Könnun

Hefuršu sett upp og stillt gervihnattadisk ?

Auglżsing

1. Manchester United

Þeir sýnist mér verða sterkastir í ár, með Cristiano Ronaldo og Carlos Tevez í broddi fylkingar. Spái því einnig að Ole Gunnar meiðist eitthvað á tímabilinu.

2. Liverpool

Mínir menn verða í öðru sæti í vor þegar lokaflautið gellur. Við munum þó ná langt í öðrum keppnum, s.s. meistaradeildinni og kæmi mér það ekkert óskaplega rosalega gífurlega á óvart ef að þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu evrópukeppnina enn og aftur. Spái því að Ryan Babel eigi eftir að reynast poolurum vel og að Torres verði markahæsti leikmaður í evrópuboltanum þetta tímabilið.

3. Chelsea

Virðist vera sem svo að Roman sé hættur að nenna að eyða miklum pening í leikmannakaup. Það sést best þegar í besta falli miðlungsleikmenn eins og C.Pizarro og S.Sidwell hafa verið fengnir á Stamford. Spái því reyndar að kokkur á aflaskipi sé mér algjörlega ósammála varðandi Sidwell, hann telur hann bestan í Chelsea.


4. Tottenham

Styrkur liðsins mun koma í ljós á þessu tímabili, og munu þeir enda tímabilið í fjórða sætinu. Ástæða þess er geysilega sterkur hópur sem aðdáendur liðsins eru ánægðir með, auk þess sem Martin Jol er svipað góður þjálfari og Beggi Olgeirs er í kvennaboltanum hér á klakanum.

5. Arsenal

Þeir verða í vandræðum í vetur, hafa misst að sjálfsögðu Henry en fengið einhverja óþekkta í staðinn. Það er nú reyndar þannig að Wenger er góður stjóri sem virðist ná því besta út úr leikmönnum sínum, og mun hann gera það einnig núna, og verða þeir því sáttir í lok tímabils að fá að spila í evrópukeppni félagsliða á næsta seasoni.

6. Newcastle

Ef að Liverpool-maðurinn Michael Owen verður heill 15% af tímabilinu þá nær Newcastle þessu sæti, það verður aldrei hægt að þakka feita Sam þeim árangri, enda eins og velflestir vita er hann ofmetnasti stjóri í heiminum í dag. (auk þess fór hann að gráta eins og stelpa þegar honum bauðst ekki að taka við enska landsliðinu)

7. Blackburn

Mark Hughes virðist vera að gera ágætis hluti á Ewood og nær hann með liðið í 7.sæti. Annars frekar óáhugaverður klúbbur.

8. Portsmouth

Gaman að fylgjast með liðum sem Harry Redknapp stýrir, oftast leikinn skemmtilegur sóknarbolti.

9. West Ham

Spái því til að byrja með að Eiður Smári kemur við sögu hjá liðinu á tímabilinu, hvort sem það verður fljótlega eða í eftir áramót. Verður gaman að fylgjast með liðinu, vegna ítaka íslendingana og spái ég þeim ágætis róli um miðja deild. Ég sé reyndar fyrir mér C.Bellamy mölbrjóta hnéskeljarnar á R.Ferdinand í kringum jólin, með pútter.

10. Aston Villa

Leiðinlegt lið, með öðrum ofmetnum stjóra, hann varð allt í einu rosalega æðislega góður stjóri eftir að hann komst með Leicester í evrópukeppnina. Svo fór hann til Celtic sem var þá yfirburðalið í skoska boltanum og sigraði auðvitað deildina í einhver skipti í röð, sem var svipað einfalt og að drekka kók.

11. Manchester City

Sven Göran þarf þetta tímabili til þess að stilla saman strengi með mörgum nýjum leikmönnum og er því 11.sæti niðurstaðan á þeim bænum.

12. Middlesbrough

Ég ætla að gera mitt allra besta í að horfa ekki á neinn leik með þessu svo mjög ómerkilega liði.(nema poolaraleiki)

13. Bolton

Það sem heldur liðinu gangandi á tímabilinu er snilli og útsjónarsemi stjórans, Sammy Lee sem er gríðarlega góður stjóri, en hefur úr lélegum hóp að velja eftir feita Sam árin.

14. Reading

Það er eitthvað svo lítið hægt að segja um þetta lið, Steve Coppell sniðugur stjóri sem nær ágætum og óvæntum sigrum gegn "stóru" klúbbunum (fyrir utan Liverpool) en dettur svo niður í algjöra meðalmennsku og rúmlega það.

15. Everton

Eins og mikið og ég óska mér að D.Moeys og hans heimsku vitleysingar í Everton drulli sér niður um deild þá mjög líklega halda þeir sæti sínu í deildinni.

16. Derby

Velflestir spá Derby County niður á komandi tímabili, en ég ætla því að spá þeim 16.sæti í deildinni. Ástæðan fyrir veru þeirra í deildinni á þarnæsta tímabili 08/09 er sú að á komandi tímabili munu þeir ná upp ævintýralegri stemningu á Pride Park sem mun kyrrsetja þá í deild hinna bestu á englandi.

17. Wigan

Ef að Emile Heskey nær að halda sér heilum, þá er hægt að lyfta þeim ofar í deildinni (þá fyrir Everton) en það er alveg hægt að búast við því að Heskey meiðist eitthvað, enda er það taktík hjá stjórum annarra liða í deildinni að útiloka svörtu perluna frá leiknum, með öllum tiltækum ráðum.


18. Fulham

Það er komið að því að Fulham falli, einkar slakt tímabil framundan hjá Lawrie og Co og munu þeir því falla eftir spennandi lokaumferð.

19. Sunderland

Þrátt fyrir gott "run" hjá Keane með liðið á s.l. tímabili þá falla þeir í vor, og hættir Roy Keane með liðið.

20. Birmingham

Djöfull sem ég vonast eftir þessu, leiðinlegt lið, og falla þeir vonandi sannfærandi.


Varðandi 1.deildina, þá stend ég ennþá við þá spá mína að Norwich City F.C. verði í 17.sæti þegar allar umferðir hafa verið spilaðar, og í lokaleik umferðarinnar, munu flestir aðdáendur liðsins mæta með stóra borða og verða þeir allir e-ð á þessu leið "Delia Out"