Könnun

Hefurðu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglýsing

Jú, ég myndi nú geta staðfest það bara held ég

05. ágúst 2006 klukkan 03:14
Jæja..verslunarmannahelgin komin, en þetta nafn á þeirri ágætu helgi er einmitt tilkomið vegna þess að á mánudeginum er frídagur verslunarmanna sem er auðvitað fáránlegt ! Eina fólkið sem vinnur þá eru jú einmitt verslunarmenn, allir aðrir í fríi o.s.frv. en það þýðir víst lítið fyrir það fólk að grenja e-ð í bjössa bónda með það og horfa upp í sólina bara og brosa

Eins og sést hér neðst í færslunni er klukkan þetta um 22:00 og föstudagskvöld og er ég að ritla þessi örfáu orð hér niður sem segir fólki það að þetta fös.kvöld er einkar óáhugavert, býst fastlega við því að gera barasta ekki neitt, en útibú innipúkans á norðurlandi er víst hjá einsa beinsa og gæti vel farið svo að maður rölti til frænda og taki þar eins og 1-2 öllara í mesta lagi, ákvað nefninlega að vera bara dannaður þessa helgina, af öllum helgum en eins og amma mín heitin orðaði það svo skemmtilega haustið ´99 við mig, að þá þarf maður ekkert að verða blindfullur til þess að skemmta sér og var það alveg hárrétt hjá henni með það.

Gæti engu að síður farið svo að maður kíki inneftir á morgun, bara svona til þess eins að rækta fjölskylduböndin með systur og litlu stelpunni hennar. Þær stöllur eru einmitt búnar að vera hérna í l3c í vikunni og höfðu það gott.

Sigurrós að spila í byrginu í kvöld, og fóru víst einhverjir þangað...merkilegt hvað þeir eru vinsælir ef mið er tekið af því hversu leiðinlega og þunglyndislega tónlist þeir flytja. Sérstaklega eru þeir félagar vinsælir þegar þeir fljúga frá íslandi og byrja að gaula eitthvað, sem á ekkert að þurfa að koma fólki á óvart. Hvað er t.d. Björk, ef ég sæji auglýsingu í skránni um að Björk Guðmundsdóttir væri að spila með einhverja demanta framan í sér á bauknum einhverja helgina, færi ég fyrst og tékkaði á sjónvarsdagskránni. Bæði Sigurrós og Björk eru fín dæmi um tískufyrirbrigði, í dag er ofboðslega "cool" að fíla Sigurrós og geta sagt félögunum að maður eigi disk með þeim, helst verður maður að vera ákaflega sérstakur karakter til þess að fá að halda upp á þá. Því eins og allir vita sem það vilja, þá flytja þeir ekki tónlist, meira svona....já e-ð gaul...gaula bara í "mækin" og allir standa og horfa og þykjast hafa rosa rosa gaman af þessu. Meira að segja Ríkissjónvarpið, stofnun sem ég er tilneyddur til þess að borga í, rauf magnaða dagskrá sína nú fyrir skömmu til þess að senda beint út frá þessum "tónleikum" þeirra Sigurrósamanna.

En já, Liverpool tapaði í kvöld fyrir liði sem gerði markalaust jafntefli við Keflvíkinga fyrir nokkrum mánuðum síðan, og þeir bara töpuðu ekki, heldur ákváðu að drulla svo ærlega upp á herðar, en þeir töpuðu fyrir Mainz 0-5 í kvöld !! Gráta

En jæja krúttin mín, ætla að fara fleygja mér í sturtu og taka stöðuna á þeim félögum þarna niður frá.

Hafið það bara ofboðslega gott og munið að vera góð við hvert annað Glottandi

Fín sending Stefán

ps - Sigraði gauja í golfi í gær með 1 höggi sem segir okkur það að í síðustu þremur hringjum hef ég sigrað tvisvar en gauji "því miður" bara einu sinni

Ég hef mig ekki einu sinni í að taka slátur !!

26. júlí 2006 klukkan 23:56
Já, sólin skín og fuglarnir syngja og flugurnar kasta sér á mann...þetta er alveg hreint brilliant dæmi hérna á víkinni sem stendur. Í kvöld, ef guð og menn lofa er ég að fara, eftir ólýsanlegan dugnað í dag (kem betur að honum á eftir) að taka jafnvel barasta 1 golfhring í blíðunni nú eftir kvöldmat og njóta blíðunnar í enn frekari mæli !

Dugnaður í dag eruð þið að hugsa já...já það get ég sagt ykkur að ég hef hvorki meira né minna sett í heilar 3 vélar í dag (meira að segja er metið hjá mömmu held ég bara 2 skipti) Svalur

En að sjálfsögðu er þessi mikli dugnaður tilkominn vegna næsta laugardags, og svona dagana í kringum hann...en eftir þann dag (m.v. hvernig elísa systir er að missa sig í stressi) þá kemur fólk í veröldinni allri til með muna eftir þessum degi, atburðir á borð við sprengjuárásirnar á WTC, þegar Kristján Ara fæddist, þegar Leoncie hvarf af landi brott, suðurlandsskjálftinn, öll sagan af Ali, dagurinn þegar KS Records hóf störf og fleira merkilegt gerðist, allt þetta mun garanterað falla illilega í skuggan af brúðkaupsdegi Elísu og John´s. En já, svo ég reyni nú að toga því upp úr mér útaf hverju dugnaðurinn er hvílíkur að fáir hafa upplifað og séð annað eins, er sá að ég er að fara að lána íbúðina mína og verður nú allt að vera hreint og fínt í L3c þegar gestirnir ganga inn.

Mér hefur að öllum líkindum verið "komið fyrir" í fellihýsi einu hér í bæ, og á ég bara eftir að ákveða hvar nákvæmlega á víkinni það verður staðsett yfir helgina, nokkrar tilllögur eru þegar komnar fram, golfvöllurinn er ákjósanlegur staður sem virðist vera að hafa vinninginn þegar stutt er í ákvörðun, aðrir staðir sem einnig eru taldir líklegir eru botsvatn, tjaldsvæðið og kaldbaksland, en sem fyrr segir er golfvöllurinn, eða mjög nálægt honum með forystuna sem stendur.

Eftir töluvert mikinn þrýtsting frá fólki víðs vegar af úr heiminum sem stundum hefur jaðrað við morðhótanir ákvað ég að myndin sem þessi síða ber með sér skuli vera af undirritaðum, þar sem hann átti feikna-gott högg á 'Sprænugilsbrautinni' en boltinn endaði þetta 28-29cm frá holu og 'bördaði' maður þá holu að sjálfsögðu. En minn helsti styrkur (af mörgum samt sko) í golfíþróttinni er óbilandi þolinmæði og pútt, er einkar laginn við að sjá fyrir mér leið boltans að holu þegar komið er inn á flöt Svalur en er í vís með að uppfæra þessa golfmynd í aðra golfmynd o.s.frv. þegar fram líða stundir.

Angelina Jolie brast í grát víst á dögunum þegar hún kom að manni sínum til örfárra mánaða, Brad Pitt í rúminu með Jennifer Aniston....heyrðu neinei, smá misskilningur hérna að gera sig...hún kom að honum í SÍMANUM !!! Menn verða nú aðeins að fara að átta sig á málum hérna, hvað var pittarinn að spá í það að vera að tala í síman, þegar hann veit að Jolie fer bara að hágráta þegar hann spjallar létt við x-ið sitt !.....neinei, má ekki gera grín af Jolie, hún er að hjálpa fullt af krökkum upp í fjöllum í kashakstan eða á held ég svipuðum slóðum.

Liverpool festi í dag kaup á 5 leikmanni sínum þetta sumarið og verður það Jermaine Pennant sem fær þann mikla heiður að leika í sama liði og Robbie Fowler.

Hugsa að ég hafi þetta ekki öllu lengra í þetta skiptið, ætla að fara að strjúka af og skúra svo ég klári það nú, en það sem er svolítið magnað samt áður en ég hætti þessu hérna, og vona nú að ég hljómi nú ekki mjög gay, þá er bara ágætt að þrífa aðeins í kringum sig og sjá árangurinn af því sem maður afrekar með því að setja upp á sig gúmmívettlingana, sjá grindina sem þurrkar fötin manns sneisafulla o.s.frv. Glottandi

Hafið það ofsa ofsa gott elsku börn og njótið blíðunnar og munið nú eftir smáfólkinu, það er ungt og það leikur sér !

Fín sending Stefán

Líf manns væri svo mikið mikið einfaldara ef væri ekki fyrir.....

21. júlí 2006 klukkan 19:25
Trampolín og barnasundlaugar !

Já, búinn að þurfa að þola undanfarin mánuð a.m.k. 1000 krakka hér á lóðinni hjá mér (sem er btw í línu við stofugluggann minn) dag eftir dag þar sem þau hafa verið að leika sér að hoppa á trampolíni ! Fyrsta minningin um þennan skaðræðishlut var þegar ég kom heim, eftir ákaflega erfiðan vinnudag, og fleygði mér í sófann og kveikti á sjónvarpinu og setti á textavarpið og sofnaði værum svefni upp úr því og vaknaði heldur betur snögglega og reis upp, gekk á hljóðið, sem kom frá stofuglugganum....leit út og við mér blasti svona í alvöru talað 25-30 krakkar hoppandi á nýuppsetta trampolíninu sem ábúandinn fyrir ofan mig hafði fjárfest sér í ! Þrátt fyrir að loka gluggum í íbúðinni dundu þessi óhljóð enn á glugganum hjá mér sem þýddi að ég þurfti að skríða inn í rúm til þess að leggja mig ! (hef haft þann vana að leggja mig alltaf bara í sófanum, sofa á nóttunni í rúminu mínu)

....en já, þegar ég var búinn að ímynda mér það að ég byggi á Times Square á gamlárs og náð að venjast því með alla krakkana þarna fyrir utan á krúttlega trampolíninu sínu, þá tók ekkert betra við ! Kom heim, heyrðist ég heyra (nú er það) í áberandi fleiri krökkum en ég hafði vanist s.l. 2-3 vikur, þá fór ég inn, leit út um stofugluggann og sá þar, að ekki var nóg með að trampolínið var þarna, heldur var einnig komið á lóðina frekar stór barnasundlaug, og var hún ca. 2 metra frá glugganum og buslugangurinn eftir því...krakkarnir semsagt stukku á trampolíninu og fóru svo og kældu sig niður eftir hamaganginn þar í sundlauginni o.s.frv. !

Þegar ég var yngri, þá þótti nóg að fara bara í fallna spýtu, skotbolta, á róló, í parís, feluleik, eltingarleik, leika sér í hjartar-garði og svona þessa heilbrigða leiki fyrir krakka...en neinei, núna þarf að versla handa þessum krökkum dýra hluti svo þau geta leikið sér, sbr trampolínið, ps2, pc tölvur og rándýra leiki svo dæmi sé tekið.

En já, að allt öðru, tókst að sannfæra sjálfan mig áðan að fresta tiltektinni um óákveðin tíma, mátti ekki "missa af" opna breska meistaramótinu í golfi sem sýnt er nú í sjónvarpi allra landsmanna, svo er aldrei að vita nema maður taki eins og einn hring á eftir þannig að tiltektin fær að bíða (alltaf svo frábært þegar maður nær að sannfæra sjálfan sig um svona hluti)

Komin ný könnun, en flestum fannst það bara ofboðslega krúttlegt ef karlmenn færu í handsnyrtingar o.þ.h. aðgerðir á snyrtistofum, get samt fullyrt það hér að ég hef ekki farið, og mun að öllum líkindum ekki fara í slíka snyrtingu allsgáður.



Lét hér fylgja með 2 íþróttamyndir af ferð okkar gauja upp á katlavöll í gærkvöldi þar sem við spiluðum hringinn bara virkilega vel, urðum jafnir með 51 högg.

Ína og hljómsveit, eða Ína og rabbi eins og ég hef viljað kalla hljómsveitina verður á sölku um mærudagana og hefners verður sama kvöld á bauknum...vandi er um víst að spá á hvorum staðnum maður kemur sér fyrir en þar sem ég vill ennþá vera svona ungur í anda þá þykir mér Salka ákjósanlegri staður fyrir ungt fólk en allt það mun nú koma betur í ljós

Ætla að biðja ykkur að hafa þá góðu tilvitnun bak við eyrað um helgina að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.

pé ess
Þá eru nokkrar myndir hér að ofan til vinstri, m.a. úr ofangreindri íþróttaferð, sem og nokkrar af kobba hjaltalín frá í ásbyrgi

Hann baða afbuðða foskaheftur

17. júlí 2006 klukkan 05:48
Já, eftir ítrekaðar barsmíðar á hurðum og gluggum hérna hjá mér í dag og í kvöld í takt við trommusláttinn hef ég ákveðið að blogga aðeins !

Lítið að segja samt sem áður...hef lítið verið að spá í árásir ísraelsmanna í beirút og það allt saman undanfarið...nýskriðinn heim úr golfi með gauja, stóð mig með miklum ágætum, þrátt fyrir arfaslaka mætingu í sumar, tókum púttkeppni sem ég sigraði naumlega en sigur engu að síður.

Lögðum næstum því af stað í byrgið í gær, búnir að taka til tjaldvagninn og það alle sammen bara en á allra síðustu stundu var ákveðið að skila honum af bílnum og bruna í mývatnssveitina en höfum heyrt að hún sé æði og vildum sannreyna það...og sannfærðumst við um það svona nokkurn veginn, var allhvöss s-átt en engu að síður fín ferð, en notuðum við hana í golf..en mun þetta hafa verið fyrsta skiptið okkar beggja á þeim ágæta velli og virkaði hann bara nokkuð vel á keppendur. Brunuðum síðan heim á víkina og ætluðum að grilla okkur hrefnukjöt en biðum með það og opnuðum við því bara fyrsta bjórinn og leið tekin á bauksa og rættist nú heldur betur úr því sem þar var, byrjaði rólega en sneisafullur staður fljótlega og þegar svo ber undir, þá er tekin ákvörðun um það að opna ekki báða barina, heldur hafa alltaf bara einn bar opinn þegar það er fullt þarna inni !! Fór svo heim frekar snemma bara og sofnaði fljótlega.

Grilluðum hrefnuna í kvöld og ekki skil ég hvað er svona óskaplega rosalega frábært við hrefnukjöt ! Ef hrefnukjöt væri kjöt sem væri að dýri sem væri ekkert ósvipað og t.a.m. rollu, þá væri þetta ekki vinsælt hugsa ég ! Það er reyndar eitt sem hægt er að gagnrýna, og það eru þessi einnota grill svokölluðu, tók mjög samviskusamlega plastið utan af grillinu og undir grindinni er e-ð svona spjald sem á kvekja í, og þá á samkvæmt öllu eðlilegu að koma hiti á kolin sem undir spjaldinu en það bara gerðist svo alls ekki...til að bæta steingráu ofan á kolsvart var mikið rok hérna í göngunum fyrir framan sem þýddi það að ég þurfti að kveikja í þessu hérna inni í forstofunni og þegar ég var búinn að því og búinn að búa til hrottalega lykt hérna inni þá óð ég út í hvassviðrið og fljótlega fór háværasti reykskynjari í sögu mannkyns í gang, og sá ætlaði svo aldeilis að standa vaktina og kallaði hann lengi og vel þrátt fyrir svo ótrúlega ítrekaðar tilraunir mínar við að slökkva á honum en það hafðist á endanum og hefur hann verið þægur síðan. Reykskynjarar eiga að verja híbýli manna frá eldsvoðum, og eru þeir vel til þess fallnir sérstaklega þegar fólk er t.d. sofandi, en ef ég gleymi að slökkva undir hellunum (sem gerist stundum)  og ég fer að sofa, og eldur myndast og reykur og svona græ og þessi fer af stað, tel ég vera svona 75-80% líkur á því að maður steindrepist við að vakna við hann.....en það gæti einmitt verið hlutverk þessa reykskynjara, að láta mann bara drepast snögglega í staðin fyrir að stikna til dauða í eldsvoða ! Enduðum einmitt á því að stekja þetta bara á pönnu og heppnaðist sú eldamennska bara vel, köld piparsósa og kartöflu-gratín var meðlætið að þessu sinni.

Stefnt á að taka "Hertoginn af Þverá" næstu helgi og eru menn svona að gera sig klára í gallanna og er keppnisandinn það ríkur í mönnum að menn eru hættir að taka síma hjá hvor öðrum og æfingar fara ekki lengur fram þar sem allir eru saman, prógrammið er stíft fram að móti og ákveðið hefur verið að farið verður á 3 bílum en ekki saman í 1 bíl, en keppendur eru einmitt 3, undirritaður Æbbi 'Parnevik', svo Alli 'Els' og svo að endingu nýliði á þessu móti, en það er Daddi 'Ragnhildur Sigurðar' og eru styrktaraðilar mótsins ekki af lakara tagi að þessu sinni, en það eru Cult-Video, Garðaþjónusta Þuru Þrása, Ruslatínsla Bamba ehf., GÞÞS (Gluggaþvottaþjónusta Sverris), Bónstofa Olla og einhverjir aðrir sem ekki telur að nefna hér á nafn. Búið er að koma fyrir áhorfendabekkjum við nokkrar holur og erum við að tala um allt í allt tæplega 500 sæti og sætið er á einhvern skitin 14.000 kjell þannig að óhætt er að hvetja fólk til þess að mæta og sjá alvöru golfara sýna listir sínar. Gæti farið svo að einn keppandi bætist við þessa 3 fyrrnefnda, en Gauji 'Páll Ketils' mun kannski láta til skarar skríða.

Hugsa að ég láti þetta gott heita í bili...gott í bili...geðveikur brandari hérna á ferðinni, maður er bara í massastuði og tilbúinn hérna á kantinum í að sleikja hamsturinn maður !...æji neinei, þetta var nú frekar aumt e-ð, samt gaman ef svo færi að maður myndi einhverntíman í framtíðinni kunna svona fullt af töff hugtökum o.fl.

Hafið það öll ofboðslega gott í vikunni nú sem framundan er, og munið að eftir einn ei aki neinn og ekki láta það pirra ykkur hvað veðurfréttakonan á channel 2 stamar mikið og virðist oft eiga í heiljarmiklum vandræðum með að koma því sem henni langar, út úr sér....

Minnist einnig forfeðra ykkar með þakklæti í huga og munið hvað það þarf lítið að gera fólk ánægt, hlægja af t.d. slökum bröndurum fólks getur gert fólk virkilega hamingjusamt

Fín sending Stefán 

Þú ferð bara að heyja ?!?

14. júlí 2006 klukkan 02:07
Jæja börnin góð...talsvert vatn runnið til sjósins síns síðan síðast, ef frá er talin fréttin um að Ítalía séu heimsmeistarar, og það er þrátt fyrir að sumir menn séu búnir að bíta það í sig, mjög gott mál, því vissulega spiluðu þeir skemmtilegan fótbolta á mótinu...sem á endanum tryggði þeim heimsmeistaratitilinn ! :) Er einnig búinn að ákveða mig, er varðar næstu treyju sem ég fæ mér, en það verður Ítalska landsliðstreyjan, með Materazzi aftan á. En þetta hatur manna almennt á Ítölum er svosem skiljanlegt annars lagið, en jesús minn og allir náskyldir þeim ágæta manni ! Ítalía spilaði svo langt frá því leiðinlegan bolta á þessu nýafstaðna móti, frakkarnir t.d. spiluðu ömurlegan bolta, sömu sögu má segja af portúgölum en þetta almenna hatur manna á ítölum "af því að þeir spila leiðinlegan bolta" er ástæða sem ekki lengur verður tekin gild ! Til hamingju knattspyrna með glæsilega sigurvegara á HM :)

En já, haldið var bekkjarmót um s.l. helgi sem fór að mínu áliti bara nokkuð vel fram og haldið var svo á ball á bauknum þar sem Ína og hljómsveit var að spila en sú hljómsveit inniheldur m.a. eilífðarrokkarann Rafnar, en listamannanafnið á honum verður pottþétt Rabbi...og var svona heldur betur góð stemning á því balli og skemmti fólk sér held ég bara svona almennt talið vel.

Nýtt orð í málningarbransanum poppaði upp nú fyrir skömmu þegar eigandi og framkvæmdastjóri the tone í hei eff sagði mér að fara að heyja !! (þarna hélt ég að hann væri að grínast með það hvursu arfaslakur málari ég væri og benti mér á hin góðkunnu bóndastörf) og var ég svona frekar hissa á svipinn, svipaður og þegar mamma sagði mér á sínum tíma að ég ætti bara sjálfur að laga til í herberginu í fyrsta skipti ! En orðið heyja, er einmitt þýðing á því að betrum bæta sprungur og svona græ í veggjum og gerði ég það að sjálfsögðu með stakri prýði (þó ekki saumastofan prýði..hahaha)

Annars er maður bara í chillinu þessa daganna, sumarið auðvitað alltof alltof alltof fljótt að líða og hefur maður ekki farið í neina útilegu enn sem komið er, en stefna er tekin á slíka legu nú um helgina, þegar skunda á með emil (hahaha)...neinei, skunda á í ásbyrgi með vonandi einn tjaldvagn í eftirdragi og golfkylfur og fleira sniðugt :) Ferðalangar eru ekki alveg á komnir á hreint en allavega munu það verða ofanritaður og viðhaldsmaðurinn í fjörfisk (þá er ég ekki að tala um fjölfisk, sem margir ruglast á...bara svo fólk hafi það á kristaltæru að ég og simmi the kræm erum ekki að fara saman í ásbyrgi).

Var spurður að því í dag hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór...tók spurningunni vel og velti því fyrir mér í talsverða stund hvað mig hafði alltaf langað að vera svona í gegnum tíðina ! Fyrst um sinn langaði mér að verða einmitt starfsmaður Olís, en það var bara þegar nammiborðið var, langði svo ofboðslega mikið að setja nammi í poka fyrir óákveðna krakka...tókst það næstum því, nammiborðið var farið. En svo fór mig að langa talsvert að verða Kristján Arason, það tókst heldur ekki...svo svona á þessum seinustu og verstu tímum sé ég e-ð við flugmenn, þegar maður bíður eftir flugi, og þeir rölta svona framhjá með litla krúttlega ferðatösku (á hjólum) í uniforminu...já það er e-ð við þetta allt saman !...svo langaði mig reyndar einhverntíman á bilinu 13-16 ára að verða söngvari í hljómsveit, en bara ef æðarnar í hálsinum á mér sæjust þegar ég syngi...ekkert varð úr því, reyndar þegar ég er að keyra einn einhversstaðar á þjóðvegum landsins, þá prófa ég mig áfram í því...en engar æðar og vonbrigðin talsverð. Svo hefur mig líka eflaust langaði að verða þetta klassíska einhverntíman, lögga, slökkviliðsmaður og svoleiðis græ e-ð...mér stóð nú reyndar til boða að fara í skátana á sínum tíma, en ég, ólíkt öllum strákunum held ég bara í bekknum mínum, ákvað að sleppa því, svo var einnig í tísku að fara í björgunarsveitina...en sleppti því einnig, hafði eflaust svo ofboðslega mikið að gera í manager o.fl.

En jæja...hugsa að ég láti þetta gott heita...skellti í vél áðan og ætla svo sannarlega að muna eftir að hengja upp eftir hana, hún hefur reyndar verið óvenju lengi núna...hún er svo garanterað að reyna að láta mig gleyma sér, eins og hún á reyndar til blessunin en ég hugsa bara hreinlega að ég hafi vinningin í þetta skiptið...en hún er að snýta mér í þeirri keppni !

Munið bara eftir gamla fólkinu, fólkinu sem byggt hefur upp þetta land, sem samanstendur af mikilli hagsæld, góðæri og öllu því góða heiminum, það sögðu allavega dóri og dabbi

Síjú kids

Fín sending Stefán

Sigur !

10. júlí 2006 klukkan 05:02

Heimkoma frá dk

04. júlí 2006 klukkan 23:14

Jæja...var að skríða inn í slotið, þreyttur en ánægður með geysilega vel heppnaða Roskilde-ferð !

flaug einmitt út á miðvikudeginum, og flaug ég að sjálfsögðu með icelandair en ég kemur betur að því hér á eftir hvurs vegna ég nefni icelandair sérstaklega !

Rölti inn í vélina, fullur tilhlökkunar og ekki enn fullur af einhverju öðru en tilhlökkun..tyllti mér aftarlega í vélina og fljótlega settust hjá mér 2 miðaldra kóreskar konur sem töluðu non-stop alla leiðina til köben, mig fór fljótlega að verkja mig illilega í hægra eyrað, sat nubblega við gluggann, og tók ég á það ráð að skella bara upp á mig headphoninu og finna mér einhverja góða tónlist til þess að hlusta á, á leiðinni. Eftir talsverða leit að sæmilegri tónlist þá þótti mér af tvennu gríðar illu betra að reyna að skilja e-ð í þeim kóresku og gerði ég það því.

Lentum í köben frekar seint, og þá var maður aðeins byrjaður á þeim gula og man ég hreinlega ekki alveg hvernig ég fór á lestarstöðina í köben, en tók þar lest í roskilde-bæinn og þaðan alveg örugglega taxa á roskilde-svæðið.......þegar þarna var komið við sögu man ég voða voða lítið og daginn eftir, einhvern tíman um hádegisbilið, vakna ég, skil engan veginn í því hvar í skandinavíu ég er staddur, rígheld í lakið sem var á rúminu og reisi mig upp....og sé á vegg leiðbeiningar um kaupmannahöfn...lít til hliðar og sé ýmsar vörur merktar SAS....geri mér þá grein fyrir því að ég var staddur á Radisson SAS hóteli í kaupmannahöfn og bara býsna þunnur ! Fer því næst fram á gang, og niður í lobby, og stelpa ein sem greinilega var að vinna um nóttina örlagaríku þegar ég checkaði mig inn, brosti svona vandræðalega til mín, þannig að ég ákvað, samt ómeðvitað að brosa vandræðalega til baka og spurði hana hvernig á því stæði að ég væri þar sem ég væri..þá kom ég þarna um morguninn með töskuna mína og pantaði mér 2 nætur í gistingu og verðmiðinn á þær nætur, gætu þýtt það að ég væri í starfi sem hægri hönd bill gates og þessarra kalla ! Fór niður í bæ, og í tívolíið og svoleiðis...hringdi svo, semi-skelkaður í himma sem að sjálfsögðu var á roskilde-svæðinu..mikið mikið þunnur, þ.e. himmi sko..og sagði ég honum frá sem gerst hefði síðustu ca. 15 tímana !

En já, til að reyna að gera mjög langa sögu stutta, þá fór ég þann dag aftur upp á roskilde-svæði og tók þar um kvöldið Gunsarana og var það bara frekar skemmtilegt ! Vorum svo þarna á svæðinu, í svona 43 stiga hita í sólinni sem var þarna allan tímann og fórum svo á Dylan daginn eftir sem verða að teljast vonbrigði ferðarinnar !....já, Bob Dylan olli mér og mikið mikið fleirum miklum vonbrigðum en já, þarna...eftir talsverðar vangaveltur, ákvað ég að fara til köben aftur, um kvöldið, sá fyrir mér fallegt krúttlegt hótelherbergi, þó ekki á SAS og hélt ég því með mitt hafurtask í rútu sem flutti mig niður í roskilde bæinn og gekk ég þar um með bakpokann í eina, tjaaa..hvað eigum við að segja...jú, 4-5 tíma og allsstaðar þar sem ég kom, var fullbókað í gistingu (ætlaði nebblega að taka 1 nótt þar, áður en farið skyldi til köben), svo þegar ég var búinn að læra öll götuheiti í roskilde-bænum utanað, þá var ég staddur á lestarstöðinni í roskilde og lestin að fara til köben, þannig að ég steig upp í hana og sofnaði frekar sannfærandi í lestinni og fann þá ásættanlegt hótel og checkaði mig þar inn, og skreið ég upp í rúmið sem var jú bara nokkuð gott !......um miðjan dag, daginn eftir var ég vakinn af einhverri tæju, sem ætlaði að græja herbergið en hún hefur verið með svona 170kr íslenskar á tímann og heyrði ég bara svona "tááá" "tááá" tááá" í einhvern tíma áður en ég rumskaði og leit á hana og sagði henni að hún þyrfti ekki að gera neitt !...ótrúlegt, hvað svona fólk, sbr kóresku sessunauta mína í fluginu til dk, tóna hátt eitthvað !

En já, svo ég fari nú hratt yfir þetta, var ég í köben síðustu dagana og hafði það ofsalega gott í blíðunni og í gær hitti ég þá félaga svo, Himma, Ingvar, Agga og Jóa í köben og vorum við svona að taka okkur til fyrir brottför og tókum við Taxa upp á flugstöð................

Verkfall hjá starfsmönnum vallarins blasti við okkur !!!...ok, kannski ekki verkfall en svona hægjuverkfall ef svo má kalla, fólkið að vinna sína vinnu ákaflega hægt, á svipuðum hraða og Hafliði Bambi þegar hann er að vinna, með dýpstu virðingu fyrir þeim ágæta manni og fylltist flugstöðin af pirruðu fólki, en mestur fór hitinn upp í 144 gráður í flugstöðinni, og rakastigið var þetta í kringum 1000 !! Þetta seinkaði fluginu mínu t.d. um 3 tíma og var það nú aldeilis svekkjandi, en svo fór ég í vélina og sat þar við hliðina á fullum íslending sem var að fara að taka yfir danska rafmagnið, þ.e. svona frekar mikill kall ! Hann reyndar gaf sér tíma í að segja mér frá því hvað fólkið í 1.farrými væri yfir annað fólk hafið o.s.frv. en minnti mig svo á það, að hann væri að fara að eignast danmörk fljótlega !...gaman að þessu :)


Tók bsí rútuna til rvk og sofnaði fljótlega þegar heim var komið, vaknaði um 13 og hélt þá niður á reykjavíkurflugvöll þar sem.....ójú, fluginu var seinkað um ca 45mín, þarna kom sér gríðarlega vel að hafa verið strandaglópur í köben deginum áður í einhverja tíma og tók maður þessu auðvitað með heilmiklu jafnaðargeði !

Varðandi icelandair dæmið þarna áðan, þá má ég til með að geta þess að þeir félagar Pálmar, Himmi og Ingvar flugu með express frá köben til íslands, og komust þeir heilu og höldnu til keflavíkur og fóru þeir svo niður til þess að vitja um töskurnar sínar en svo heyrðist það úr einum litlum ljótum hátalara á gólfinu, að töksurnar hefðu orðið eftir í köben !....þjónustan þarna er auðvitað ekki boðleg !, en ég allavega mætti með mína tösku niður á reykjavíkurflugvöll :)....ath- mér fannst ekkert fyndið að töskurnar þeirra skyldu hafa orðið eftir í köben

Og já, hér sit ég rita þessi orð og orðinn frekar sibbinn, og best ég fari fljótlega að halla mér bara í tilefni þess

Bekkjarmót næstu helgi og verður mikið húllumhæ þar hugsa ég bara :)

Síjú kids

Fín sending Stefán

Brottför til dk

27. júní 2006 klukkan 16:40
Jæja..upp er runnin brottfaradagur frá víkinni, keyrum í dag inneftir, me, himmi og vari og leggjum snemma af stað til þess að ná spánverjunum taka á móti frökkunum í 16 liða og svo bara flug suður og svo flug bara út á morgun

Er búinn að vera að klóra mér í aftanverðum hnakkanum í morgun, og spá í það hvort allt sem ég hef venjulega gleymt sé gleymt...en komist að því, að í fyrsta skipti í þónokkurn tíma er ég held ég ekki að gleyma neinu. allt komið ofan í bakpokann, eða er allavega á leiðinni þangað. Á bara eftir að fara og slumma mömmu og pabba blessbless, og auðvitað Hector líka. Pabba reyndar leist lítið á þetta ferðalag, spáði því að þetta væri bara svona fyllerísferð, ég gerði honum grein fyrir því að þetta væri að sjálfsögðu ekkert fyllerísferð, væri bara ferð sem við félagarnir værum voða voða spenntir yfir, og gaman væri nú að koma í 1.skipti til köben o.þ.h. og svei mér þá ef þessi krúttlega lýsing á ferðalaginu hafi ekki bara hitt beint í mark hjá karli föður mínum.

Fleira var það nú ekki að þessu sinni, vona að þið farið jafnvel með ykkur og ég mun fara með mig þarna úti í heimalandi Daniels Aggers. Ef maður þefar uppi eins og eina tölvu þarna úti sem tengd verður við umheiminn er aldrei að vita nema maður öppdeiti spilltan almúgann um veru okkar þarna úti og spái ég því að ef svo verður, verða það fréttir af fylleríinu hjá himma og kvennafarssögur af sama manni !

Hafið það rosa fínt og njótið þess að vinna bara ("vinna, hvað er það ?" kemur frá Degi), fólk verður að líta á það bjarta í vinnu sinni, ekki vera með einhvern móral út í vinnuna þegar erfitt er að sjá fyrir enda vinnuvikunnar. Ég reyndar þarf þess ekki að þessu sinni en engu að síður sé ég ríka ástæðu til þess að óska ykkur góðrar vinnuviku....þetta er svo alls engin kaldhæðni...bara örlítil...

Jæja..mamma mín var að hringja, og vildi hún fá litla einkasoninn til sín til þess að kveðja, eitt reyndar svolítið gaman, þegar ég var lítill og á leið í t.d. handbolta eða fótboltaferðalög með félögunum og var svona að pakka niður heima á síðustu stundu og svo var brunað og kom ég oftar en ekki með þeim síðustu niður á plan fyrir utan skólann, og flest allir aðrir komnir og ég svona að taka töskurnar út úr bílnum og allir krakkarnir í glugganum í rútunni að bíða eftir að hægt væri að leggja af stað, þá stigu oft föður minn eða móðir út úr bílnum, sjaldan reyndar saman, og tóku svona bylmingslega utan um mig og ég svona "jájá mamma, við sjáumst" svo var maður kysstur í bak og fyrir af þeim....æji ég veit það ekki barasta, var eitthvað svona ekki karlmannslegt, því oft var þetta þegar maður var þetta 13-16 ára, þar sem maður var í uppreisn við foreldranna, hlustaði bara á Nirvana og safnaði síðu hári, byrjaður jafnvel að taka lowenprice í nefið o.s.frv. og þetta var bara eitthvað sem maður þurfti alls ekki á að halda í þessu töffaraferli ! Sneisafull rúta stútfull af jafnöldrum manns að horfa á son og móðir eða son og föður í hörku faðmlögum á planinu og labbaði maður svo upp tröppuna í rútunni rjóður í kinnum og hálfasnalegur. En þar sem maður er orðinn einkar þroskaður í dag, má mamma mín alveg kyssa mig bless við hvert tækifæri, sem og karl föður minn.

Bæjó krakkar - Áfram Argentína og Ítalía

Halló krakkar

26. júní 2006 klukkan 04:11

Halló krakkar

Ætla að fara svona létt yfir dagksrá helgarinnar, þeirrar sem nú er að líða....

* Fáránlega snjöll ákvörðun að fá sér aðeins í aðra tánna á föstudagskvöldið, farið var á baukinn þar sem voru 15-20 manns en engu að síður mjög snjöll ákvörðun hjá köllunum !

* Ákveðið var eftir talsverðar bollaleggingar að fylgja eftir mjög góðu föstudagskvöldi, með því að fá sér örlítið á laugardagskvöldið, nú kunna sum ykkar að velta því fyrir sér "bíddu, bara 2 kvöld í röð, þá hlýtur e-ð skemmtilegt að hafa komið upp sem orsakaði bjórdrykkju bæði kvöldin"...en neinei, ekkert spes, og var farið á baukinn, og borgaður var þar inn held ég fimmhundruð kjell, enda var tónlistargrúppan Undir Rós að troða þar upp, frekar lítið um manninn þarna, en þó einhverjar fráskildar konur, ásamt reyndar fráskildum karlmönnum voru á svæðinu og Bjarni the best horse var einnig edrú þarna niður frá...nei heyrðu, hann var reyndar e-ð í glasi þarna.

* Mórall í dag, mórall já, var að spá aðeins í gærkvöldið í dag, í hálfleikjunum í HM og komst að því að mórallinn sem umlak íbúðina mína í dag stafaði af því að ég, ásamt Soffíu í hvammi börðumst hatrammlega fyrir því þegar loka átti bauknum að Elvar Braga tæki allavega 1 lag í viðbót með fullri virðingu fyrir þeim ágæta manni ! Já, maður tuðaði þarna í honum eins og lítill krakki að biðja mömmu sína um ís með dýfu !

* Vorum svo í gærkvöldi málararnir, þ.e. me and andros að spjalla um þessi helstu orð málarans og þá kannski frekar hvaða orð eru yfir hluti sem þurfa ekki að bera svo óeðlilega löng og oft á tíðum skrýtin nöfn ! Dæmi....

Stufari - Stufari er pensill sem notaður er að mestu leyti í að þrífa burtu ryk úr hornum - Stufari gæti því allt eins heitið Hreinn Pensill

Box - Box er bara box sem þægilegt getur verið að geyma sparsl í - En ekki má kalla þetta box af nokkrum reynsluboltum í geiranum ! man því miður ekki orðið í augnablikinu en það er svo langt frá því að vera bara box !

Votrými - Votrými er baðherbergi, þ.e. votrýmið er semsagt sá partur af húsnæðinu þar sem verður klósett, vaskur, sturtuaðstaða og- eða bað, þetta heitir ekki baðherbergi hjá mörgum, heldur Votrými !

Sparsl - Sparsl er bara sparsl, en það er ekki skrifað eins og það er sagt, það þarf að heita spartl, af hverju heitir þetta ekki bara sparsl !!

En jæja, er eflaust að gleyma helling af skemmtilegum orðum hérna en kem þá með þau seinna og þá útskýringar aftan við þau.

3 dagar í roskilde-för mína og neita ég því ekki að þetta lítur ekkert ofboðslega illa út, mamma búinn að finna góðan bakpoka handa litla einkasyninum og því allt svona að mestu klárt fyrir þessa þrælskemmtilgu ferð...

en jæja....best að fara að drífa sig í beddann, erfiður dagur í vinnunni á morgun, en svo bara frí eitthvað fram í aðra viku sem verður bara að teljast nokkuð gott...

Farið vel með ykkur - bæjó

Fín sending Stefán

Ha...ertu í korni ?

20. júní 2006 klukkan 05:22

Hvað í ósköunum er eiginlega málið með þennan dag ! Jú, þetta ku víst vera kennafríeitthvaðdagur held ég, og tók ég svipaða umræðu upp hérna ekki alls fyrir löngu, þ.e. munin á bóndadegi og konudegi ! Allavega eru þeir þarna á fm búnir að vera að útdeila svona vinkonumiðum í bíó af því að karlarnir hanga bara heima og horfa á fótbolta ! Uuu...réttlætið í þessu er hvar ?.....já þarna, það er nákvæmlega ekkert ! Ástæðan er einföld, á fjögurra ára fresti er Heimsmeistarakeppnin í fótbolta haldin og situr þá flestur karlpeningurinn límdur framan við TV-ið með hugsanlega einn öllara með sér og koma þeir þá nokkrir saman og bera saman bækur sínar um liðin, leikmennina, þjálfaranna, þetta brot, þetta spjald, þessa rangstæðu o.s.frv. Af 48 mánuðum, er 1 mánuður HM, og í þann mánuð, allavega þennan mánuð núna, er einhver útvarpsstöð að útdeila miðum í bíó...bara fyrir konur. Hvað með alla þessa þætti, þar sem kvenfólkið situr óhikað fyrir framan sjónvarpið og fylgist með lágkúruþáttum á borð við Opruh, leiðarljós, glæstar, Grey´s Anatomy, nágranna (reyndar er Valdi mágur mikill neighbours-fan) og svo núna síðast melroce og beverly ! Ekki hef ég heyrt á það einu orði minnst að til standi að vera með svona karlavinamiða í bíó, einvörðungu ætluðum karlmönnum þegar þessir þættir sem nefndir hafa verið hér, eru á dagskrá sjónvarps ! Er nú asskoti hræddur um það að e-ð myndi nú heyrast frá stelpunum/konunum ef þetta væri raunin, karlavinamiðar í bíó af því að unnustan er að horfa á kelly, brandon og þau í beverly t.a.m. Mjög líklega yrði útvarpsstöðin kærð af einhverjum öfgafeministum (tek skýrt fram að mikið af feministum er besta fólk) sem krefðust þess að þáttastjórnendurnir myndu segja af sér og þeir hýddir og settir í 3ja mánaða einangrun !!

Allavega já, ætla ekki að pirra mig meira á þessu, jú reyndar aðeins....svo þegar stelpurnar hringja þarna inn og heimta þessa miða sem eiga bara strangt til tekið að vera 2, þá vilja þær fá 5 og útvarpsmaðurinn sem er karlmaður, þorir ekki fyrir sitt pínulitla líf að benda þeim á að einungis er um 2 miða að ræða, og hann segir kannski "....ekkert mál, en hvað segirðu, ert þú með einn sem hangir yfir boltanum"....þá er svarið "Já, þessi djöfulsins fótbolti endalaust"...og hann svona hlær hræðsluhlátri og segir "já einmitt...alltof mikið af þessu, hvað má bjóða þér marga miða" !

En já, helgin næsta er rosaleg, hugsanlega verður fyrsta mótið í "hertoginn af þverá" og mun fyrsta holl taka sér stöðu á fyrsta teig vonandi fljótlega upp úr hádegi á laugardeginum og spurningin er þá einungis sú, hvort undirritaður nær að verja titilinn og eru veðbankar almennt talið á því að svo verði, þrátt fyrir gífuryrði annarra keppenda um annað !

Glæsilegt veður búið að einkenna þennan dag, og eru við bara allir 7 búnir að vera að vinna úti og hafa það gott í sólinni......tjaaa, allir nema ég !!! var sendur inn í 1 herbergi þar sem verið var að sparsla (segi ykkur frá því seinna hvernig það er gert) og svo málað en til þess að getað málað það þurfti sparslið að þorna frekar fljótt og var því gripið til þess ráðs að skella eins og einum hitablásara inn í herbergið sem fór með hitann úr svona +33 gráður í +61 gráða og var ég að vinna upp í loftinu m.a., við hliðina á ljósi sem gaf frá sér held ég bara óvenju mikinn hita sem olli svo því að mér varð frekar heitt á meðan aðrir iðnaðarmenn á svæðinu spásseruðu um undir berum himni ! en þetta hafðist nú allt saman.

Er að hugsa um að segja þetta bara ljómandi gott í bili og bið ég ykkur vel að lifa þangað til næst og já, æji fékk miðan á roskilde sendan í dag, djöfull sem ég sé eftir þessu maður ! þetta verður svo hundleiðinleg ferð spái ég, en kannski að það rætist e-ð úr þessu og maður komist í flest tækin í tívolíinu í köben.

Akið með beltin spennt, og munið að gefa stefnuljós (ekkert..og þá meina ég ekkert meira sem pirrar mann en þegar maður er að bíða á gatnamótum eftir bíl sem virðist vera að fara að keyra áfram og framhjá manni, en beygir svo inn í gatnamótin án þess að gefa stefnuljós) !!

Fín sending Stefán