður en ég fer af planinu þen ég flautuna svo allir sjái að ég er að fara.

En já, þetta er dagur í lífi meðal-trukkabílstjóra.

Liverpool tapar fyrir Chelsea á sunnudaginn.
Ætla að taka gæsarúnt í fyrramálið og ef guð lofar, kem ég kannski með 1-2 gæsir heim úr þeim rúnti...ætlum nefninlega að liggja fyrir þeim á lau.morgunin.

Hugsið um smáfuglana

Fín sending Stefán

Þú ert númer 11 í röðinni

11. september 2006 klukkan 21:38

9/11 er sennilega ein af frægari dagsetningum sögunnar.  Ég man þetta eins og þetta hafi gerst í gær. Var staddur í bakaríi að kaupa þar brauð og fer heim og ætla á textavarpið og kveiki þ.a.l. á sjónvarpinu en sé bara snjókomu, þ.e. hélt að rúv væri dottið út en svo fer einhver að tala um þetta og þetta var bara orðin staðreynd, búið að fljúga á tvíburaturnanna tvo og eyðileggja þá og u.þ.b. 3000 manns láta lífið. Á meðan er Bin Laden á einhverju kameldýri með lak yfir sér að hampa þeim aðilum sem flugu á turnanna. Til að gera langa sögu stutta í kringum þetta, þar sem ég veit að lesendahópur þessarar heimasíðu eru krakkar m.a. á bilinu 9-13 ára sem engan veginn gera sér grein fyrir þessum hörmungum sem áttu sér stað fyrir já 5 árum síðan er sú að:

9/11 ´01 flugu vondir kallar á World Trade Center.

- Bush var staddur í kennslustofu í 750 manna þorpi í USA að hlusta á krakka lesa upp úr teiknimyndasögum.
- Þessum fréttum var hvíslað í eyra Bush, sem ákvað þó að klára að hlusta á söguna sem einn strákurinn var að lesa upp, enda bókin komin á þann stað sem ekki er hægt að hætta að hlusta,  en það var þegar stóri grimmi úlfurinn var við það að fara að borða gríslinganna þrjá.
- Bush hélt blaðamannafund þar sem hann hét því að finna þessa krimma.
-Bush sagði að þetta væri írökum að kenna.
-Bin Laden hló að þessu öllu saman og sagði þetta vera sér að kenna.
-Kofi (þó ekki hænsnakofi) Annan (þó ekki í jólum) sagði bush að leyfa sér fyrst að leita af ástæðum til að fara með byssurnar inn í írak.
-Bush hló bara af Annan og sparkaði í rassinn honum og sagði honum ekki að vera fyrir sér.
-Bush sendi nokkra hermenn til afganistan til að finna bin laden og jafna við jörðu, Bin Laden ekki enn fundist.
-Bush fór þá bara líka, svona í leiðinni, til íraks og ætlaði að finna vonda kallinn hann Saddam
-Saddam átti þá heima í holu og fannst hann þar.
-Saddam neitar ennþá að segja hvað hann heitir í réttinum.
-Einnig segir Saddam að hann sé ennþá forseti íraks.
-Dóri fann sinnepsgas í írak
-Sem kom svo seinna í ljós að þetta var bara venjulegt gasgrillagas sem Ali Kaira Ifzez notaðist við þegar hann grillaði.
-Dóri fór í fýlu og hætti sem utanríkisráðherra.
-Davíð segir að hann og Bush séu bestu vinir, og það sé allt saman skjalfest.
-Í dag er búið að finna Saddam, en Bin Laden spásserar enn á kameldýrinu sínu um lönd afganistan.
-Allir í USA eru hættir að halda upp á Bush.

Spái því samt að Bush nái upp ágætu fylgi aftur, enda frábær stjórnmálamaður.

Hringdi í þjónustusíma Símans ehf. í dag og ætlaði að ná mér í stærri pakka, þ.e. stærri pakka en bara enska boltann, ýtti mjög samviskusamlega á 1 og hlustaði í ca 100sek á leiðinlega tónlist, svo kom einhver elskuleg kona og sagði mér að ég væri nr.11 í röðinni. Ég varð frekar trekktur en skildi það vel, að hagnaður símans væri nú svo lítill hvort eð er að ég gæti bara ekki farið fram á betri þjónustu. Svo leið tíminn og ég var farinn að ókyrrast, var nubblega lengi vel nr.6 í röðinni og var svona við það farinn að ýta á rauða takkann, þegar vinkona mín kom og sagði mér að ég væri nr.4 í röðinni, og ég bara beið og beið og beið, þangað til mér var svarað og þetta ætti að vera komið inn eftir u.þ.b. 10mín sem er magnað auðvitað.

En jæja, læt þetta gott heita í bili og ekki úr vegi að minnast þeirra þrjú þúsund manna sem fórust 9/11 fyrir 5 árum síðan í árásum Bin Ladens á WTC

fín sending Stefán

Verðum við ekki bara að fara á næstu bílar&sport sýninguna

08. september 2006 klukkan 07:17
Já, þessa setningu heyrði ég nú fyrir skömmu. Hvað er það samt eiginlega ? Veit ósköp vel að smekkur manna á áhugamálum er misjafn en kommon samt ! Sumsagt, þá er þessi sýning haldin held ég 1x á ári og þar koma saman þeir aðilar sem virðast, af einhverjum óútskýranlegum ástæðum, hafa brennandi áhuga á bílum. Þegar ég heyrði þetta hljóma frá einum af "ég elska að hafa glussaolíu á höndunum á mér" strák hér í bæ, hljómaði þetta eins og fyrir mig væri þetta ef fréttatilkynning bærist um það að Liverpool hyggðist halda hérna 1 æfingu á húsavíkurvelli.

En nóg um þetta, skrapp ásamt gudjohni (útlenska þýðingin) í gæs í kvöld og voru nokkrar gæsir sem vöknuðu upp í morgun með sól í hjarta og voru þær sannfærðar um það spái ég að þetta yrði ekki síðasti dagur þeirra í lífinu, en svona er þetta bara. Keypti mér einmitt fokdýra þartilgerða gore-tex hanska í gær, og viti menn, annar hanskinn týndist og ég grét voða voða mikið yfir því en gudjohn tók þá bara utan um mig og sagðist skilja mig og svo sagði hann við mig að hann ætlaði bara að gefa mér ís og þá varð ég bara ofsa ofsa glaður.

Davíð Oddsson hefur aldrei sett sig almennilega inn í þetta Baugsmál að eigin sögn........og ég held að það sé vel hægt, ef maður blakar bara höndunum nógu mikið, að þá komist maður á loft.

Sá Rúnar Ara á röltinu áðan, hann virkaði bara frekar stressaður.

Jæja, er búinn að vera að velta einni spurningu mjög alvarlega fyrir mér, s.l. klukkutíma, hvort ekki væri hreinlega mögnuð hugmynd að fara bara að sofa. En fyrst að klukkan er orðin svona margt, þá skiptir það litlu máli hálftími mínus plús eftir þetta.

Gísli á uppsölum er maður mér að skapi, hvet alla sem vettling geta valdið, að skella viðtalinu sem Ómar Ragnarsson átti við Gísla í vídjóið sitt og horfa og heillast af þessum merkilega einbúa.

Stórleikur um helgina, þegar Liverpool mætir á Goodison Park og mætir þar erkifjendum sínum Everton. Spái Liverpool sigri í þessum leik 0-2 með með 2 mörkum frá Robbie Fowler. (Peter Crouch brennir af a.m.k. þremur dauða dauðafærum, en Benitez hælir samt framlagi Crouch eftir leik).

Er búin að gera svona tjekk-lista, þ.e. yfir þá hluti sem ég þyrfti nauðsynlega að fjárfesta mér í, og eru það eftirfarandi hlutir... 1. Benelli Crio Sport - 2. Sófasett (er að ákveða hvort það verður 3+2 eða þá 3+1+1) 3. Playstation 3 - 4. Tannkrem (hef ekki notað tannkrem eða tannþráð í á þriðja mánuð núna) 5. Vantar tilfinnalega ljósaperu í gestaherbergið/þvottaherbergið en sökum þess hve ég er ofboðslega minnugur hef ég alltaf gleymt því - 6. Eðlu, alltaf verið draumur að ala upp og fæða eðlu, og hefur hún fengið nafnið Gylfi.

Þetta eru svona þeir hlutir sem ég þarf verulega að skoða næstu daga og vikur en ljóst er að e-ð af þessu mun ég fjárfesta mér í fljótlega.

Læt þetta duga í bili og bíð ykkur þeim sem ramba hingað inn þangað til í fyrramálið góða nótt og munið að þegar þið eruð búinn að fara með Faðir Vorið, þá þýðir ekkert að opna augun aftur, því þá er ekkert að marka bænina. (Mamma sagði mér þetta nefninlega þegar ég var 5 ára og hef ég notast við þetta hjá mömmunni minni)

samt djók með tannkremið sko

fín sending stefán

Ert´eitthvað farinn að huga að hrossunum

05. september 2006 klukkan 05:58
Hversu eiginlega pirrandi er það nú, að vera svona krókódílamaður, eins og þessi sem lést þarna í gær eða dag, og bara að lifa við það að leika sér við krókódíla allt sitt líf og tefla sér í mikla hættu dag hvern með þau ævintýri og allir dást að þér fyrir þau afrek sem þú framkvæmir í hvert skipti sem þú ert svona að "dissa" aðeins krókódílana og deyja svo útaf skötu ! Maður heyrir oft þegar einhver lætur lífið t.d. flugslysi að hann hefði viljað það kallinn/konan vegna þess að lífið hans/hennar snerist einvörðungu um flugvélar að vera í loftinu á rellunni sinni o.s.frv. og sama má segja um fólk sem lætur lífið árekstur á bíl. Eins og t.d. maðurinn sem lét skógarbjörninn vin sinn éta sig, maður semsagt sem var besti vinur skógarbjarna og lifði og snerist í kringum þá sem á endanum hafði þær afleiðingar að einn björninn varð svangur og át vin sinn til fjölda ára bara, þá heyrðist í fólki, þetta hefur verið það sem hann vildi, að láta björn borða sig af því að hann var gagntekinn af skógarbjörnum, og hafði verið það allt sitt líf.

Svo er einn maður sem glímir við krókódíla allt sitt líf, og sem fyrr segir, leggur sig í hættu þegar hann ögrar þeim og segir sem svo að þetta sé í keyinu og fólk að hafa áhyggjur af þessum hetjudáðum mannsins. Svo bara einn daginn lætur hann lífið, og fólk sem þekkir ekki ástæðuna hugsar með sér, "jaaahá, það hlaut að koma að þessu að króksi næði honum" en neineinei, það var skata sem olli ótímabærum dauða mannsins !

Er alvarlega að spá í að fá mér evrópu-pakkann frá adsl-inu, viðræður eru á frumstigi við Símann um fyrirhugaðan samning milli mín og Símans, og eru þær viðræður á ákaflega viðkæmu stigi, en get ég svosem upplýst fólk um það, að það gætu verið frekari fréttir af málinu á allra næstu dögum, aðeins á eftir að ganga frá smáatriðum svo samningurinn nær í gegn.

Ísland sigraði aumt lið N-Íra um helgina sem þýðir, m.t.t. til fjölmiðla á íslandi eftir leikinn að Íslendingar eru með eitt af fjórum til fimm bestu liða heims í dag. Leikurinn við Dani n.k. miðvikudag, verður formsatriði fyrir heimsklassaleikmenn á borð við Indriða Sig og fleiri góða!

Læt þetta gott heita í bili......gott í bili (góður brandari sko)

Elskiði friðinn (þ.a.l. George W. Bush)

fín sending stefán

Loksins er komið gott veður !

01. september 2006 klukkan 13:54
Já, undanfarna daga hafa veðurfréttamenn keppst við það, hvor við annan, að hampa veðrinu og tala um að loksins sé sumarið komið og allt svo frábært og allt svo æðislegt og allt svo yndislegt við þetta veður ! Svo kemur smá klausa í lok fréttatímans, þar sem minnst er á það að það sé hellidemba nánast allsstaðar annarsstaðar en í 101 reykjavík ! Þetta hefur nú oft verið rætt, en nú upp á síðkastið eru þessir tilteknu fréttamenn algjörlega að gleyma sér í ruglinu varðandi þessar fréttalýsingar af veðrinu á landinu !

West Ham United komu og tóku lið á borð við Real Madrid, Arsenal, Man.Utd og fleiri stórlið í skraufaþurran afturendan með kaupunum á tveimur leikmönnum argentíska landsliðsins, þeim Tevez og Mascherano (held þetta sé skrifað svona) ! Wenger, Ferguson, Mourinho, Capello og gott ef Magath er ekki búinn að ræða hann einnig, en allir þessir aðilar eru búnir að vera að hugsa sér gott til glóðarinnar varðandi sérstaklega Tevez. Svo birtis Alan Pardew, stjóri hamranna og nær bara í þá báða ! Er nú búinn að vera að rýna aðeins í þetta dularfulla mál, og sé ég ekki annað en að Roman nokkur Abramovich sé með sínar haugskítugu krumlur í þessu máli. Ef að Tevez stendur sig vel hjá West Ham, þá spái ég því að það séu jafn miklar líkur á því að hann fari til Chelsea næsta sumar, eins og að Hafliði Jósteins verði í framsóknarfélagi húsavíkur það sem hann á eftir ólifað ! Semsagt, skítalykt af þessu máli.

Fórum í fyrstu gæsaferðina um daginn, og brunuðum við bara stutt að þessu sinni og lágum við fyrir þeim við á eina hér í nágrenninu. Mjög hvasst var, mikil rigning og mikill kuldi einkenndi þessa veiðiferð, við sáum 2 fugla og héldum við fyrst að um endur væri að ræða, en komumst svo að því að þetta voru pínulitlir, obboðslega krúttlegir gæsaungar !! Tókum við saman draslið okkar, og héldum heim á leið.

Liverpool seldi til PSV stórstjörnuna Jan Kromkamp (Unnstein), manninn sem himmi segir að sé alltaf, án undantekninga málaður í framan og er ég sammála honum í því, einnig er hann svo garanterað með permanett í hausnum sínum. Mikil eftirsjá er varðandi brotthvarf Kromkamp´s og eru hundruð þúsunda stuðningsmanna Liverpool Football Club búnir að skrifa undir áskorendalista til stjórnar Liverpool þess efnis að Rafael Benitez kveðji Anfield vegna brotthvarfs Kromkamp´s ! Spái því að Jan Kromkamp eigi ekki eftir að geta blautan hjá PSV.

Benni, nýji páfinn okkar, ætlar ekki að halda jólatónleika en jólatónleikar þessir hafa verið undanfarin 12 ár. Ástæðan, er ekki að fíla poppið ! Hann er meira fyrir Bach og Mozart, og því engin ástæða til þess að halda þessum tónleikum e-ð áfram. Tek undir þetta með Benna XVI, ánægður með þetta "múv" hjá honum.

Magni komin áfram í þessum supernova þáttum. Viðurkenni það að ég hef voða voða voða lítið fylgst með þessum þáttum, hef aðra og þarfari hluti að gera en að fylgjast með þessu. En samt ágætis árangur hjá magna og þeir húmoristar sem ég hef hitt undanfarna daga segja sem svo, að þetta sé magnaður árangur hjá magna og hlægja þeir mikið af þessum bröndurum sínum og berst maður við það að kreista fram a.m.k. bros af sama tilefni. 

En jæja, ætli ég kalli þetta ekki tíma, best að halla sér fyrir jafnvel golfið í dag. Munið bara að það kostar 0.- að vera kurteis og um leið og þú brosir framan í heiminn, þá mun sólin láta sjá sig, allavega í 101 rvk !

fín sending Stefán

"Úrval Gunni"

28. ágúst 2006 klukkan 13:11

Ákvað að taka daginn sérstaklega snemma þennan daginn, og baka brauð og búa til jafnvel örfáar kleinur svona í morgunsárið. Hlusta á Rás2 og leggja kapal á meðan deigið er að hefa sig. Svo klukkan 09:15 ætla ég að rölta niður í olis og ná mér í fréttablaðið og spyrjast frétta hjá fólki sem verður á vegi mínum. Jafnvel að ræða þetta þokusuddaveður sem hreiðrað hefur um sig hérna á víkinni við sömu aðila.

Nei..hugsa ekki, en gaman væri samt ef maður hefði þetta í sér, þ.e. þið skiljið allt svona græ e-ð. Baka vöfflur, kleinur, snúða. Maður færi og týndi nokkur ber í dall og byggi til svona berjasultu og léti hana í svona litlar glerdollur og merkti þær "27.ágúst 2006" og færi með þær inn í geymslu/búr. Rabbabarinn fengi líka sultumeðferðina og merkti maður hann e-ð svipað. Svo færi maður í fiskbúðina og fjárfesti sér í ferksum fisk til þess að sjóða seinna um kvöldið og hefði vel af hamsatólg með og smjör og skolaði því niður með mjólk o.s.frv.

Flokksþing framsóknarmanna var um daginn, Djonn Sigurrrdson kosinn formaður flokksins og einkar leiðinlegt að hlusta á ræður nýkjörins formanns flokksins. Vala Sverris að laumupúkast e-ð með skjal Grímsa kallsins Bjöss, og Össi og co í "the generalagainstposition" að missa sig í ruglinu yfir þessu. Jóhannes í bónus hótar að snúa menn úr hálsliðnum dag hvern, svolítið gaman af Jóa, þekki hann aðeins síðan hérna um árið þegar hann kom og verslaði af mér 66 gráðu norður lopahúfu, hann klæðir sig upp svona eins og bara venjulegt fólk og setur litlu krúttlegu bónus-derhúfuna á kollinn sinn, og hefur hana svona skakkt á hausnum á sér. Þetta er svo garanterað sálfræði hjá honum Jóa vini mínum, svo í viðtalinu var svona ljúft undirspil og Jói í sjónvarpinu að raða lauknum í bónus og var svona ægilega alvarlegur við þær framkvæmdir allar. Sennilega...og þá meina ég mjög sennilega þegar Jói félagi litla mannsins, er svona staddur heima hjá sér að ræða við þessa kalla um tugmilljarða samninga o.s.frv. að hann svona ákveði að bara svona "Jæja Gunna mín (Guðrún er sko konan hans), ætli ég fari ekki aðeins niður í búð elskan mín og athugi hvort bökuðu baunirnar séu komnar og komi þeim fyrir í búðinni" Neineinei, hugsa nefninlega að Jói félagi hafi ekki þennan dag þegar þetta viðtal var tekið, ákveðið það þegar hann vaknaði að hann þyrfti aðeins að kíkja í búðina sína til þess að taka á móti lauknum sínum !

Svo í viðtalinu lýsti hann því þegar Djonn Osgeir sonur hans hringdi í hann þegar Jón H B BH Snorrason og hans lið þarna í löggunni óð inn í baug og tók 10-12 möppur til þess að rannsaka, þá átti sonurinn að hafa sagt "pabbi pabbi..hvað er eiginlega í gangi hérna á íslandi"....! er miklu meira á því að samtalið hafi byrjað svona frekar "blessssaður kjellinn...ka segja kallar, hei pabbi, ertu í korni...hei gamli, fokkings löggan er komin og tók möppurnar mínar" En Jói félagi lýsti þessu á mjög svo dramatískan hátt, en gaman að segja frá því að hluti af viðtalinu við djódjó fór einmitt fram við Þverá, nú kunna sum ykkar han Þverá...var kallinn í laxi eða ! Neibb, Þverá er golfvöllur sem ég þekki eins og hægri lófann á mér. Greinilegt að við Jói erum bara býsna líkir karakterar...meina, veljum allavega sömu golfvellina til þess að spila. Annars er þetta eflaust vænsti kall, man einmitt eftir því þegar hann kom á sínum tíma til þess að kaupa sér húfuna hjá mér, og ég svona uppi með mér e-ð, samt svalur sko....geng nefninlega alltaf út frá því, þegar ég sé frægt fólk að glápa ekki á það því það má alls ekki sjá að ég sé að "horfa" á það. Þetta er svona svipað og þegar fólk er á svölum bílum, þið vitið með spoilerkíttum allan hringinn, topplúgan á sínum stað, 26" felgur og nýbónaður með filmum og bara öllum pakkanum, þá er svo mikilvægt að horfa sem minnst. En já, aftur að Jóa, þegar hann kom þennan sunnudagsmorgun, ég svona svalur með "mannlíf" að lesa, og segi ég "daaaginn" og hann bara svona alveg bara fuðraði e-ð upp "Já góðan og blessaðan daginn, hvað segið þið hérna á húsavík"....bíddu bíddu bíddu....þekkti ég þennan mann e-ð, nei hélt ekki. En þegar fólk reynir að vingast við mig, útiloka ég ekki neinn, og var Djóheines engin undantekning frá reglunni og spjölluðum við saman þarna þennan sunnudagsmorgun í, tjaaa...á að giska 3-4 mínútur áður en hann var rokinn út aftur.

En jæja...akureyrin í dag, ætla að versla mér skot í maðörfökking byssuna mína, stefnan tekin núbblega á gæs í kvöld og þá er það frekar mikilvægt að eiga hjá sér slatta af skotfærum.

Ætli ég láti þetta ekki nægja í bili og munið að elska friðinn og fara með borðbænirnar ykkar.

það er Anton Úlfarson sem kveður héðan úr miðbæ Belfast

p.s Halim Al bað að heilsa

fín sending Stefán

Djöfull sem Einstein var ofmetin !

23. ágúst 2006 klukkan 06:13
Já halló krakkar

Er búinn að vera að velta ýmsum hlutum fyrir mér upp á síðkastið, hlutum sem alla jafna hafa svosem ekkert verið að berjast við að troða sér inn undir hárið mitt og inn undir skinnið mitt og í hausinn minn en svona er þetta bara, stundum fer maður og hugsar bara fullt af hlutum og stundum bara hættir maður alveg að hugsa um þessa hluti en alltaf poppa þeir upp (samt ekkert orville dæmi samt)

Þessir hlutir eru jafn misjafnir og þeir eru margir, sumir alveg hreint ofboðslega góðir og aðrir af lakara taginu, en eitt er gott við þessa hluti alla saman, en það er það að þeir gera mann gáfulegri...t.d. ef fólk kemur og segir "blessaður"...og ég svona að hugsa ennþá og þá með störu kannski á eitthvað ómeðvitað, og ef ég er heppinn þá er svona þumalputtinn á strjáfi á hökunni og þá er ég viss um að fólkið hugsi "ussss....kjellinn í svona djúpum "þeinkingum"" Þá segir aðilinn aftur "blessaður" og brosir svona og þá hættir maður að hugsa og svona "já, blessaður/blessuð"

Sumir samt hugsa ekki neitt hugsa ég, þeir bara æða áfram í ruglinu og hugsa ekkert fyrir því sem þeir ættu í rauninni að vera að hugsa um og bara framkvæma það sem þeir ættu þá eflaust að hugsa betur um.

Hvað ef t.d., gullfiskar hafa bara ekkert þetta svokallað "gullfiskaminni" sem allir eru búnir að dæma þá til að hafa ! Ég hef fætt og klætt (nánast klætt (hetja)) gullfiska (reyndar líka hákarl hérna einu sinni fyrir talsverðu síðan), og hafði ég gaman af þeim, þeir hétu Steini og Olli, Steini dó langt fyrir aldur fram, vegna frekjunnar í Olla. En já, pointið í þessu er þá það, að þegar fólk segir oft á tíðum "oojj barasta hvað það hlýtur að vera leiðinlegt fyrir hann (gullfiskinn) að synda bara hring eftir hring eftir hring eftir hring í þessu búri" og allir segja bara í svona hæðnistón, "þetta er gullfiskur, hann man aldrei neitt, hann er að sjá þetta allt í fyrsta skipti með hverjum hringnum sem líður !" Hvað ef t.d. gullfiskurinn sem er máske í búrinu þínu, er bara ekkert með þetta ítrekaða gullfiskaminni og hann bara lifir kannski í einhver ár við það að synda bara og synda...synda bara og synda, og fá annars lagið "bank" á glerið frá sykursjúkum börnum...og fiskamat !  Þetta hlýtur að vera það leiðinlegasta sem í veröldinni fyrirfinnst !

Gullfiskar eru svo pottþétt með langtíma-minni held ég ! En það á nú reyndar bara við um gullfiska, t.d. hákarlinn minn sem ég keypti mér um árið, hann lifði hjá mér í held ég slétta 1 viku, þá dó kallinn, hann borðaði ekki neitt, sem endaði svo með því að ég freistaðist til þessa að gefa honum sardínur í dós, og voru það víst sardínur í olíu...hann bara synti og synti og leit ekki við sardínunni sem ég skellti glaðhlakkalega í búrið hans sem endaði svo með ótímabærum dauða hákarlsins míns, kom að búrinu þar sem olíubrákir flögruðu um allt búrið og lág hann á bakinu og var sumsagt búinn að fá kallið sitt. En eflaust líður honum vel núna og hugsar til þess að ég meinti vel með þvi að gefa honum sardínur á sínum tíma.

Svo hef ég einnig verið að velta því fyrir mér hvað það í ósköpunum fær fólk til þess að demba sér í svona guðs-dæmi, fullt af eilífðarölkum fara bara og kaupa sér fullt af hálsfestum með líkan af krossum og tala ekki um neitt annað en boðskap drottins o.s.frv. og drekka ekki neitt en falla svo á prófinu. Náskylt þessari hugsun eru þeir aðilar sem "frelsast". Ég lét "frelsa" mig á poppmessu hérna um árið, á að giska 14-15-16 ára gamall, og fékk ég fullt af bæklingum senda heim um lífið hinum megin, þar sem allt snerist um hvað allt sé, var og verður frábært. Einn aðili, sem Djonn Ársæll tók viðtal við hér um árið, frelsaðist, og sá ég þáttinn, en þar sagði hann (ekki djonn) að það væri honum að þakka að kárahnjúkavirkjun væri að fara af stað, einnig minntis hann á fellibyl einn sem myndaðist hafði í ameríkunni hjá bush og co, sem talinn var lífshættulegur, þ.e.a.s. að hann myndi taka með sér mörg mannslíf. Eitthvað komst þess aðili á snoðir um fellibylinn, og sagði honum bara að hætta...og viti menn, júbbb, hann hætti og þúsundir manna sem eflaust hefðu týnt lífið í þeim náttúruhörmungum sem stafaði af fellibylnum (fékk e-ð nafn, sem ég man ekki hvað var..sennilega britney eða e-ð) létu bara ekki lífið fyrir tilstilli þessa merka íslendings ! Svona er heimurinn lítill.

En jæja, þetta eru sumsagt þeir hlutir sem runnið hafa í gegnum hugan á mér síðustu daga m.a.

Elskið friðinn og munið nr.? boðorðið sem segir manni að glaður skul maður vera ef maður sér Liverpool-A.C. Milan úrslitaleikinn í champ.league !

Ætla að elda mér einhverjar kræsingar á morgun í tilefni af 1-1 jafntefli Liverpool við Maccabi Haifa

Fín sending Stefán

lifið heil

Spáin fyrir veturinn.

19. ágúst 2006 klukkan 16:29

Spáin 06/07

1. Liverpool - Sterkasta lið ensku deildarinnar þetta seasonið. Sérstaklega í ljósi þess að liðið hefur sankað að sér heimsklassamönnum á borð við Bellamy, Kuyt, Palletta og Gonzalez. Þáttur Rafael Benitez, besta stjórans í deildinni er einnig risastór, en tak hans á Mourinho (sem oft hefur verið kallaður "litli" Benitez) mun leiða til þess að rauði herinn fagnar titlinum upp í opnum strætó á götum mersey í maí n.k.

2. Chelsea - Ekki mun skilja mikið á milli toppliðsins og Chelsea að þessu sinni, en þeir bláu verða sterkir í vetur, þrátt fyrir að eiga "flopp" tímabilsins (Ballack). Margir góðir farnir frá klúbbnum og nokkrir lykilmenn í fýlu, s.s. William Gallas, sem enn hefur ekki farið frá brúnni, nú þegar tæpur klukkutími (þegar þetta er skrifað) er í að mót hefjist. Mourinho hættir í lok leiktíðar.

3. Man.Utd - Veit ekki alveg af hverju ég set United svo ofarlega, ætli það sé ekki bara af gömlum vana, en ástæðan er svo alls ekki sú hversu góðir þeir eru, miklu frekar seigla í þessu liði. RVN farinn til Madrid, og framherjapar United eru því Louis Saha (einu sinni efnilegur) og Ole Gunnar Solskjaer (útbrunninn) og þá með litla hobbitanum aftan við þá (rooney). 18,6 m.punda maðurinn, Michael Carrick mun ná að sýna sitt rétta andlit allt tímabilið og næstkomandi tímabil með United, þ.e. miðlungsspilamennsku.

4. Arsenal - Ef það er fýla hjá Chelsea, þá hafa þeir smitast af Arsenal. Reyes og Cole grátbiðja drottin á hverju kvöldi eftir faðir vorið um að daginn eftir verði þeir ekki lengur leikmenn Arsenal. Thomas Rocicky er vissulega öflugur leikmaður og mun hann styrkja þetta lið talsvert, en samt ekki, eftir að Bergkamp fór er þetta bara svipað núna og verður baráttan um þetta 4.sæti ofboðslega skemmtileg og í 37.umferð ná skytturnar ósanngjörnum sigri og tryggja sér þar með þetta sæti. Henry fer til Inter eftir tímabilið fyrir 17,5 - 18m.punda.

5. Tottenham - Þetta firnasterka lið mun ná mörgum mögnuðum úrslitum þetta tímabilið, og munu sigrar þess á United verða einkar fallegir, bæði í deild og bikar. Berbatov skorar 26 mörk þetta tímabilið.

6. Newcastle - Þrátt fyrir að Owen sé meiddur og verði það jafnvel allt seasonið þá munu strákar Glenn´s Roader ná þessu sæti, en verða í smá ströggli um jólin en þá kemur hinn sköllótti Sheepard enn aftur með tugmilljónir punda til leikmannakaupa og Roader verður árangursríkari í þeim efnum en Graham nokkur Souness.

7. Blackburn - Gríðarlegur missir í Craig Bellamy til fimmfaldra evrópumeistara, en þeir verða í miðjuhnoði mest allt tímabilið en gott "run" í lok tímabils orsakar það að þeir verða í þessu sæti.

8. Aston Villa - Martin O´Neill mun vinna þrekvirki á Villa Park og sér í lagi með þennan bandaríska auðmann sér við hlið, ekki oft sem O´Neill hefur fengið úr einhverju fjármagni að ráða þegar kaupa á leikmenn en mun hann byrja á því með Aston Villa og verður afraksturinn nokkuð góður. Doug Ellis, andast í bikarleik gegn Birmingham seinna á leiktíðinni.

9. Man.City - Magnaður stjóri, býsna skemmtilegt lið, þrátt fyrir að þeir hafi ekki náð að sýna sitt besta eftir að McManaman hætti. Andreas Isaksson, nýr markmaður hjá City-mönnum og mun hann verða þeim mikill happafengur. Fyrirliði liðsins verður, þó kannski ekki alveg strax Dietmar Hamann, einn af albestu miðjumönnum deildarinnar í mörg ár.

10. West Ham - Voðalega lítið um þetta lið að segja, annað en það að Alan Pardew er skemmtilegur stjóri sem ná mun langt með liðið í einhverri keppninni í vetur, en nær þó ekki ofar en 10.sæti í deildinni.

11. Wigan - Svarta perlan, Emile Heskey er komin á JJB og eftir ca. 50-60 ár mun stytta, honum til heiðurs verða reist við sennilega nýjan leikvang þeirra Wigan manna, fyrir afrek hans á fótboltavellinum með þeim og verður þetta tímabilið sem Heskey nær jafnvel 30 mörkum, bara í deild. Gefin verður út DVD-diskur í lok leiktíðar með mörkum Heskey´s.

12. Fulham - Svolítið veikur fyrir Coleman, en þó nær sá áhugi ekki lengra en það að hann verður með Fulham í hnoði í allt vetur, eitthvað mun hann kynnast botnbaráttunni en nær svo að rétta skútuna við þegar líða tekur á tímabilið. Í janúar kaupir Coleman Lee Carsley frá Everton.

13. Charlton - Djimi Traore fleygir Hreidarssyni út úr byrjunarliðinu á The Valley, og mun hann, eftir nokkra leiki fá afhent fyrirliðaband og mun hann verða til þess að Charlton hreinlega falli ekki.

14. Porstmouth - Skemmtilegt sóknarlið og með nýjan eigenda, og þ.a.l. fjármagni munu strákar Redknapp´s ná þessu sæti að þessu sinni, en á komandi tímabilum verða þeir mun mun ofar í deildinni. Jamie Redknapp spilar nokkra leiki með liðinu áður en hann meiðist, og nær næstum því að skíta upp á axlir á sér, fyrir spilamennskuna.

15. Middlesbrough - Einkar óáhugaverður klúbbur sem mér er svo nákvæmlega sama um, Gareth Southgate verður rekinn í febrúar.

16. Sheff.Utd - Nýliðarnir ná að halda sér uppi en það verður þrautin þyngri því þeir verða í fallsæti mest allt tímabilið.

17. Bolton - Árangri big sam (manninum sem Guðni Bergs hefur sængað hjá) er lokið hjá Bolton. Þetta lið mun vonandi falla með ónefndu liði, en ná því miður að bjarga sér, og á einhvern óskiljanlegan hátt mun stóra sam verða hampað fyrir vikið ! Hann fær 3 menn af free transferi í janúar og verða það Krasimir Balakov, David Platt og Claudio Caniggia.

18. Everton - Það er með mikilli ánægju og raunsæi sem ég set Everton hérna, það er nákvæmlega ekkert varið í þetta lið, þó að Andy Johnson hafi farið til þessa auma klúbbs þýðir það það ekki að þeir nái einhverjum árangri, Johnson meiðist fljótlega og allt hrynur..."bjargvætturinn" Duncan Ferguson verður ekki lengur til taks eftir að hafa gengið svo alvarlega í skrokk á innflytjendum frá asíu að hann fær lífstíðarfangelsisdóm. Spái því líka að Phil Neville meiðist og verði lengi frá.

19. Reading - Því miður fyrir þessa nýliða, þá
verður hlutskipti þeirra að falla niður um deild.

20. Watford - Þrátt fyrir dálæti ýmissa manna á þessum stjóra, Adrian Boothroyd þá sé ég ekki að þeir hafi verið að styrkja sig e-ð að ráði, og slá þeir met í fáum stigum í premíunni frá upphafi.

Besti leikmaður deildarinnar - Sissoko

Vonbrigði deildarinnar (leikmaður) - Michael Ballack

Efnilegasti leikmaður - Mark Gonzalez

Markahæsti leikmaður - Dirk Kuyt

Röðin á þeim 5 þjálfurum sem fá að fjúka ( Nr. 1 er sá fyrsti o.s.frv.)

1. Sam Allardyce í endaðan janúar.

2. Gareth Southgate ( 9.febrúar)

3. Adrian Boothroyd (15-18 mars)

4. Neil Warnock (svipuðum tíma og Boothroyd)

5. David Moyes (þegar 5 leikir verða eftir í deildinni)

Fyrirsögn

15. ágúst 2006 klukkan 16:37

Liverpool vann auðvitað Chelsea í leiknum um góðgerðaskjöldin og skoruðu hverjir aðrir en Riise og Crouch mörk rauða hersins !! Jose Mourinho var eins og fýldur unglingur á bekk Chelsea með nýju snoðklippinguna sína. En þessi úrslit þurfa ekki að koma fólki neitt á óvart, ég var svona hóflega bjartsýnn fyrir leik en svo endaði þetta semsagt 2-1. Mark Chelsea gerði Andriy Shevchenko.

Úrslitin í skoðanakönnuninni á síðustu síðu hjá mér fór þannig að flestir þeir sem kusu ætluðu sér að fara upp á fjöll með kristalin sinn og þamba hann þarna uppfrá, færri ætluðu sér að vera töff og fara á fyllerí. Alltof fáir ætluðu sér að berjast fyrir jöfnum launum kynjanna.

Ísbíllinn, bíll sem  á heita svona krúttlegur bíll með litlu bjölluna sína, akandi hérna um þessi barngóðu hverfi með litla íspinna handa stilltum og þægum krökkum var tekinn um daginn. Eitthvað fannst fólki hann vera heldur seint á ferðinni með ísinn, því eins og flestir vita stekkur fullorða fólkið ekkert til og hleypur út með þúsundkallinn og hleypur á hljóð ísbílsbjöllunar, heldur er markhópur svona ísbíls frekar krakkar sem í þessu tilviki voru flestir sofnaðir. Fóru rannsóknarlögreglan af stað og grandskoðaði svo bílinn sem endaði svo með því að eitthvað af dópi fannst í bílnum !

Ef einhver þarna úti, er alvarlega að velta því fyrir sér hvort hann eigi að fara í golfið þá er til sölu golfsett hjá einum aðilanum hérna í bænum. Ástæða þess að Wilson-settið er til sölu hjá manninum er tilkomin vegna þess að hann fór einn mývatnshring nú um daginn og heimildarmenn mínir segja mér að spilamennskan hjá honum (þrátt fyrir að teljast nýliði) hafi verið skelfileg ! Hitti einn bolta eitthvað að ráði á vellinum, en það var þegar verið var að ganga frá settunum í skottið og hafi maðurinn séð eina fimmu þarna (fótbolti) og hafi hrifsað þann bolta til sín og í bræðiskasti sínu kastað honum í loftið og sparkað honum langar vegalengdir um leið og upphófst mikið öskur...heeeelvííííítiiiiis ! Þegar keppendurnir voru svo á leið til síns heima frá mývatnssveit hafi verið grafarþögn í bílnum alla leiðina, eina sem sagt var, var það þegar umræddur spilari sagðist hafa golfsett til sölu ! Fékk það svo staðfest í gær, að umrætt Wilson-sett, fínt byrjendasett er semsagt til sölu og er verið að tala um einhvern skitin fimmtánþúsundkall fyrir settið. (Peningin á að nota í góðgerðastarf, þó ekki Sölku heldur eitthvað svona barna-dæmi)

Ég sjálfur er einmitt að gæla við það að taka einn hring nú uppúr hádeginu og berjast við forgjöfina hjá mér, sem er sem stendur ca 24.

Gæsin að byrja eftir nákvæmlega 5 daga, og væri ég að ljúga ykkur stútfull að því ef ég segðist ekkert vera spenntur, því ég hef komist að því að ekkert sé betra en að liggja í einhverjum þægilegum skurði með góðum félaga/félögum og heyra eingöngu í gæs gargandi í órafjarlægðum. Ekki enn komin fram með einhver markmið varðandi þetta tímabil, en þó það að stunda andaveiðarnar í frekari mæli en verið hefur undanfarin ár.

En jæja þá eða well well eins og kaninn segir...ætli sé ekki langbest að fara að uppfæra ísskápinn hjá sér e-ð með kræsingum á borð við bláberjasultu og fleiru góðmetinu.

Vona að þið hafið það bara ofboðslega gott og viðurkennið bara að ykkur sé skítsama um þessi átök þarna í líbanon og ísrael, mér verður bara óglatt af fréttum af þessum svæðum þarna, í hverju og einum einasta fréttatíma þarf að koma eitthvað frá þessum svæðum ! Ef að einhver Hizbollah-leiðtoginn fer í krummskó er dagskrá á öllum fjölmiðlum rofin og sagt frá því ! Sérstaklega ef þarna rauði kross íslands maðurinn á 365 er að lesa fréttir, þá gleymir hann sér í ruglinu af fréttum þaðan !

En já, ætla að fara að taka til tíin mín og golfpeysuna og bruna þarna uppeftir og slá nokkra bolta.

Fín sending Stefán

Amerískar bíómyndir !

08. ágúst 2006 klukkan 07:56
Var að klára að horfa á bíómynd rétt í þessu...horfði á myndina "In good company" með ekki ómerkari leikurum en Dennis Quaid (held það sé skrifað svona) og einhverjum svona huggulegum gaur held ég. En já, @ líst þá er það þannig að á þeim dögum sem er einstaklega sólríkt, og klukkan einhversstaðar á bilinu 11:00 - 16:00 get ég horft á bíómyndir sem bannaðar eru yngri en 16, þó á þetta sér í lagi við bíómyndir sem eru svona "spúggí" e-ð. En svona á kvöldin fá þessar "rómantísku gamanmyndir" og "gamanmyndir" einungis að vera á skjánum hjá mér, horfði t.d. á mynd um daginn með Heather Locklaer í aðalhlutverki en myndin snerist um mægður, semsagt ein móðir ásamt tveimur dætrum.

Skil ekki alveg hvað þetta er hjá manni, man eftir því að einu sinni (og er það nú kannski vegna þess að ég átti á þeim tíma heima hjá foreldrum mínum) þá þótti það nú ekkert tiltökumál fyrir hrollvekjuáhugamanninn æbba að leigja sér þessar myndir þið vitið "scream" "freddie-dæmið" "i still know what you did last summer-myndirnar" og fleiri og fleiri svona sem falla undir hrollvekju/hryllingsmyndir en þegar árin líða og ég svona einn á kvöldin með litla Tuma minn (litli bangsinn minn) í sófanum þá þoli ég illa einhverjar horror-myndir. Svo er líka óþolandi, þegar myndir sem maður býst nú fastlega við að endi svona "fallega" (Nicholas Cage leikur oft í þannig myndum...sbr könnunin hér til hliðar) en t.d. þessi mynd "In good company" endaði bara ekkert vel, samt sem ætti ekki að hafa þær afleiðingar að ég ímyndi mér skrímsli undir rúminu eða martraðir tengdar myndinni, heldur endaði myndin ekki svona fallega þið skiljið, kallinn flutti bara og þau enduðu ekkert saman ! En myndin með Heather endaði reyndar nokkuð vel og sofnaði ég vel eftir hana, þetta eru nú bara smá vangaveltur.

En já, þar hafið þið það, er sumsagt frekar mikil skræfa í bíómyndum (samt les ég fullt af bílablöðum og klámblöðum sko) en stundum finnst mér að ég ætti að athuga kynfærin á mér þegar maður næstum því tárast yfir myndum á borð við Titanic, Notebook, The Green Mile og fleiri myndum. (samt ekkert illa meint sko gagnvart kvenkyninu) Samt þegar ég fer í bíósali þar sem alvöru sound er og stórt tjald og það kemur svona "hrökkviatriði" þá "bregður" mér nánast aldrei og þá er nú gott að horfa á þann sem við hliðina á manni er, og glotta svona yfir hans "bregði" og horfa hrikalega svalur og karlmannslega á myndina áfram.

Svo reyndar hittir þetta þannig á stundum að maður skiptir yfir á einhverja rás og einhver mynd nýbyrjuð sem merkt er með "rauðu" merki upp í hægra horninu en maður þekkir ekki myndina og ákveður eftir talsverðan tíma (þetta á bara við ef maður er í fríi daginn eftir, ef vera skyldi að maður næði ekki að sofna strax og myndi maður þá vakna frekar geðstirður daginn eftir), já semsagt, ákveður það að horfa á myndina og hún byrjar bara vel en svo um miðbik myndarinnar fara að gerast einhverjir "hættulegir" hlutir en maður getur ekki hætt því maður var þá hvort eð er búinn að sjá einhverja "spúggí" hluti í myndinni og maður kastast upp úr sófanum og kveikir á öllum þeim ljósum sem fyrirfinnast í íbúðinni hjá manni og maður þarf að sofna við kveikt ljós og helst að taka ein 3-4 andrésblöð áður en maður sofnar !

Dæmi um myndir sem hægt væri auðveldlega að horfa á rétt fyrir svefninn eru:

Dumb & Dumber - Ace Ventura - 40 year old virgin - Dalalíf - Nýtt líf og fleiri svona gamanmyndir

Dæmi um myndir sem ekki væri hægt að horfa á rétt fyrir svefninn eru:

Shining - Scream myndir - The 6th Sense - Titanic (nefninlega sannsöguleg sem endar átakanlega) - Anthony Hopkins í mannætumyndunum - Rock (ef maður á ekki frí daginn eftir) - Löggulíf (gömlu konurnar í þeirri mynd eru e-ð svo "krípí") og eflaust fleiri myndir sem maður man ekki alveg í augnablikinu.

Jæja...þá er þetta komið og tími komin á að halla sér og vonandi að þið hafið það bara óvenju gott bæði í leik og starfi það sem eftir lifir vikunnar.

Fín sending Stefán